Dagur - Tíminn Akureyri - 10.04.1997, Page 8
20 - Fimmtudagur 10. apríl 1997
FOLK
Jlagur-'QImróm
Almannaskarð
var erfitt
Stysta dagleiðin í þessu
ferðalagi var 40 km, en
þegar best gekk náðum við
að fara 140 km á dag. Það var
leiðin frá Skaftafelli og að Höfn
í Hornafirði. Margir kaflar leið-
ar voru mjög erfiðir. Þar get ég
til dæmis nefnt leiðina uppúr
Borgarfirði, um Uxahryggi og
þaðan á Þingvelli. Þar eru
miklu frekar klappir en vegur.
Eins var mjög erfitt að komast
upp Almannaskarðið og upp
Breiðdalsheiðina. Þar urðum
við að teyma hjólin," segir
Harpa Ævarrsdóttir, lögfræðing-
ur á Akureyri.
Efasemdir ýttu okkur
af stað
Sumarið 1991
hjólaði Harpa
umhverfis land-
ið, ásamt vin-
konu sinni Erlu
Fanneyju Birk-
isdóttur úr Mý-
vatnssveit.
Ferðalag þeirra
stallna tók m't-
ján daga. „Auð-
vitað var það
ævintýraþrá að
fara í svona
ferðalag," sagði
Harpa, þegar hún riijaði þetta
ferðalag upp. „Við höfðum áður
nokkrar stelpur farið í Interail
ferðalag um
Evrópu og þótti
það skemmti-
legt. Einhvern-
tíma létum við
svo hafa það
eftir okkur að
næst ætluðum
við að hjóla
umhverfis
landið. Meðal
margra kostaði
það efasemdir
og hlátur. En
það varð nátt-
úrlega til að
hvetja okkur til dáða.“
Harpa segir að þær Erla
Fanney hafi haft afar takmark-
aða þjálfun í hjólreiðum þegar
þær fóru í þetta ferðalag - ekki
síst í því að hjóla á lengri leið-
um. „Ég hjólaði um sumarið
hér í bænum og í nágrenni
hans. Það lengsta sem ég fór
var út á Dalvík og aftur til
baka. Aldrei hjólaði ég í þessum
æfingaferðum með farangur,
sem auðvitað þyngir hlassið um
helming. Ef við hefðum farið í
æfingaferð með farangur hefð-
um við sjálfsagt aldrei farið í
þetta ferðalag," segir Harpa. -
Hún segir að hún og Erla hafi
hvor um sig verið með tólf kflóa
farangur á hjólinu. Og þá voru
þær aldrei með nema það allra
nauðsynlegasta, það er tjald,
svefnpoka, dýnur, föt og mat-
væli til svo sem tveggja daga í
Harpa Ævarrsdóttir, til vinstri, og Erla Fanney Birkisdóttir á Námaskarði í
Mývatnssveit. „Þegar best gekk náðum við að fara 140 km á dag.“
„Maður lifir lengi
d svona ferðalagi, “
segir Harpa
Ævarrsdóttir um
hjólaferð sína um-
hverfis landið.
Á hjólinu sem farið var á umhverfis landið fyrir tæpum sjö árum. Harpa
Ævarrsdóttir og Ævarr Freyr sonur hennar í dag.
sS/1' * t «UmA ®P«si jKÍjÍX-: h
M TW • AA’yATBTÍ
senn.
Landið sést í öðru
Ijósi
„Maður lifir auðvitað mjög lengi
á því að hafa farið í ferðalag
sem þetta. Auðvitað sér maður
með þessum hætti landið í allt
öðru ljósi í svona ferðalagi. Ég
fer suður til Reykjavíkur nokkr-
um sinnum á ári og út um bfl-
rúðuna að sjá er þetta bara
Blöndusós, Borgarnes og svo er
maður kominn f bæinn. En í
hjólaferðalagi er þetta svolítið
meira og maður veitir íleiru eft-
irtekt," segir Harpa Ævarrs-
dóttir. -sbs.
Magnús Bergsson, formaður fjallahjólaklúbbsins, segir að fólk geti litið
við í húsnæði klúbbsins á fimmtudögum í sumar, lesið hjólablöð eða feng-
ið lánuð verkfæri.
Islantl er
Mekka hjól-
reiðamanna
Reiðhjólamenningin er allt-
af að aukast enda geta
reiðhjól verið búin svo
miklum þægindum að þau líkj-
ast fínustu limúsínum. ísland er
Mekka reiðhjólamannsins, þó
ótrúlegt megi virðast, og því
engin furða að mikiil íjöldi út-
lendinga komi hingað á hverju
ári til að hjóla upp um íjöll og
firnindi. íslendingar eru þó
sjálfir farnir að uppgötva þessa
paradís sína og hefur íslenski
flallahjólaklúbburinn skipulagt
ferðir út um allt. Þeir segja: það
er alls staðar hægt að ferðast
um ísland á hjóli!
„Við erum ferðaklúbbur en
við látum líka heyra í okkur í
umhverfis- og skipulagsmálum.
Starfið er allt rekið í sjálfboða-
vinnu þannig að það er svona
og svona,“ segir Magnús Bergs-
son, formaður klúbbsins.
Nýtt húsnæði
íslenski íj allah.j ólaklú b h u rinn
er um þessar mundir að ílytja í
nýtt húsnæði en hann hefur
fengið inni í herbergi við Aust-
urbugt 3 í Reykjavík, hjá Sigl-
ingaklúbbnum Brokey í Reykja-
víkurhöfn og verður nú farið af
krafti í að skipuleggja sumar-
starfið.
Vegleysur í óbyggðum
Klúbburinn verður með ferðir
út um allt í sumar, meðal ann-
ars ágætis byrjunarferð á
Reykjanesið um hvítasunnu-
helgina, og svo verður opið hús
fyrsta og þriðja hvern fimmtu-
dag í mánuði. Húsnæðið verður
svo opið hina fimmtudagana
líka þannig að menn geti
„droppað" inn, farið að lesa
hjólablöð eða fengið lánuð
verkfæri.
- En hvað skyldi Magnúsi
þykja merkilegast úr fjalla-
hjólaferðum sínum um landið?
„Vegleysurnar og bflleysið í
Ódáðahrauni. Það er stórkost-
legt að hafa ekki bfl fyrir aug-
um í tvo sólarhringa," segir
hann. -GHS