Dagur - Tíminn Akureyri - 10.04.1997, Síða 10
22 - Fimmtudagur 10. apríl 1997
|Dagur-®mimn
RADDIR FOLKSINS
Frá lesendum...
Heirnilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58, 602 Akureyri eða
Þverolti 14 Reykjavík. Netfang: ritstjori@dagur.is, Fax: 460 6171
Bréfleiðis...
Meðlagsgreiðslur
- eru tölurnar raunhæfar?
Meðlagsgreiðslur er
ávallt hægt að ræða um
og hinn gullni meðal-
vegur er vandfundinn. í þjóðar-
sálinni fimmtudaginn 6. mars
kom fyrirspurn um greiðslur
feðra vegna framfærslu barna
sinna. Upphæðin sem reiknuð
er til meðlags er kannski svo
há, en gengið er út frá að móðir
leggi sömu upphæð á móti föð-
urnum. Hafi einstaklingur mörg
meðlög, þykir mörgum nóg um.
Tökum lítið dæmi um meðalein-
staklinga.
Séu börnin fleiri aukast
greiðslur frá ríki í formi barna-
bóta og barnabótaauka. Ég er
þess fullviss að margar mæður
eigi erfitt að sjá framfærslu
barna sinna með þessum aug-
um. Einhverjir feður eru eflaust
aflögufærir með meira og
margir láta börn sín njóta þess.
Að sama skapi eru margar ein-
stæðar mæður sem hafa það
ágætt. Greiðslur feðra falla ekki
niður þó svo að barn dvelji hjá
honum hluta úr árinu. í um-
ræðu sem þessari gleymist oft
að feður jafnt og mæður þurfa
að halda heimili, þeir giftast og
stofna ijölskyldu. Feður standa
nær alltaf einir straum af ferða-
lögum til að umgangast börn
sín sem getur verið kostnaðar-
samt. Því ættu foreldrar ekki að
skipta þeim kostnaði á milli
sín? Faðir þarf jafnvel að ferð-
ast utan eða koma barni sínu til
íslands, annars fær hann ekki
að sjá barnið. Það er að mörgu
að hyggja þegar skilnaður á sér
stað og varla hægt að setja eina
formúlu um öll mál, en sama
grunn verður að nota og er það
meðlagsgreiðsla sem Trygg-
ingastofnunin reiknar út. En
vert er að hafa í huga að
ástæðulaust er að féfletta karl-
menn við skilnað.
Helga Dögg Sverrisdóttir.
Tekjur móður: 80.000 krónur
Útborguð laun: ca. 65.000 krónur
Greiðslur vegna barna:
1 barn 2 börn
meðlagíoður: 10.740 kr. 21.480 kr.
barnab. og auki: 12.000 kr. 27.730 kr.
framlag móður: 10.740 kr. 21.480 kr.
mæðralaun: 3.200 kr. (skattsk.)
33.480 kr. 73.890 kr.
Ráðstöfunartekjur með 1 barni : ca 87.740
kr.; 2 börnum ca. 117.410 kr.
Tekjur föður: 100.000 kr.
Útborguð Iaun ca. 75.000 kr.
Meðlag m. 1 barni: 10.740 kr.
Meðlag m. 2 börnum: 21.480 kr.
Ráðstöfunartekjur með 1 barni ca: 64.390 kr.
með 2 börnum ca. 53.660 kr.
Meindýr í mannsmynd
Uppáhalds konunafn ís-
landssögunnar er í mín-
um huga Auður. Nafn
konu sem þreyði og þorði. Auð-
ur Vésteinsdóttir var kona sem
bar nafnið með reisn og rétti.
Hún var eiginkona eins af fræg-
ustu útlögunum. Hún var kona
sem barðist hiklaust fyrir ást-
vini sína við ofurefli. Kona sem
auðgaði samtíð sína og söguna.
Á þessum tíma, fyrir rúmum
þúsund árum, var hvorki ríkis-
stjórn né lögregla. Menn sáu
um sín mál og keyptu sér hjálp
ef þurfti. Þá skipti öllu að þora
að vera heiðarlegur. Þannig
héldu menn virðingu sinni. Án
hennar voru þeir einskis metn-
ir.
Nú, svo langt frá tímum Auð-
ar, er margt með ólíkum hætti.
Virðing er í dag metin í eignum
fremur en mannkostum. Fyrir
allra augum geta andlegir
óþrifagemsar spilað stóra rullu.
Á dögum Auðar urðu eitur-
byrlarar hvorki ríkir né langlífir
og var ekki til sparað að losa
samfélögin við slík meindýr. Ef
rottur koma í hús okkar þykir
sjálfsagt að eyða þeim. Þó eru
þær ekki eins hættulegar og
meindýr þau, er taka á sig
mannsmynd og lítt er hreyft
við. Eiturlyfjasalar eru þau
óþverrakvikindi sem mannfé-
lögum stafar mest hætta af.
Þeir eru meindýr sem fyrst og
fremst drepa börn og unglinga.
Veikgeðja fullorðið fólk er þó
stór hluti fórnarlamba.
Nýlega íletti Hrafn Jökuls-
son, ritstjóri Mannlífs, ofan af
einu slíku meindýri sem hafði
hreiðrað um sig meðal manna.
Ef þeir sem eiga að halda
ófögnuði slíkum niðri virka öf-
ugt, á að skipta strax og sækja
þá til saka.
