Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Page 11
Jktgur-'3toramt C7TT+ ~ Laugardagur 15. febrúar 1997 - 23
^ii^igur-CLltmmn
'iwhma
Hver kannast ekki við að hlaupa út í sjoppu í hádeg-
inu, kaupa eina samloku, löðrandi í majonesi, og
gleypa hana á fimm mínútum? Ekki vegna þess að
okkur þyki hún svo góð, eða teljum að hún sé holl,
heldur vegna þess að þetta er fljótlegasta leiðin.
Garnirnar eru hœttar að gaula og við getum haldið
áfram að vinna.
s
g fór í heimsókn á vinnu-
stað í vikunni þar sem
starfsmönnum gafst kost-
ur á að borða í mötuneyti. Fyrir
150 krónur gátu þeir fengið sér
súpu, brauð með áleggi að eigin
vali, ávexti og ýmiskonar græn-
meti. Léttur og góður matur í
önnum dagsins og fyrir þá sem
eru að flýta sér er allt tilbúið.
Eina sem þarf að gera er að
hlaða á diskinn og borga einn
matarmiða. Verðið er líka
hlægilega lágt, en í þessu tilfelli
var miðað við að starfsmenn
þyrftu aðeins að greiða hráefn-
iskostnað. Vinnustaðurinn sá
um leggja til húsnæði og borga
vinnulaun.
Ég var nokkuð hugsi eftir
þessa heimsókn mína. Þótti
starfsmenn á vinnustaðnum
vera nokkuð heppnir að eiga
þennan valkost en velti því jafn-
framt fyrir mér hvers vegna
vinnuveitendur væru tilbúnir að
halda uppi mötuneyti sem þeir
Auður
Ingólfsdóttir
skrifar
bæru augljóslega nokkurn
kostnað af. Niðurstaðan af
þessum vangaveltum var sú að
kannski sé fyrirkomulag af
þessu tagi til bóta fyrir alla,
bæði vinnuveitendur og starfs-
menn.
Glaðir starfsmenn,
góðir starfsmenn
Ég er nefnilega ekki frá því að
þegar upp sé staðið komi
vinnuveitendur til með að
græða á því að starfsmenn séu
vel nærðir. Við erum alltaf að
heyra um rannsóknir sem
sýna fram á að rangt
fæði, eða of lítið fæði,
valdi einbeiting-
arskorti og dragi
úr starfsþreki.
Og enginn
vinnuveitandi
vill þreytt og
áhugalaust
starfsfólk.
Auðvitað ætti
samt ekki að
þurfa að stofna
heilt mötuneyti
bara til að við
látum eitthvað af
viti ofan í okkur.
Þeir sem á ann-
að borð hugsa um heilsuna vita
að gróf brauðsneið með fersku
grænmeti er mun æskilegra en
franskbrauð með kokteilsósu og
frönskum á milli og ættu að
hafa næga virðingu fyrir sjálf-
um sér til að velja eitthvað gott
sér til handa. En það er þetta
með tímann og skipulagið.
Ótrúlegt hvað það vefst fyrir
manni. Átak sem hefst á mánu-
degi er runnið út í sandinn á
miðvikudegi þegar pappírar
fljóta um öll skrifborð og stress-
ið er í hámarki.
„Þeir
sem á annaö
borð hugsa um
heilsuna vita að gróf brauð-
sneið með fersku grænmeti er mun æskilegra en
franskbrauð með kokteilsósu og frönskum á milli..."
Hvað með skóla-
krakkana?
Kannski byrjar þetta strax á
unglingsaldrinum. Það var
a.m.k. á þeim árum sem ég
hætti að smyrja mér nesti til að
hafa með í skólann. Hvers
vegna að eyða tímanum í það
þegar voru ekki einu sinni nest-
istímar lengur? Og hvergi var
aðstaða til að setjast niður vildi
einhver nýta frímínútur eða há-
degishlé í nestisát. Hins vegar
var lítil sjoppa hinumegin við
götuna og þar möluðu verslun-
areigendur gull. Hungraðir
unglingar biðu í röðum eftir að
kaupa eitthvað sem uppfyllti tvö
skilyrði: nógu ódýrt og nógu
fyllandi til að seðja hungur
þeirra. Einfaldasta lausnin var
súkkulaði. Fullt af hitaeining-
um og miklu ódýrara en sam-
lokurnar.
Mér skilst að eitthvað hafi
aðstaðan batnað í skólanum
mínum síðan. A.m.k. búið að
setja upp borð og stóla. Og
sjoppan er ekki til lengur. En
víða í skólum landsins er þó
pottur brotinn í þessum efnum.
Þó hlýtur hið sama að gilda um
unglinga eins og okkur sem
fullorðin erum, að einbeitingin
verði betri sé fæðan í lagi?
