Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Qupperneq 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Qupperneq 7
^Dagur-'QKmom Laugardagur 15. febrúar 1997 -19 aði í hvað peningarnir færu, en mér fannst það ekki mitt mál.“ Fangar fái tækifæri Er það þá bara glæpabrautin sem tekur við? „Ja, flestir fang- ar sem ég hef talað við fara beint í glæpina aftur af því að ekkert annað býðst þeim. Ég ætla ekki að fara sömu leið en þeir segja mér að gleyma áformum mínum, þetta „brölt“ þýði ekkert.“ Bröltið sem Ólafur á við er með öðrum orðum samtök- in „Fangar og þolendur" sem reyna að koma þeim skilaboð- um til atvinnu- rekenda að fangar fái tæki- færi. En for- varnaraðgerðir eru þó efstar á lista. 28 aðilar eru búnir að skrá sig en sem stendur bíður Ólafur og félag- ar svara ráða- manna sem hafa sýnt mál- inu áhuga en að sögn Ólafs er brýn þörf á að félagsskap- urinn fái sama- stað. Ef okkur tekst að snúa tveimur mönn- um frá villu síns vegar á ári þá stendur það fyllilega undir kostnaði samtak- anna. Norðmenn eru að gera það sama og við erum að reyna með frábærum árangri. Þar hafa 3 af hverjum 8 innan sam- bærilegra samtaka snúið frá glæpabrautinni. Vandamálin halda alltaf áfram ef ekkert er að gert,“ segir Ólafur Gunnars- son. Hjálpar mér að hjálpa öðrum Fimm manns eru í stjórn sam- takanna og má þar nefna auk fyrrverandi fanga móður ungs afbrotamanns og fíkniefnaneyt- anda, eiginkonu afbrotamanns og einn þolanda, Kristínu Ingvadóttur, sem varð fyrir hrottalegri kynferðislegri árás fyrir (jórum árum. Hvaða erindi á Kristín með dæmdum saka- mönnum eftir hennar lífs- reynslu? „Ég hef reynt að vinna að úrbót- um í málefnum þolenda en staðreyndin er að það er ekk- ert gert fyrir þolendur. Því meir sem ég hugsaði málið sá ég að ég gæti þó haft þau áhrif að minnka líkurn- ar á afbrotum með því að standa betur að stuðningi við fanga. Reglan hef- ur verið sú að hér eru sömu mennirnir aftur og aftur að fremja glæpi, kannski vegna þess að þeir hafa ekki að neinu að hverfa.“ Kristín segir að hennar hlut- verk innan samtakanna sé margþætt. M.a. að ræða við aðra þolendur sem kunna að snúa sér til hennar og reyna að knýja á um úrbætur. Svo sé fyr- irhuguð fræðsla m.a. innan fangelsanna þar sem hún ásamt öðrum í samtökunum hyggist svara þeim spurningum sem fangar kunna að bera upp. „Annars er þetta allt í starthol- unum, enn hefur ekki mikið starf verið unnið í nafni sam- takanna, enda ræðst framtíð okkar á stuðningi ráðamanna, en það hefur töluverð forvinna átt sér stað.“ Hvernig er að vera eini þol- andinn innan þessa hóps? „Ég lít svo á að ef maður lendir í svona áfalli hjálpi það viðkomandi mjög mikið að geta hjálpað öðrum. Eg hef heyrt það frá fólki sem situr inni að þetta er rosalega erfitt tímabil og ég er ekki sátt við hvernig komið er fram við fanga. Okkar takmark er að breyta hugar- fari fólks gagn- vart föngum og ef ég get það sem þolandi þeirra þá ættu aðrir að geta lagt sitt af mörkum.“ Óhreinu börnin.... Þú sagðir áðan að ekkert væri gert fyrir þolendur af hálfu rík- isins. Ilvað þarf að bæta? Það þarf t.d. að sjá til þess að við fáum miskabætur greiddar, ef dæmdi á engar eignir fáum við ekki krónu. Til stóð að gera ríkið ábyrgt fyrir þessum greiðslum en nú er bú- ið að stoppa það frumvarp af. Svo er fleira eins og í mínu til- felli að ég hefði þurft að ganga reglulega til sálfræðings en hef engin efni á því. Ég á eftir að gjalda fyrir lífsreynsluna allt mitt líf, bæði sálarlega og lík- amlega. Ég varð t.d. fyrir súr- efnisskorti, en ríkið veitir mér enga aðstoð." Kristín ræðir nánar um lífs- reynslu sína en víkur sér svo að því sem hún vildi helst sjá bætt hvað fangana varðar. „Þeir þyrftu að fá bæturnar greiddar strax eftir að þeir koma út. Oft líða 3 vikur og hvað eiga vandalausir t.d. að borða á meðan? Svo þyrfti að veita þeim hjálp við að greiða rir þeim íjárhags- flækjum sem fylgja afplánun og síðast en ekki síst þyrftu atvinnurekend- ur að vera til- búnir að gefa þeim aftur tækifæri.“ Er ekki erfitt fyrir þig að hafa samúð með föngum í ljósi þinnar lífsreynslu? ..Ég er ekki að vinna þessi störf vegna samúðar með föng- um eða þolendum. Ég er hins vegar viss um að ef fangar eru byggðir upp verða þeir betri menn. Þeir leiðast þá síður út í afbrot og eiturlyf, verða gildir þjóðfélagsþegnar og þar með fækkar þolendum afbrota," seg- ir Kristín. Viðtal: Björn Þorláksson „Ég ræddi við ráð- herra og sagðist vilja komast út úr félagslega geiran- um. Hann sagði nei. Hann vill frekar hafa mig á hótum það sem eftir er og horga mér 53 þús. kr. á mánuði en að að- stoða mig við að komast út í at- vinnulífið. ” „Okkar takmark er að hreyta hug- arfari fólks gagn- vart föngum og ef ég get það sem þolandi þeirra þá œttu aðrir að geta lagt sitt af mörkum. “ - besti tími dagsins! Verktakar, smiðir, bifvélavirkjar, píparar, rafvirkjar, málarar, verslunarmenn... Kynnið ykkur TILBOÐ okkar á raðauglýsingum. - ÞÆR SKILA ÁRANGRI - Sími auglýsingadeildar er 460 6100 Fax auglýsingadeildar er 460 6161 Símasöludeild Flugleiða Símasöludeild Flugleiða er kærkomin þjónusta fyrir þá sem vilja panta flugfarseðilinn á einfaldan hátt og fá hann sendan til sín í pósti. • Þú hringir í sima 50 50 100. • Þú bókar flug eða pakkaferð með Flugleiðum. • Þú velur þann greiðslumáta sem hentar þér: A) Gefur upp númer á greiðslukortinu þínu. B) Leggur greiðsluna inn á hlaupareikning Flugleiða í næsta banka eða sparisjóði. C) Greiðir í gegnum Heimabanka þíns viðskiptabanka. Ef þú hringir fyrir klukkan tvö færðu miðann í pósti daginn eftir, ef engar truflanir verða á póstsamgöngum. Notlærðu þér þjónustu Símasöludeildar Fluglciða - 50 50 100 - eitt síintal og við seiulmu þér niiðann uin hæl. FLUGLEIÐIR Traustur íslenskur ferðafélagi

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.