Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Síða 19

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Síða 19
^Díxgur-®mxmn Laugardagur 15. febrúar 1997 - 31 Gleðisveitin Alsæla berst gegn eiturvofunni. líkt og hún) Uniform með Sam- einingartákni þjóðarinnar og síðast en ekki síst Þorraþræln- um með Gleðisveitinni Alsælu. Út með „Alsælu“ Fyrir um ári tóku nokkrir ónefndir menn sig til og hljóð- rituðu meitlaða tónsuðu við hið ódauðlega kvæði Kristjáns Jónssonar Fjallaskálds, Þorra- þrælinn. Síðastliðið sumar var svo þessari upptökju dreift í all- ar áttir, til blaða, ljósvakamiðla o.fl. sem lið í áskorun til lands- manna að kveða niður ljót öfug- mæli sem uppi höfðu verið í þjóðfélaginu. Þar er auðvitað átt við þá firru, sem óprúttnir menn höfðu komið inn í málið að kalla Ecstacy pilluna á ís- lensku, alsælu. Tókst þetta svo vel, að nú hefur enginn uppi slíka ranghermi, heldur kalla menn ófögnuðinn þegar hann er á annað borð nefndur, E-töfl- una. í framhaldinu hefur það svo gerst með þennan mögnuðu rappsprengju, sem Þorraþræll- inn svo sannarlega er með há- værum gítar og hreint glimr- andi baritónrödd í millikafla, að lagið hefur heyrst æ oftar á öld- um Ijósvakans og þá sérstak- lega á Rás 2. Er það vel og staðfestir að tilgangurinn hefur haft erindi sem erfiði. Frá þess- ari huldumannasveit (ástæðan einfaldlega sú, að það er lagið og boðskapur þess sem máh skiptir, en ekki þeir sem flytja það) mun svo frekari dáða vera að vænta á þessu ári og mun þar pönk blandast saman við rappið samkvæmt heimildum Poppsíðunnar. Þar munu væntanlega verða stígin fleiri spor í baráttunni gegn eitur- lyfjaófögnuðinum um leið og sýnt er fram á að rokk án slíks er líka til. Við fylgjumst spennt með framvindu mála. (Geoff Tate söngvari) kemur með nýja plötu innan nokk- urra vikna. S Asíðustu dögum nýliðins árs komu að venju út fjölmargar plötur, sem að ósekju hefðu mátt koma út dreifðar yfir árið. En þannig virðist þetta því miður alltaf þurfa að vera, að hásumarið og síðustu vikur hvers árs eru einu tímabil ársins sem heppilegt sýnist að gefa út. Skýringar eru helstar lítill markaður, gjafaæði um hátíðarnar o.s.frv. Ein þeirra platna sem kom út seint á síðasta ári en lítið fór f'yrir, er safnplatan Músíkblandan 1, sem Rymur gaf út (trommarinn góðkunni Rafn Jónsson stendur m.a. að þeirri útgáfu og gefur t.d. út Botnleðju). Það er meira en tilhlýðilegt nú að gefa þess- ari plötu gaum, því ekki aðeins er dável að henni staðið þegar á heildina er litið, heldur er hún líka staðfesting svo ekki verður um villst, hversu rnikil gróska á sér nú stað í íslenskri popp og rokktónlist. Reyndar er e.t.v. ekki hægt að segja að um eitthvað byltingarkennt eða mjög frumlegt sé að heyra í þeim 15 lögum með jafnmörg- um flytjendum sem eru á plötunni. En það eru hins vegar ótvíræð gæði og viss ferskleiki sem þarna er um að ræða og umframt allt HÆFILEIKARÍKT ungt tónlistarfólk, sem getur samið og flutt góða tónlist. Að öllum líkindum fyrir utan Krit- Músíkblandan 1. Góður vitnisburð- ur um gróskuna í íslenskri popp- og rokktónlist. ► ínu Eysteinsdóttur, með lagið Lumma, sem sendi frá sér sinn afbragðs frumburð, Litir, árið 1995, eru aðrir á Músíkblönd- unni að stíga sín fyrstu spor á útgáfubrautinni. Þrjár hljóm- sveitir frá Akureyri, Yellowbilli- es, Fire og Mýranda, sem þeirra er reyndust vegna tölu- verðs dansleikjahald, má fyrst nefna sem dæmi um góð tilþrif á plötunni. Óttinn með Mýranda er grípandi og kraftgott popp- lag, sem minnir í senn á Grafík og Dire Straits. Lil Marylin með Fire er stigmagnandi rokklag, þar sem Páll Steindórsson söngvara Mýranda er einnig til staðar við hljóðnemann. Every day, every night með ungu mönnunum í Yellowbellies er svo gríðarlega grípðandi rokk- seiður og eitt besta lag plötunn- ar ásamt lagi Kristínar, Kissing goodbye með söngvaranum Gunnari Narvasyni (sem er frá Akranesi eins og Kristín og nýt- ur dyggrar aðstoðar dáða- drengsins Orra Harðarsonar „Forsetar Bandaríkjanna" eru hressir náungar frá Seattle, sem