Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Side 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Side 6
18 - Laugardagur 28. júní 1997 ,Hagur-®utTOm LIFIÐ I LANDINU Sjálfstæðismenn hafa haft lyklavöld í menntamálaráðuneytinu vel á annan áratug. Það er Björn Bjarnason sem stýrir þeim málaflokki núna og segist hann kunna vel við sig þar. Hann vill ekkert segja um hugsanlega upp- stokkun í ríkisstjórninni. „Á meðan ég sinni þessum áhugaverðu verkefnum leiði ég ekki hugann að öðru,“ segir hann. Stofnanir geta fofdð um koll Sjálfstœðismenn hafa haft lyklavöld í menntamálaráðu- neytinu vel á ann- an áratug. Að und- anfórnu hafa verið harðar umrœður um menntamál, ís- lenskir grunnskóla- krakkar hafa komið illa út úr saman- hurði við jafnaldra sína í öðrum löndum og talið var að deilur um Lána- sjóð íslenskra námsmanna stofn- uðu stjórnarsam- starfnu í hœttu. Menn hljóta að velta ýmsu fyrir sér, til dœmis því hve- nœr skrefið verði stigið til fulls og Lánasjóðnum komið í hendur bankanna. Björn Bjarnason mennta- málaráðherra segir að margir hafi talið það eitt af erfiðustu pólitísku viðfangs- efnum ríkisstjórnarinnar að samræma stefnu Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks hvað varðar Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna, LÍN. Ung- ir framsóknarmenn hafi til dæmis ályktað að það ætti að skipta um menntamálaráð- herra vegna málsins og stjórn- arandstaðan hafi reynt að koma af stað ágreiningi milli stjórnarflokkanna. Góð sátt hafi þó náðst milli stjórnarflokk- anna og samkomulag orðið í stjórn sjóðsins um úthlutunar- reglur. Hinn gamli ágreiningur sé því úr sögunni. Ekki lengur opið sár „Miðað við stóru orðin sem menn höfðu um hætturnar sem í pólitísku deilunum fólust finnst mér spurning um það hvort lánasjóðurinn flytjist yfir í bankakerfið eða tæknilegt at- riði,“ segir Björn Bjarnason. „Hitt er ljóst að í samkomulag- inu felst aukin virkni banka- kerfisins með Lánasjóðnum. Það var þó aldrei markmiðið í sjálfu sér að bankavæða sjóð- inn.“ Björn segir að sjóðurinn taki að sér að vera baktrygging gagnvart bönkum og borga kostnað sem viðskiptamennirn- ir verða fyrir vegna bankavið- skiptanna. í lausn stjórnar- flokkanna felist að það verði auðveldara að tengja saman sjóðinn og bankana. Það hafi þó aldrei verið markmiðið af sinni hálfu heldur hitt að ná sátt án þess að stofna fjárhag sjóðsins í hættu. Stjórn sjóðsins og bank- arnir verði að koma sér saman um hvort gengið verði lengra í samstarfi þeirra. fnnan ríkis- stjórnarinnar sé LÍN-málið ekki „lengur þetta opna sár sem var.“ Það vakti gríðarlega athygli í vetur hversu íslenskir skóla- krakkar komu illa út úr erlend- um samanburði, fyrst í sjöunda og áttunda bekk og síðan þriðja og fjórða bekk. íslendingar hafa þó staðið sig vel í námi erlend- is. Björn telur að þarna hafi ekki verið um óþarfa fjaðrafok að ræða. Nauðsynlegt sé að taka slíkum skiiaboðum af al- vöru. Með því að endurskoða námskrána takist vonandi að skapa forsendur fyrir betri ár- angri. Kveðið fast að orði „Við erum að taka þátt í þessari alþjóðlegu könnun í fyrsta sinn og fáum þarna mælikvarða á skólakerfi okkar. Ef við ættum safn af svona mælingum gætum við sagt hvenær ástandið fór að versna eða hvort við hefðum alltaf verið svona léleg í stærð- fræði. Þá værum við búin að af- skrifa okkur sem stærðfræði- kunnáttumenn sem mér finnst ástæðulaust því að íslenskir námsmenn standa sig oft mjög vel í erlendum samanburði á þessu sviði. Við getum hins veg- ar ekki horft framhjá þessari rannsókn. Ég held að allir í skólakerfinu velti fyrir sér hvað þurfi að gera. Ég hef sjálfur kveðið nokkuð