Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Side 3
Æaðm-®ímhm
Laugardagur 28. júní 1997 - 15
LÍFIÐ í LANDINU
Mynd: GS
Bollar á ferð
Á Kaffi Karólínu í
Listagilinu á Akureyri
stendur yfir fremur
óvenjuleg listmuna-
sýning þar sem
gestir kaffihússins
eru þátttakendur.
Verkin á sýningunni eru unnin
af leirlistakonunni Jenný
Valdimarsdóttur, sem búsett
er á Akureyri. Sýningin saman-
stendur af bollum sem gestir Karól-
ínu fá tækifæri til að drekka úr en
einnig eru sykurkör á borðum
ásamt fleiri munum eftir Jenný.
Jenný lærði leirkerasmíði í Dan-
mörku við Den Danske Husflidshöj-
skole í Kerteminde árin 1989 til
1991. „Þetta byrjaði sem áhugamál.
Ég sótti almennt námskeið þar sem
ég lærði að renna og ákvað síðan
að læra meira og fór í tveggja ára
nám. Ætli ég hafi ekki verið þessi
týpíski íslendingur, við ætlum okkur
alltaf eitthvað með því sem við er-
um að gera.“ Jenný segir það ólíkt
Dönunum. „Þeir sækja svona nám-
skeið upp á félagsskapinn, eru
miklu meira í því að „hygge sig“
með þessu.“
Leira á eldhúsbekknum
Jenný talar um lélega vinnuað-
stöðu. „Ég er með rennibekkinn
niðri í kjallara í lítilli gluggalausri
geymslu, ég mála og skreyti hlutina
hérna á eldhúsbekknum, geri líka
ýmsa muni hérna sem ég renni
ekki, og svo brenni ég og glerja í
ofninum mínum sem er staðsettur
niðri á eyri. Þetta er ótrúlega lýj-
andi til lengdar og núna þegar ég
er staðráðin í því að leggja leirkera-
smíðina fyrir mig þá verð ég að
gera eitthvað í vinnuaðstöðunni.“
Hún segir það líka vera upp á af-
köstin. „Það felur í sér tímasparnað
að þurfa ekki alltaf að vera að þrífa
eftir sig á hverjum stað sem er líka
notaður til annars brúks.“
Blái liturinn tengir
saman
Jenný hefur tekið þátt í samsýning-
um hér á landi en einnig í Dan-
mörku og í Þýskalandi. Sýningin á
Karólínu er þó ólík hinum sýning-
unum enda nær eingöngu um bolla
að ræða. „Mig langaði að vera með
eitthvað sérstakt og datt þetta í
hug. Það er gaman að leyfa gestun-
um að nota listmunina. Ég hugsaði
þetta líka sem n.k. farandsýningu
og þegar henni lýkur hérna fer hún
á Kaffi Kverið í göngugötunni.“
Bollarnir eru allir með bláan
grunnlit, einhverja liti með þessum
bláa og með mismunandi munstri.
„Ég skapa þannig ákveðin stíl og
blái liturinn tengir sýninguna sam-
an.“ Jenný notar mikið sömu litina í
verk sín. „Það eru 4 litir sem ég
nota mest og ég lít svolítið á þá sem
mína. Þá liti líður mé líka vel með.“
Mest í nytjamunum
„Mér finnst skemmtilegast að vinna
að nytjamunum. Þá eru það aðal-
lega bollar en einnig skálar, kerta-
stjakar og auðvitað margt fleira. Ég
vinn að öllu mögulegu og var t.d. að
vinna skúlptúr núna.“
Jenný segist ekki geta svarað því
hvert hún sæki hugmyndirnar að
mununum. „Ég byrja að vinna að
einhverju og það er alltaf eitthvað
sem truflar þannig að ég enda oft
með allt annan hlut en ég hafði
hugsað mér í upphafi. Hugmyndir
koma líka án þess að maður geri
sér grein fyrir því. Það er svo margt
í umhverfinu sem verkar á mann.“
hbg
Maður
vikuniiar
Helgarpósturinn Páll (Vil-
hjálmsson) er maður vik-
unnar. Það sem helst
hann varast vann, varð þó að
koma yfir hann. Allir hinir gæj-
arnir á ijölmiðlunum hafa
hlakkað yfir honum eins og
hrægammar vegna þess að 40%
eignarhlutur Alþýðubar.dalags-
ins í blaðinu hans gerir hann
„ósjálfstæðan“ samkvæmt öll-
um þeim samsæriskenningum
sem hann sjálfur hefur hlaðið
upp í vetur. DV fékk útrás, Dag-
ur-Tíminn gat ekki haldið í sér
prakkaraskapnum, Stöð 2 spil-
aði með og svo varð Jón sjálfur
höfuðpaur og erkióvinur Ölafs-
son svo djarfur að biðja um op-
inbera rannsókn. Á meðan sór
heill stjórnmálaflokkur HP af
sér! Geri einn ritstjóri minna á
einni viku! Maður vikunnar,
ekki vafi.