nú fá að finna fyrir fallvaltleika frægðarinnar. Frægðin að að frægðin sé fallvölt, er nokkuð sem hinir ann- ars bráðskemmtilegu drengir í Seattletríóinu Pre- sidents of the USA, mega nú horfast í augu við. Eftir að hafa fengið fljúgandi start með fyrstu samnefndu plötunni sinni árið 1995, sem selst hefur í milljónum eintaka og verið á stanslausri sigursælli tónleika- ferð um allan heim í rúmt ár, virðist nú nokkuð bakslag hafa komið í seglin hjá sveitinni. Önnur platan, sem einfaldlega nefndist PotUSA II og kom út sama dag og forsetakosning- er fallvölt arnar fóru fram sl. haust, hefur alls ekki náð að fylgja hinni fyrri eftir og segja félagarnir sjálfir í hreinskilni, að hún hafi „floppað“, farið fyrir ofan garð og neðan, eins og það heitir á góðri íslensku. Þeir láta þó ekki deigan síga og segjast ætla að halda ótrauðir áfram. í myrkr- inu er líka ljós, því tónleikar t.d. á Bretlandi hafa gengið bærilega og á dögunum voru „Forsetarnir" svo lilnefndir til tveggja bresku tónlistarverð- launanna. Sem besta nýja al- þjóða sveitin. Gamlir draugar í kjölfar vaxtar og viðgangs nýpönksins. hafa ekki bara nvjar sveitir verið áber- andi, lieldur líka margar þær sem á sínum tíma skópu þaö. Ein þcirra er hin ensk/skoska Exploded, sem margir gamiir pönkar- ar muna eflaust eftir. Ilana elta nú hins vegar gamlir draugar þegar iýrsta tón- Ieikaferðin í um áratug or að heijast, því sumir klúbb- eigendur, þar sem ráðgert var að sveitin kæmi fram, viija okki fá hana. Ástæð- an? Jú, síðast þegar W. Bu- chan og félagar voru staddir á þessum stöðuin, urðu víst oinhver læti og skemmdir vumar. Þetta finnst þeim Exploded- mönnum auðvitað súrt, ekki síst vegna þess að þeir muna bara ekkert eftir þessu því svo langt er um liðið. • David karlinn Bowie er áfram í sviðsljósinu og nú fyrir að vera heiðraður með góðum hætti. Á miðvikudag- inn var honum nefnilega út- hlutað stjörnu í hinum heimsfræga félagsskap, Hollywood Walk of fame í Hollywood Boulevard. Fór athöfnin fram með pompi og prakt og er stjarnan hans Bowie númer 2083. • Dansfyrirbærið kraft- mikla, The Prodigy, sem telst vera í hópi dyggustu íslands- vina sem sögur fara af (hafa komið allavega þrisvar til landsins og eru víst enn á leiðinni að sögn) er nú á mikilli siglingu og virðist stefna hraðbyri að heims- vísufrægð. Lagið Breathe fór fyrir skömmu á toppinn í Bretlandi líkt og Firestarter gerði í fyrra og er nú smá- skífan með laginu að ná svipuðum árangri víðar t.d. í Ástralíu, þar sem hún var inni á topp 5 fyrir rúmri viku. Bandaríkin eru svo næst, en þar er nú Prodigy að halda í tónleikaferð. • Rás 2 fær prik fyrir að út- varpa ágætum tónleikum Blur um gervihnött á mánu- daginn var. Voru þetta „leynilegir" útgáfutónleikar sem fram fóru í London As- toria þar sem Damon og fé- lagar kynntu nýju sam- nefndu plötuna, sem kom út sama dag. Má búast við að hún fari á topp sölulistans í Bretlandi eins og smáskffan Beetlebum, en hvort salan verði jafnmikil og á síðustu plötum, skal ósagt látið. Breyting á tónlistarstefnu er mikil, þannig að ekki er víst að öllum hörðum Bluraðdá- endum líki. Meira um plötuna síðar. Það er orðið Plata númer sjö Ein af betri og framsækn- ari rokksveitum Banda- ríkjanna hin síðari ár, Queensryche, sem kemur frá Seattle, en á lítið eða ekkert skylt við rymrokkbylgjuna það- an, er nú á leiðinni með sína nýjustu afurð. Nefnist hún Here in the now Fronier og kemur út annað hvort í lok mars eða byrjun aprfl. Verður þetta í heild sjöunda platan sem þessi kvintett sendir frá sér á um 15 ára ferli. Hefur sá tími að mestu verið gjöfull og hljóm- sveitin samstillt, sem best sést á því, að hún hefur verið eins skipuð frá upphafi. Heita þessir kappar nánar tiltekið, Geoff Tate, sem syngur, Michael Wil- ton og Chris DeGarmo, sem báðir leika á gítar, Eddie Jack- son bassaleikari og Scott Rock- enfield trommuleikari. Meðal glæstra verka Queensryche eru t..d. Rage for order, The empire og meistaraverkið Operation midcrime. i

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.