Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Side 7
|Dagur-'3ímróm
Laugardagur 28. júní 1997 -19
•> í LANDINU
Það vakti gríðarlega athygli í vetur hversu íslenskir skólakrakkar komu illa
út úr erlendum samanburði. Björn telur að þarna hafi ekki verið um óþarfa
fjaðrafok að ræða. Nauðsynlegt sé að taka slíkum skilaboðum af alvöru.
„Skólarnir gætu tekið að sér
meiri starfsþjálfun, til dæmis
með eins eða tveggja ára náms-
brautum í framhaldsskólunum.
Hjá þjónustu- og verslunarfyrir-
tækjum er mikil hreyfing á
starfsfólki og alltaf verið að
kenna nýjum starfsmönnum.
Fólkið er rétt búið að læra og
öðlast sjálfstraust í starfinu
þegar það fer eitthvert annað.
Það er spurning hvort með
samstarfi skóla og slíkra fyrir-
tækja væri ekki hægt að hjálpa
krökkum. Brottfall á framhalds-
skólaaldri er áhyggjuefni. Ef
eins eða tveggja árs náms-
brautir eru einskis metnar af
vinnuveitendum hvers vegna
eiga krakkarnir þá að stunda
slíkt nám?“ spyr hann og bætir
við að Borgarholtsskóli og fleiri
skólar hafi verið að fikra sig
áfram á þessari braut.
„Ég er ekki að boða
heljarstökk í skóla-
kerfinu því að það
er mjög hœttulegt.“
„Menntun lýkur aldrei. Öfl-
ugustu fyrirtæki landsins leggja
mikið í endurmenntun á starfs-
mönnum því að breytingarnar
eru svo örar og kröfur breytast.
Allar tölur sýna að atvinnuleysi
er mest hjá þeim sem eru verst
menntaðir. Ég tel að það þurfi
að tengja atvinnulífið inn í
skólakerfið og líta á það sem
menntun en ekki félagslegt úr-
ræði. Framhaldsskólarnir hafa
nú tækifæri til að láta meira að
sér kveða sem fullorðins-
fræðslumiðstöðvar," segir ráð-
herrann.
RÚV árið 2020
Þegar talið beinist að Ríkisút-
varpinu, skipulagsbreytingum
þar innan húss og slakri
frammistöðu í samkeppni við
Stöð 2 kemur í ljós að Björn
Bjarnason er mikill áhugamað-
ur um nýja tækni. Hann horfir
til framtíðar hvað Ríkisútvarpið
varðar og bendir á að gríðar-
legar breytingar eigi sér stað á
þessu sviði. Ríkisútvarpið sé
tæknilegt og þverpólitískt við-
fangsefni. Tæknibreytingarnar
séu gríðarlega hraðar. í fram-
tíðinni skipti mestu hverjir
framleiði íslenskt efni og hvern-
ig megi nálgast það.
„Stofnanir geta fokið um koll
eins og öskutunnur í 12 vind-
stigum því að það er svo mikill
stormur sem gengur yfir á
þessu sviði. Eigum við að leita
skjóls og bíða eða ætlum við að
gera einhverjar ráðstafanir
þannig að þjónustan splundrist
ekki þegar byltingin verður?
Við erum ekki að tala um Ríkis-
útvarpið anno 1930 eða 1966.
Við erum að tala um hvernig
Ríkisútvarpið verður árið 2000,
2005 eða 2020,“ segir hann og
vill ekki gera mikið úr hug-
myndum um það hvort skipta
eigi RÚV upp í minni einingar.
