Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Page 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Page 2
14 - Laugardagur 28. júní 1997 jDagur-CÍItnrirat Bamahomid' Viltu verða dorgmeist- ari Hafnarfjarðar? Og ertu 6-12 ára? Þá skaltu skunda til Hafnarfjarðar þriðju- daginn 1. júlí kl. 13.30-15 því þar á að halda dorgveiðikeppni á Flensborgarbryggju. Hægt er að fá veiðarfæri lánuð á staðn- um. Vegleg verðlaun verða svo veitt fyrir þá sem veiðir flesta fiska og stærsta fískinn. Benjamín dúfa Islensk sem enskulæs börn geta mætt í Norræna húsið á mánu- daginn kl. 19.00 þar sem bíó- myndin Benjamín dúfa, sem Gísb Snær Erlingsson gerði eftir sögu Friðriks Erlingssonar, verður sýnd með enskum texta. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Fornbíiar Þeir eru ófáir strákarnir sem læra að segja Toyota og Hyund- ai um svipað leyti og mamma/babba. Árbæjarsafnið er staðurinn fyrir svoleiðis stráka (og stelpur) á sunnudag- inn ki. 13-17 því þá verður Fornbílaklúbbur fslands með sýningu. Kl. 14-15 verður svo kassabflakappakstur auk brass- bands o.fl. Davíð Jónsson, 6 ára „Pað sem mér finnst skemmti- legast að gera á daginn er að vera úti og poxa. Pá notum við sleggjur og hend- um í mgndirnar. Pað er líka skemmtilegt að vera í körfubolta og fótbolta en á veturna œfi ég síðan handbolta. “ Tryggvi Gunnarsson, 7 ára „Pað er alltaf gaman að leika sér við vini sína eins og Bjarna. Einar, Níels og Tómas. Pað er samt líka ágœtt að leika sér við vinkonur sínar. “ Stefán Ævar Jóhannesson, 7 ára „Mér finnst mjög gaman að fara í heimsókn til ömmu minnar. Pað er ekkert dót hjá henni og við erum bara að tala saman. Ef ég vil leika mér eitt- hvað þá hef ég bara með mér alls konar hluli." Haukur Ingólfsson, 6 ára „Á sumrin þá œfi ég fótbolta með KA sem er rosa- lega gaman enda KA besta félagið. Svo spila ég líka körfubolta þó ég œfi hann ekki. “ Sigurgeir Halldórsson, 5 ára „Pað er skemmtilegt ífót- bolta, körfubolta og öllum íþrótt- um. Ég œfi líka með KA og Erl- ingur þjálfar okkur." LIFIÐ I LANDINU Fallegasta maraþonleið í heimi Sumir hlauparar eru harðari en aðr- ir þegar kemur að Mývatnsmaraþon- inu og láta sig ekki vanta. Ein þessara hlaupafríka er Finnur Friðriksson. Um helgina verður hlaupið maraþon og hálf-mara- þon, tíu kflómetrar og skemmtiskokk í hinu árlega Mývatnsmaraþoni. Hlaupið er nú þreytt í þriðja sinn og er hlaupið á veginum í kringum vatnið. Hringurinn er þó ekki nógu stórt fyrir fullt maraþon- hlaup svo þeir hiauparar sem ætla alla Íeið þurfa að fara hluta leiðarinnar tvisvar sinn- um. Þeir hlauparar sem ætla sér í styttri vegalengdirnar sjá því aðeins hluta vatnsins með- an á keppninni stendur. Glæsileg umgjörð „Mývatnsmaraþon er náttúru- legasta hlaupið sem hlauparar geta tekið þátt í,“ segir Finnur. „Það er líka enginn sem efast um það að þetta er fallegasta maraþonleið sem völ er á í heiminum fyrir þá sem hlaupa fullt maraþon. Umgjörðin í kringum hlaupið er líka sérlega glæsileg, góður aðbúnaður fyrir hlauparana þegar þeir mæta á svæðið, vel staðið að skráning- armálum og verðlaun bæði fyrir þá sem vinna í hlaupum og svo eiga allir möguleika á því að hreppa aukaverðlaun sem hing- að til hafa ekki verið neitt slor. Þetta er því mjög góður pakki í heild.“ Vellíðunarhobbí „Hlaupið byrjar sem vellíðun- arhobbíi, snýst síðan út í ákveð- ið kikk þegar maður fer að taka þátt í keppni en aðallega er það þó útiveran sem skiptir máli. Ég er kannski gamaldags og vit- laus en ég skil ekki til hvers menn eru að brölta inni í svita- storknum leikfimisal þegar þeir geta verið úti í ferskasta lofti í heimi,“ segir Finnur. Hann hef- ur tekið þátt í þau skipti sem hlaupið hefur verið haldið, hlaupið tíu kflómetra og sigrað í bæði skiptin. En hann býst þó ekki við því að standa sig eins vel í þetta skiptið. „Nei, ég get ekki búist við eins góðum ár- angri. Ég fékk bronkitis í vetur og þegar ég komst í gegnum það þá snéri ég mig illa þannig að ég gat lítið æft. Eg ætla samt að taka þátt. Læt þetta hlaup alls ekki fara framhjá mér.“ hbg Þessi saga gerist fyrir langa löngu þá er sólin var bœði fögur og feit, hnöttótt og heit og einstaklega hlát- urmild. Á hverjum morgni sungu dýrin og mennirnir sólarsönginn svo að jörðin snérist í hringi af gleði. En á annarri plánetu í sólkerf- inu bjó Hnetukóngurinn ásamt Plágu litlu prinsessu. Kónginum þólti svo vœnt um dóttur sína að hann gat ekki neitað henni um neitt. En Plága prinsessa átti af- mœli og vesalings kóngin- ■um datt ekkert í hug til að gefa henni því hún átti allt. En hann dó samt ekki ráða- laus því honum datt í hug að gefa henni sólina. Það er á þessu andartaki í sögunni sem kemur í hlut áhorfenda leikhússins 10 íingur að sýna hvað í þeim býr því með því að gefa Plágu prins- essu sólina gætu öll dýrin á jörðinni króknað úr kulda og það þýðir ekki. Það er því í höndum barnanna að koma með ráð til að bjarga heimin- um. Leikhúsið 10 fingur eru nú að sýna glænýja sumarsýningu um Plágu sem er tilvalin helg- arskemmtun fyrir pabba og mömmur, prinsana þeirra og prinsessurnar. Sýningin er ólík því sem við eigum að venjast og er gerð í skuggaleikhúsi. Frum- samin tónlist er fiutt undir leiknum og gerir hana að kon- fekti fyrir augu og eyru. Leik- stjóri er Helga Braga Jónsdóttir, handritið er eftir Hallveigu Thorlacius og Helgu Arnalds og tónlistina samdi Eyþór Arnalds. Helga sér einnig um leikinn og gerði brúðurnar og leikmynd- ina.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.