Dagur - Tíminn Akureyri - 04.04.1997, Síða 11
Jkgur-mmrám
Föstudagur 4. apríl 1997 - 23
FINA FRÆGA FOLKIÐ
Fran með Óskarinn
Frances McDorm-
and skapaði í
Fargo kvikmynda-
hetju sem bíófíklar
hafa aldrei fyrir-
hitt áður - sveita-
löggu komna 7
mánuði á leið. Og
hreppti Óskarinn
fyrir vikið...
rátt fyrir alla velgengnina
á síðasta ári stendur
Frances, eða Fran eins og
hún er kölluð, óhögguð á þann
tilgerðarlausa hátt sem veittu
eiginmanni hennar og mági, Jo-
el og Ethan Coen, innblástur til
að skrifa Fargo fyrir hana.
Allt gekk henni í haginn á
síöasta ári. Auk Fargo lék hún
fótboltafíkil í Lone Star og lítil
hlutverk í Primal Fear og Pa-
lookaville. „Þetta er ekki spurn-
ing um að fá stórhlutverk, held-
ur áhugaverð hlutverk," segir
þessi 39 ára gamla leikkona.
Fran er tortryggin að eðlis-
fari og að sögn vinkonu hennar
Fíolly Ilunter (The Piano) væri
hún vís til að taka velgengninni
sem dæmi um spillingu en
einhverju til að fagna. Talandi
um Óskarstilnefninguna fór
hrollur um Fran. „Það er frá-
bært að í kannski 3-6 mánuði
geta þeir stafað eftirnafnið
rétt.“
Með Óskarinn í höndunum
er nú von til að réttritunin
haldist eitthvað lengur.
Joel og Fran hittust við tökur á myndinni Blood
Simple. Sem kvikmyndafólk hafa þau verið langdvöi-
um frá hvort öðru en það breyttist með tilkomu son-
arins Pedro sem þau ættleiddu frá Suður-Ameríku.
Sonurinn er rúmlega 2ja ára og reyna þau nú að
dvelja alltaf á sama stað.
Þegar Fran tilkynnti fjölskyldunni hvað hún ætlaði að
leggja fyrir sig voru viðbrögðin: „Þar er fullt af skilnuð-
um, alkóhólisma og börnum utan hjónabands, er það
ekki?“
Ólétta lögreglukonan í Fargo.
Teitur Þorkelsson
skrifar
Nektamý-
lendan
Stærsta nektarnýlenda í
heimi er í Flórída og heitir
Club Paradise. Svæðið er
að vísu flokkað sem clothing
optional resort, eða dvalarstað-
ur með valfrelsi í klæðaburði.
Þannig mega t.d. feimnir gestir
koma í fötum inn á svæðið
þrisvar sinnum. Eftir það gerast
þeir annað hvort opinberir
striplingar og eyða dögum sín-
um á svæðinu eftir það alls-
naktir, eða þeir eru settir í
inngöngubann. Meira en áttatíu
þúsund manns dvelja í nektar-
nýlendunni á hverju ári og
fjöldi fólks býr þar að staðaldri.
Á daginn eru uppáhaldsíþróttir
striplinga, tennis og blak,
stundaðar en á kvöldin taka
veitingastaðir, næturklúbbar og
heitapottapartý öll völd.
Þrátt fyrir allt þetta er bann-
að að stunda kynlíf á almanna-
færi í nektarnýlendunni. íbú-
arnir leggja áherslu á að það sé
náttúrulegt að vera allsber og
lofa og prísa líkama sína alsól-
brúna. Konan fer allsber út að
ganga með hundinn á meðan
eiginmaðurinn bónar ljöl-
skyldubílinn eða snyrtir garð-
inn, á tippinu einu saman.
Ekki veit ég hvort Hannes
llafstein heimsótti nektarný-
lendur síns tíma en af vísu hans
að dæma hefði hann ekki kosið
að gerast opinber striplingur:
Fegurð hrífur hugann meira
ef hjúpuð er,
svo andann gruni ennþá fleira
en augað sér
Frá Þelamerkurskóla
Þelamerkurskóli auglýsir lausa til umsóknar stöðu að-
stoðarskólastjóra við skólann.
Einnig eru lausar til umsóknar stöður grunnskólakenn-
ara. Meðal kennslugreina eru: Kennsla yngri barna,
raungreinar, danska, heimilisfræði og hannyrðir.
Einnig er óskað eftir kennara eða þroskaþjálfa til að
aðstoða einn nemanda í 1. bekk.
Auk þess er auglýst eftir sérkennara til að annast
skipulagningu og kennslu unglinga á nýstofnuðu
meðferðarheimili Barnaverndarstofu að Varpholti í
Glæsibæjarhreppi.
Þelamerkurskóli er í um 10 km fjarlægð frá Akureyri. Nem-
endafjöldi er u.þ.b. 90, allir í heimanakstri. Flestir kennarar
búa á staðnum. Skólinn er mjög vel búinn kennslugögnum og
aðstaða öll hin besta, m.a. ný og glæsileg íþróttaaðstaða.
Við leitum að áhugasömu fólki sem hentar vel að starfa í fá-
mennu samfélagi.
Upplýsingar gefur Karl Erlendsson, skólastjóri í
síma 462 6555 eða 462 1772.
SýSLUMAðURINN Á AKUREYRI
Nauðungarsala
lausafjármuna
Lausafé í eigu Víkurlax ehf. verður boðið upp föstu-
daginn 11. apríl 1997, kl. 14, að beiðni Lánasýslu rík-
isins. Um er að ræða eldisfisk, afurðir, seiði, fóður og
rekstrarvörur gerðarþola, sem m.a. er að finna í fiskeld-
isstöð hans í Grýtubakkahreppi. Uppboðið fer fram á
skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, 3. hæð, Ak-
ureyri, eða á öðrum stað eftir ákvörðun upp-
boðshaldara, sem verður kynnt á fyrrgreindum stað.
Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða ávís-
anir ekki teknar gildar nema með samþykki gjaldkera.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis á skrifstofu embættisins
og þar verða einnig veittar frekari upplýsingar ef óskað
er.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
3. apríl 1997.
Ingvar Þóroddsson, fulltrúi.
/ Opinn
fyrirlestur
Laugardaginn 5. apríl mun dr. Rögnvaldur Hannesson
halda opinn fyrirlestur við Háskólann á Akureyri. Hefst
fyrirlesturinn kl. 14 og verður í húsnæði háskólans við
Þingvallastræti í stofu 16 á fyrstu hæð.
Fyrirlesturinn nefnist Hagvöxtur, kvótakerfi og veiði-
gjald.
Rögnvaldur Hannesson er prófessor í fiskihagfræði við
Noregs Handelshoyskole í Bergen. Hann lauk doktors-
prófi í þjóðhagfræði við Háskólann í Lundi árið 1974.
Rögnvaldur hefur verið kennari við háskólana í Lundi,
Bergen og Tromso og gistikennari við Háskóla íslands
og Háskólann á Akureyri. Hann hefur ritað nokkrar
bækur um fræðigrein sína, haldið fyrirlestra við
menntastofnanir í mörgum löndum og birt fjölda greina
í alþjóðlegum vísindaritum. Jafnfram hefur hann verið
virkur í umræðunni um fiskveiðistjórnun á ísiandi þrátt
fyrir langa búsetu erlendis.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.