>s
Helgarpotturinn
Þórir Jökull
Þorsteinsson.
Kolfinna Baldvins-
dóttir.
Margt presta var á presta-
stefnu á Akureyri í vikunni en
sérstaka athygli vakti þó séra Þór-
ir Jökull Þorsteinsson, sóknar-
prestur á Selfossi, sem mætti
norður með sjónvarpsþulunni vin-
sælu, Ragnheiði Clausen. Þótti
parið afar ástfangið og ríkir því
mikil kæti á Selfossi. Selfyssingar
telja prestastefnu til marks um al-
varleika sambandsins og vilja
gjarnan fá prestsmaddömu á Suðurlandið.
Það er þó ekki víst að það verði í nánustu
framtíð því að Þórir Jökull og Ragnheiður
eru bara nýlega byrjuð saman.
Umsóknarfrestur um starf rit-
stjóra Stúdentablaðsins rann
út í vikunni og verður farið að kalla
í viðtöl í næstu viku. Heyrst hefur
að Kolfinna Baldvinsdóttir, sjón-
varpskonan úr Dagsljósi, hafi hug
á að skipta um svið og hafi hennar
nafn verið það þekktasta í hópi
umsækjenda. Sjálfsagt kemur Kol-
finna sterklega til greina í hugum
þeirra Röskvumanna sem stjórna
Katrín Jakobs
dóttir.
Sting.
Friðrik Þór
Friðriksson.
stúdentaskrifstofunum í háskólanum enda
rösk kona með afbrigðum og reynd úr fjöl-
miðlaheiminum.
Prúðbúið og stillilegt fólk steðj-
aði á Sting-tónleikana í vikunni
og greinilegt að maðurinn var á
hátindi sínum fyrir um 10-15 árum
því fólk í blóma barneignaraldurs
var þar í meirihluta og framsettar
konur í hverju horni. Eitthvað var
þarna líka af fræga fólkinu á íslandi
og mátti meðal annarra sjá þar
Davíð Þór Jónsson, erótíkurrit-
stjóra og útvarpsmann, og Katrfnu
Jakobsdóttur, stigavörð Gettu betur og
dúx, rölta um Höllina hönd í hönd...
Sting hefur um 20 ára starfs-
reynslu í poppinu og veit
hvaða brögðum skal beita til að fá
áhorfendur á sitt band. Hann hældi
þessu geysilega fallega landi (og
byrjaði reyndar á því strax á Leifs-
velli og hafði landið þá aldrei aug-
um litið) við góðar undirtektir og
eftir 2-3 lög bauð hann íslendingi
upp á svið með sér til að taka lag-
ið. Heitur aðdáandi tók undir sig stökk,
kynnti sig fyrir kappanum sem Jonni/Jolli
eða álíka. Sting kunni sig og nýtti sér
tungumálabrenglið til að vekja hlátur í
salnum og kallaði drenginn Lolly...
Það er uppsveifla hjá saumakonum og
blómaskreyturum að kreppu lokinni
og í brúðkaupsvertíð miðri. Meðal þeirra
sem ákváðu að ganga upp að altarinu var
listamaðurinn og Bubbabróðirinn Tolli,
43ja ára, og Guðrún Magnúsdóttir, 25 ára.
Staðurinn: Reynivellir í Kjós. Stundin: sjálf-
ur þjóðhátíðardagurinn.
Rjóminn af kvikmyndagerðar-
liði hefur verið á leiðinni úr
landi síðustu ár og eru fagmenn-
irnir óþreytandi við að gefa þær
upplýsingar. Eins og fram kom í
blaðinu í vikunni er Friðrik Þór
Friðriksson á góðri leið með að
stofna útibú Kvikmyndasamsteyp-
unnar í London. Fjárhagslega yrði
það honum þó léttara að fljúga til
Hamborgar því Hamborgar-borg
mun hafa boðið honum 30 milljónir fyrir
það eitt að setjast þar að...