Hvað ætli þau borði í hádeginu,
krakkarnir í Singapore?
nií)
#í Lei
eimilis-
hamið
Amerískur ostakrans
50 g ger
2'/ dl. mjólk
3 msk. brœtt smjör
1 tsk. salt
i egg
ca 450 g hveiti
75 g rifinn ostur
Smjörið og mjólkin brædd sam-
an, haft ylvolgt. Saltinu, egginu
50 g af ostinum og helmingnum
af hveitinu bætt út í. Hnoðað
saman og hveiti bætt út í þar til
þetta er orðið mjúkt deig. Látið
hefast með stykki yfir í ca. 45
mín. Deigið hnoðað aftur og
skipt í tvo hluta, sem svo eru
rúllaðir í lengjur. Lengjunum er
svo snúið saman og formað í
hring á smurðri ofnplötu.
Kransinn látinn hefast í ca. 30
mín. Smurðu með saman-
hrærðu eggi og ostaraspinu og
smávegis sesamfræi stráð yfir.
Kransinn bakaður við 220° neð-
arlega í ofninum í ca. 20-25
mín.
Rúsínubollur
3 dl. mjólk
50 g sykur
Örl. salt
50 g ger
50 g smjör
30 g súkkat
50 g rúsínur
Rasp utan af einni appelsínu
1 tsk. kardimommur
400-450 g hveiti
Egg til að pensla bollurnar
með.
Hitið mjólkina með smjörinu,
salti og sykri, haft ylvolgt. Gerið
hrært út í. Blandið rúsínum,
súkkati, appelsínuraspi, kardi-
mommum og hveiti saman og
bætið því út í smátt og smátt
þar til verður mjúkt deig.
Breiðið stykki yfir skálina og
látið deigið hefast í 30 mín.
Hnoðið deigið létt saman og bú-
ið til ca 12-14 bollur, látið þær
á pappírsklædda bökunarplötu
og látið þær hefast aftur í ca.
30 mín. Smyrjið bollurnar með
hrærðu eggi og bakið þær í ca
15 mín. við 200°. Góðar á morg-
unverðarborðið.
Góð brauðsamloka m/osti
og skinku
Fjórar þunnar brauðsneiöar
Sinnep
4 skinkusneiðar
4-8 sneiðar af mildum osti
2 egg
2 msk. vatn
15 g smjör til að steikja úr
Smyrjið brauðið með þunnu
lagi af sinnepi, leggið skinkuna
og ostinn á og þrýstið sneiðun-
um vel saman. Ilrærið eggin
með vatninu á djúpum diski.
Rétt áður en við ætlum að bera
samlokurnar fram látum við
þær á diskinn með eggjahrær-
unni, blotna á báðum hliðum og
steikjum þær svo í smjörinu á
pönnu. Veijið álpappír utan um
handfang pönnunnar og látið
pönnuna inn í bakaraofn í ca. 5
mín. við 225° þar til osturinn
hefur bráðnað. Með heitri súpu,
sérlega gott.
Góð lítil máltíð
'/ dós aspas
500 g rœkjur
2/ dl hrísgrjón
1'/ tsk. karrí
1 '/2 dl rjómi
1 dl majones
2 egg
Ca 1-1'/ dl. rifinn ostur.
Hrísgrjónin soðin í 5 dl vökva
(soðinu af aspasinum og vatni).
Karrí sett út í soðið.
Soðin hrísgrónin sett í botninn
á eldföstu móti. Rækjunum og
aspasinum stráð yfir. Eggin að-
skilin. Rauðurnar hrærðar með
majonesinu og þeyttur rjóminn
blandaður í. Stífþeyttum eggja-
hvítunum blandað saman við
síðast og hrærunni smurt yfir
rækju- og aspasfyllinguna í
forminu. Stráið rifna ostinum
yfir og formið sett í 225° heitan
ofn í ca 15 mín.
Kardimommu-
súkkulaðikaka
250gsykur
250 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. vanillusykur
3 msk. kakó (sigtað)
1 /2 tsk. kardimommur
150 g smjörlíki
3 egg
1 /2 dl mjólk
Egg og sykur þeytt saman í
þykka eggjafroðu. Mjólkin og
brætt smjörlíkið hrært út í og
svo samanblandað hveitið, lyfti-
duftið, vanillusykurinn, kardi-
mommurnar og sigtað kakóið.
Hrært létt saman. Deigið sett í
smurt skúffuform. Kakan bökuð
við 180° í ca 35 mín. Bökunar-
tíminn fer eftir stærð mótsins.
Prófið með prjóni hvort kakan
sé bökuð.
Svo má smyrja kökuna með
bræddu súkkulaði, svo hún
verði regluleg sparikaka.