„Kannski á tæknin eftir að
ganga af hugmyndinni um Rík-
isútvarp dauðri áður en Sjálf-
stæðisflokknum tekst það ef
menn halda að það sé eitthvert
sérstakt markmið flokksins. Ég
vil fyrst og fremst tryggja að við
höfum íslenskt efni. Erlendis er
reynt að spara í stofnanakostn-
aði til að hafa meira svigrúm til
að framleiða efni. Mér sýnist
Ríkisútvarpið vera á þessari
braut. Það á náttúrulega að
vera hlutverk útvarpsstofnana
að búa til efni en ekki bákn.“
Heldur mildir
Varla er hægt að eiga viðtal við
Björn Bjarnason án þess að
ræða um borgarstjórnarkosn-
ingarnar sem fara fram á næsta
ári og forystukreppuna innan
minnihluta sjálfstæðismanna.
Björn segist tvímælalaust vilja
sjá sigur yfir R- listanum. Próf-
kjör ýti vissulega undir flokka-
drætti en ekki sé rétt að tala
um forystukreppu hjá sjálfstæð-
ismönnum. Það megi þó ekki
dragast að taka af skarið um
það hvernig staðið verður að
framboði þeirra. Fyrsta skrefið
til að afla sér trausts kjósenda
sé að koma fram sem ein heild
undir öruggri forystu.
„Þegar ég fór fyrst í prófkjör
hafði ég á kosningaskrifstofu
minni spjald þar sem stóð „Þeir
fiska sem róa“. Ég er þeirrar
skoðunar að menn nái ekki ár-
angri nema þeir séu tilbúnir til
að fara í slag og berjast fyrir
sínum markmiðum. Ég hef sagt
það áður og get vel sagt það
hér að ég tel að sjálfstæðis-
menn í borgarstjórn hafi verið
heldur mildir við Ingibjörgu
Sólrúnu og R-listann. Nú verða
þeir að sýna hvað í þeim býr,“
segir Björn.
Kann vel við mig
Gjarnan er talað um Björn sem
arftaka Davíðs Oddssonar.
Hann gerir h'tið úr slíkum
vangaveltum enda vilji hann
Davíð sem lengst við stjórnvöl-
inn. Ótrúlegur árangur hafi
náðst undir hans stjórn. Hann
segist þó aldrei hafa verið lengi
á sama stað. Lengst hafi hann
verið tólf ár samfellt í einu
starfi og það hafi verið á Morg-
unblaðinu. Nú séu bráðum átta
ár liðin frá því hann settist á
þing. Hann er þó ekki að hætta
strax?
„Ætli ég reyni ekki að keppa
við tímann á Morgunblaðinu,"
segir Björn Bjarnason.
Vangaveltur hafa verið um
yfirvofandi uppstokkun í ríkis-
stjórninni. Hvaða ráðuneyti
gætir þú hugsað þér að taka við
ef þú færir úr menntamála-
ráðuneytinu?
„Ég kann vel við mig í mikl-
um önnum í menntamálaráðu-
neytinu og vil fá tækifæri til að
Ijúka þeim verkefnum, sem ég
hef hrundið af stað og munu
tvímælalaust styrkja innviði
skólastarfs. Á meðan ég sinni
þessum áhugaverðu verkefnum
leiði ég ekki hugann að öðru.“
GHS
„Brottfall á framhaldsskólaaldri er áhyggjuefni. Ef eins eða tveggja árs
námsbrautir eru einskis metnar af vinnuveitendum hvers vegna eiga
krakkarnir þá að stunda slíkt nám?“ spyr ráðherrann. Myndir: Pjetur
Ljosmyndir, Kaupvangsstræti 1.
óska eftir starfskrafti til
afgreiðslustarfa.
Ekki yngri en 25 ára.
Upplýsingar gefnar á staðnum.
Vélvirki
Óskum eftir að ráða vélvirkja eða vanan járniðnaðar-
mann til starfa sem fyrst. Umsóknir þurfa að hafa
borist eigi síðar en föstudaginn 4. júlí ’97.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Jónsson í síma 466
3203 eöa á staðnum.
Bílaverkstæði Dalvíkur
Véladeild
Pósthólf 60 ■ 620 Dalvík
•ý'ylgstu með umjjöUun
um menningu og listir
í (í)egi-Tímanum
-besti tími dagsins
Styrktaraðili Leikfélags Akureyrar