fast að orði um nauðsynlegar úrbætur," segir hann. Björn ræðir um breytta hug- myndafræði í skólamálum og segir að í skólum eigi að setja skýr markmið, gera ákveðnar kröfur og halda uppi aga. Þetta sé raunar svo sjálfsagt að ekki ætti að þurfa að tala um það sem hluta af nýrri hugmynda- fræði. Það sé þó nauðsynlegt. Gildismatið verði að breytast, íslendingar verði að gera meiri og strangari kröfur og setja skýrari markmið í skólunum. Kannski þurfi að stíga skref til baka og velta fyrir sér inntaki kennaramenntunar og mark- miðum í skólastarfi. Próf skipti auðvitað máh og auka megi samstarf foreldra og skóla. Vantar kannski grundvallar- breytingar á skólakerfinu? „Það verður að skerpa og segja ákveðna hluti sem menn hafa hætt að tala um en þurfa að ræða. Ég er ekki að boða heljarstökk í skólakerfinu því að það er mjög hættulegt. Ég held að það þurfi meiri hvatn- ingu, hvort sem það er heima eða í skólunum. Þrátt fyrir stór orð og heitstrengingar skortir mikið á að menntun sé metin að verðleikum, til dæmis í launaumslaginu. “ Traust skapaðist Björn segist ekki geta kvartað undan samstarfi við forystu- menn kennara. Þegar hann kom inn í ráðuneytið stóð flutn- ingur grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga fyrir dyrum. Frið- ur hafi þurfti að ríkja milli ríkis, kennara og sveitarfélaga. Hann hafi gert sér grein fyrir því að flutningurinn myndi ekki heppnast ef ekki tækist að skapa trúnað milli þessara að- ila. Fyrir hendi hafi verið viss tortryggni og menn ekki vitað til fulls hvernig taka ætti á mál- um. „Það var þó aldrei markmiðið í sjálfu sér að bankavceða sjóðinn. “ „Ég tel að það hafi verið mikil gæfa fyrir mig sem menntamálaráðherra að þetta traust skapaðist, okkur tókst að sigla þessu stóra máli í höfn í góðri sátt. Það hefur auðveldað mér öll samskipti við kennara- samtökin. Menn áttuðu sig á því að við gætum talað saman um viðkvæmustu mál og fundið að lokum sameiginlega niðurstöðu þó að við værum ekki sammála um allt. Sams konar stöðu kýs ég þegar við Qöllum um end- urskoðun á námsskránni. Þá hef ég flutt frumvarp um Kenn- ara- og uppeldisháskóla íslands sem gerir ráð fyrir því að skól- inn ráði að verulegu leyti því hvernig hann skipuleggur sitt innra starf,“ segir Björn. Hann varpar fram þeirri spurningu hvort festa eigi í lög- um skýr ákvæði um það hvers eðlis kennaramenntunin eigi að vera og bendir á að hinar Norð- urlandaþjóðirnar hafi sett slík ákvæði. Það sé greinilegt að annars staðar á Norðurlöndum vilji menn lögbinda hvernig nám kennara er skipulagt og skilgreint en sjálfur hafi hann flutt frumvarp um að hafa þetta „opið“. Hann hefur einnig talað fyrir því að fagmenntun kenn- ara verði meira metin en menntun í uppeldis- og kennslufræðum, sérstaklega í framhaldsskólunum. Einingum í uppeldis- og kennslufræði verði fækkað úr 30 í 15 þegar um er að ræða einstaklinga með mikla fagmenntun eða verk- og tæknikunnáttu. „Það var ágreiningur milli mín og kennarasamtakanna um þetta en ég hef líka fengið stuðning frá starfandi kennur- um sem telja að með þessu frumvarpi sé tekið á málinu með réttlætissjónarmið í huga en ekki þröngt hagsmunasjón- armið,“ segir hann. Menntun lýkur aldrei Björn telur ljóst að verklegt nám hafi orðið undir í skóla- kerfinu enda sýni rannsóknir að ungt fólk telji að stúdents- próf opni fleiri dyr en verknám. Kröfur atvinnuh'fsins og samspil skóla og atvinnulífs ráði miklu. Ráðherrann hefur sagt að at- vinnulífið geri ekki nægilegar menntakröfur en kveðst þó ekki segja að atvinnulífið eigi að kreíjast þess að allir verði há- skólagengnir.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.