Dagur - Tíminn Akureyri - 20.03.1997, Qupperneq 6
18 - Fimmtudagur 20. mars 1997
PÁSKALÍFIÐ í LANDINU
Jlagtcr-'ðltmimr
Á Stokkseyri hefur
Þuríðarbúð verið
opnuð eftir miklar
endurbœtur.
ASuðurlandi bjóðast ýmsir
möguleikar til afþreying-
ar um páskana og ferða-
þjónusta á svæðinu er ótrúlega
íjöibreytt. Ferðaþjónustuaðilar
á Suðurlandi taka ekkert
páskafrí og opið er í söluskálum
og veitingastöðum um allt Suð-
urland þessa miklu ferða-
mannahelgi. Svo er ábyggilega
sveitaball í næsta nágrenni.
Jöklaferðir og sumar-
bústaðir
Fyrir þá sem vilja gera eitthvað
óvenjulegt í fríinu eru snjó-
sleðaferðir á Mýrdalsjökli sér-
stök upplifun og hægt er að
fara í jeppaferðir upp um ijöll
og íirnindi í nágrenninu. Hjóla-
báturinn sem siglir með ferða-
menn frá Vík er að heija ferðir
sínar þessa dagana. Siglt er frá
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Stóra sviðið kl. 20.00
KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI
eftir Tennessee Wiliams
4. sýn. í kvöld, fimmtud. 20. mars.
Uppselt.
5. sýn. föstud. 4. apríl.
Uppselt.
6. sýn. sunnud. 6. apríl
Örfá sæti laus.
KENNARAR ÓSKAST
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Á morgun, föstud. 21. mars.
Nokkur sæti laus.
Síöasta sýning
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
Laugard. 22. mars. Örfá sæti laus.
Laugard. 5. apríl.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Sunnud. 23. mars.
Síðasta sýning
Uppselt
Aukasýning
fimmtud. 3. apríl.
LITLI KLÁUS OG
STÓRI KLÁUS
eftir H.C. Andersen
Laugard. 22. mars kl. 14.00.
Nokkur sæti laus.
Sunnud. 6. apríl kl. 14.00.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
Á morgun, föstud. 21. mars
Örfá sætl laus.
Laugard. 22. mars
Uppselt.
Athyglj er vakin á að sýningin
er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hieypa gestum Inn
i salinn eftir að sýning hefst.
Miðasalan er opin mánudaga og þriðju-
daga kl. 13-18, frá miövikudegi til sunnu-
dags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýning-
ar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti
símapöntunum frá kl. 10 virka daga.
! 1 l i
LáiwBlS M 35 [^lísjjaLjsjy
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
Kór Leikfélags Akureyrar
Kossar
og kúlissur
Samkomuhúsið 90 ára
Söngur, gleði gaman
Laugard. 22. mars kl. 20.00.
Síðasfa sýning
Athugið breyttan sýningartíma.
Afmælistilboð
MiSaverð 1500 krónur.
Börn yngri en 14 ára 750 krónur.
MiSasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram aS sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Simi í miSasölu: 4ó2 1400.
- besti tími dagsins!
Ein óvenjulegasta uppskrift að eftirminnilegu páskafríi væri vitaskuld að heimsækja ferðamannafjósið á Lauga-
bökkum undir Ölfusi. Heyra kýrnar baula, fyigjast með þeim éta heyið og hápunkurinn er vitaskuld þegar Þor-
valdur Laugabakkabóndi mokar flórinn, mykjunni út úr fjósinu. Mynd: -sbs
Vík milli Reynisdranga og útí
Dyrhólaey. Rétt austan við Vík
er Kirkjubæjarklaustur þar sem
Freyvangs-
leikhúsið
Sýnum firna
fyndinn gamanleik:
„Meb vífib
í lúkunum"
eftir Ray Cooney
Leikstjóri: Hákon Waage
11. sýning laugard.
22. mars kl. 20.30
12. sýning laugard.
22. mars kl. 23.30
Miðnætursýning
13. sýning miðvikud.
26. mars kl. 20.30
14. sýning fimmtud.
27. mars kl. 20.30
15. sýning laugard.
29. mars kl. 20.30
16. sýning mánud.
31. mars kl. 20.30
Miöapantanir í síma
463 1195 milli kl. 18 og 20.
Á öðrum tímum er hægt ab
panta í gegnum símsvara.
veðursæld er mikil og náttúru-
fegurð rómuð og margt
skemmtilegt að skoða. Gaman
er að skoða gömlu bæjarhúsin
og bænhúsið á Núpsstað sem
eru í leiðinni frá Klaustri austur
á Skeiðarársand. Þeir sem ekki
hafa virt fyrir sér ummerki
hlaupsins frá því í vetur ættu að
drífa sig um páskana. Ferða-
skrifstofan Grænn ís á Selfossi
skipuleggur hópferðir á sand-
inn.
Sumarbústaðadvöl
Undanfarin ár hefur gisting í
sumarbústöðum af minni gerð-
inni notið mikilla vinsælda.
Fjölmargir ferðaþjónustuaðilar
hafa komið sér upp slíkri að-
stöðu og má þar nefna Gesthús
á Selfossi, ferðamannaþorpið
Ásgarð á Hvolsvelli og Hótel
Geysi í Biskupstungum.
Suðurgarður á Selfossi hefur
milligöngu um leigu á sumar-
bústöðum sem eru í einkaeign
og er eftirspurnin vaxandi. Fjöl-
margir gista einmitt í sumarbú-
stöðum um páskahelgina en
stærstu sumarhúsabyggðir
landsins eru í Árnessýslu. Það-
an er stutt að fara í skoðunar-
ferðir til dæmis á Eyrarbakka
þar sem eru söfn og afbragðs
veitingahús. Á Stokkseyri hefur
Þuríðarbúð verið opnuð eftir
miklar endurbætur. Þar verður
sett upp stutt leiksýning um
páskana þar sem brugðið er
upp myndum úr ævi Þuríðar
formanns sem var nafntogaður
sjógarpur. Skemmtilegt er að
rölta í Stokkseyrarfjöru í góðu
veðri og er ijaran einstök í sinni
röð. Ekki langt frá eru perlurn-
ar Gullfoss og Geysir og Skál-
holt er alltaf gaman að heim-
sækja. Selfoss er miðstöð versl-
unar í héraðinu og státar af
veitingastöðum og kaffihúsum í
háum gæðaflokki.
Ferðamannafjósið
vinsæla
Skógar undir Eyjafjöllum hafa
löngum haft mikið aðdráttarafl.
Þar hefur verið komið upp stór-
merku minjasafni þar sem
margir góðir munir eru til sýn-
is. í nágrenninu eru einnig und-
urfagrir fossar, Seljalandsfoss
og Skógarfoss.
Einn nýjasti vaxtarbroddur-
inn í ferðaþjónustu á Suður-
landi er ferðamannaijósið á
Laugabökkum, rétt fyrir utan
Selfoss. Skemmtilegur staður
fyrir börn og fullorðna og svo er
hægt að svala þorstanum á
mjólkurbarnum sem nýlega var
opnaður þar.
Þingvellir eru einn ijölsótt-
asti staður landsins. Þangað er
vinsælt að fara í bíltúra og rölta
um sögufrægar slóðir, nú eða
svala trúarþörfinni í Þingvalla-
kirkju. Sem sagt nóg við að
vera á Suðurlandi um páskana.