Hugsið ykkur hjón sem horfa
á barnið sitt í vöggunni. Byrjað
að standa upp í rúminu. Er að.
fara í leikskólann. Er sex ára að
koma úr sínum fyrsta alvöru
skóla með allar sögurnar. Ungl-
ingurinn sem alla sína tíð hefur
lagt traust sitt á aðra og er því
engu síður en hin yngri auðveld
bráð glæpamanna. Hvað ætla
menn að horfa lengi, nær að-
gerðarlaust, á óþverrakvikindi
lifa iúxuslífi á að eyðileggja alla
þessa hamingju? Um allt land
eru meindýr að drepa börnin
okkar og leggja heimili í rúst.
Og fólkið horfir á.
Meðan karlar samfélagsins
eru að átta sig á hættunni,
skora ég á konur að stofna
samtök til höfuðs eiturlyfjasöl-
um, því þeir eru sannkölluð
meindýr í mannsmynd. Öll börn
eru í hættu meðan úrþvætti
þessi eru ekki gerð óskaðleg.
Þjóðfélag okkar er með ábyrgð-
arlausan leikaraskap í þessum
málum. Því þarf að breyta um-
svifalaust.
Albert Jensen,
Háaleitisbraut 129, Reykjavík.
t Meinhvmti
f*Þ
jónusta á veitingahúsum. Enn eiga íslend-
ingar langt í land með að átta sig á því að
kúnninn er að gera þeim greiða með því
að fara út að borða og það er hann sem borgar
launin þeirra. Fýlupokaheilkennin eru allt of
ráðandi og faglegri þekkingu tíðum abótavant.
Hvað er til ráða? Tillaga Meinhorns: Koma upp
hvatakerfi hjá öllu starfsfólki í sal. Leyfa þeim
að njóta örlítillar prósentu af velgengni. Víða
gert erlendis en þar er líka tipps. Sem ætti að
vera hér líka ef verðskuldað.
nnað sem þó er snjallt. Hver kannast ekki
við að finna ekki þjóninn þegar á þarf að
alda? Ákveðið veitingahús á Akureyri
hefur lausn á þessu og eflaust fleiri. Þar er ein-
faldlega hringt bjöllu þegar þjónustu er vænst.
Afar snjallt fyrir miðlungsgóð veitingahús en
væri glæpur ef um toppklassa væri að ræða.
Áfram Greifinn, en bíddu við er þetta Mein-
horn?
Dropinn sem fyllti
mælinn
Þekktur borgari á Akur-
eyri, sem við getum kallað
Jón, og er virkur í félagslíf-
inu og blandar þar með
töluvert geði við aðra, hef-
ur þann sérstaka sið að
draga nafn konu sinnar inn
í umræðurnar og segir
gjarnan konan hans, sem
við skulum t.d. kalla Guð-
rúnu, vilji gera þetta eða
hitt. Þegar aðra fjölskyldu-
meðlimi ber á góma talar
hann ætíð um dætur henn-
ar Guðrúnar. Þetta veldur
iðulega þeim misskilningi
að ýmsir viðmælenda álíta
að þær séu alls ekki dætur
Jóns. Einn vinur hjónanna
hafði orð á þessu við þau
hjónin og benti Jóni á að
breyta þessari málvenju.
„Ég lagði nú ósköp lítið tU,“
svaraði þá Jón. „Það var
nú samt dropinn, sem fyllti
mælinn!“ kvað þá við í
Guðrúnu.
ÍBA, hvaö!?
Ársþing íþróttabandalags
Akureyrar, það 52. í röð-
inni, verður haldið í dag og
ekki búist við neinum átök-
um, hvorki um menn né
málefni. Það er kannski
frekar að umræður skapist
um aðstöðuleysi þeirra
kvenna sem keppa undir
nafni ÍBA í knattspyrnu og
handknattleik. Enginn vill
lengur gangast við króan-
um, hvorki íþróttafélögin
KA og Þór, sem stelpurnar
eru þó félagar í, né stjórn
ÍBA, sem segir þetta
vandamál félaganna. Fyrir
bragðið mætir æfingaað-
staða afgangi hjá stelpun-
um þegar „stóru“ félögin
úthluta æfingatímum og
því er svo komið að málið
er öllum sem að því koma
bæði til vandræða og
skammar. Hver er afstaða
eða ákvörðun Jafnréttis-
nefndar Akureyrarbæjar í
þessu máli? Er málið
kannski ekki nógu
„mjúkt“?
AUieimurinn á
geisladiski
Oskadraumur allra áhuga-
manna um stjörnufræði er
að eignast geisladiskana
(CD-ROM) Red Shift og Red
Shift-2. Útgefandinn er Ma-
ris Multimedia í Bretlandi.
Með þessum diskum, sem
teíla saman texta, vídeó,
myndum og hljóði, er hægt
að kanna alheiminn á
tölvuskjá. Þessir diskar
hafa vakið verðskuldaða
athygli vegna gæða þess
efnis sem á þeim er. Þessir
geisladiskar eru á viðráð-
anlegu verði vegna þess að
höfðurstöðvar Maris Multi-
media eru í Moskvu þar
sem starfa hundrað kerfis-
fræðingar, hönnuðir og
grafískir teiknarar að því
að setja saman efni.
Umsjón:
Geir A. Guðsteinsson