Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Síða 14

Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Síða 14
— 'vPPV iníii •nmnViinmmi r\r\ mtrrttiTOWt mr.I It 26 - Laugardagur 28. júní 1997 ^Da^ur-'QHnróm Umsjónarmaður Magnús Geir Guðmundsson Hlutirnir gerast hratt hjá akureyrsku rokksveitinni Gimp Mynd 1. Silver Sun. Er tvímælalaust ein af þeim skemmtilegri og orku- meiri í bresku popprokki í dag. Silfur- Mynd 2. Plata Gimp, Crippled Plaything, er merkilega góð í Ijósi ungs aldurs og lítiliar reynslu sveitarmeðlima. stuttu máli: Tveir strákar í fram- haldsskóla stinga saman neíjuin og ákveða að spila og semja tónlist sam- an. Ekki löngu síðar bætast aðrir tveir í hópinn og hljómsveit verður formlega til. Þeir æfa svo saman stíft með skólanum fram á vor þegar námsbröltinu lýkur. Þá skipast mál þannig, að með hjálp góðs sjóara og bróður eins meðlimanna er ráðist í að taka upp plötu. Hún kemur út 13. júní sl. og kvöldið eftir eru haldnir útgáfutónleikar í heimabænum, Akur- eyri. Þá er það líka orðið ljóst, að undir lok mánaðarins munu drengirnir fjórir halda í víking til Danmerkur til að spila á klúbbum og víðar í landvinningaskyni. Og væntanlega eru þeir að því nú þegar þetta birtist og verða áfram við þá iðju næsta mánuðinn. Já, þannig er í stuttu máli saga hljóm- sveitarinnar Gimp frá Akureyri, sem að sönnu er sögð í stuttu máli, en er þó ótrúlega viðburðarrík sem sjá má og að sama skapi hröð. Sveitin er nefnilega ekki nema rétt rúmlega flmm mánaða gömul, en er þó búin nú þegar að gera meira en sumar aðrar ná að gera á fimm árum. En er eitthvað varið í þessa Qóra stráka í Gimp, Baldvin trommara (og reyndar sellóleikara líka), Atla bassaleikara, Stjána gítarleikara og Jenna gítarleikara og söngvara? Hafa þeir eitthvað merkilegt fram að færa með plötunni sinni, Crippled Plaything, sem gefur ástæðu til að hafa hana á ensku að öllu leyti í því augnamiði að rjúka sem fyrst út í heim með hana, jafnvel áður en samlandar og sambæ- ingar þeirra hafa kynnst þeim almenni- lega? Góð spurning og löng, en svarið við henni er a.m.k. að hluta til játandi. Það er nefnilega ótrúlega mikill gæða- stimpill á strákunum þrátt fyrir áður- nefnt unggæði og litla reynslu. Lög eins og Mystery girl, Blow, Home og Bitter, bera vott um merkilega mikinn þroska og góða meðvitund um þann rokktíðar- anda sem ríkir í dag. Jaðarrokk (það sem á ensku er nefnt Alternative) í góð- um skyldleika við rymrokkið, er þokka- leg skilgreining á tónlist Gimp-félaganna og má þar setja þá í ilokk með Botnleðju til samlíkingar. Þurfa þeir heldur ekki að skammast sín fyrir þá samlíkingu, því þessi byrjun er engu síðri en hjá Hafnar- íjarðartríóinu á sínum tíma. Ef vel tekst til í framhaldinu, er aldrei að vita nema að Gimp verði eitt af þeim nöfnum sem muni verða áberandi í íslensku rokki og kannski víðar. A ð dómi sumra poppspekinga í Bretlandi á sér þar stað mikil JLgerjun í tónlistarheiminum. Margt er að gerast, en jafnframt er mótunin ekki alltaf augljós og menn vita ekki al- veg, t.d. í danstónlistinni, hvert þeir séu að fara eða að hverju þeir eru að leita í sinni sköpun. Kann ef til vill eitthvað að vera til í þessu, allavega hvað varðar íjölbreytn- ina, svo sannarlega margt að gerast í bresku poppi og rokki, en vangaveltur um að menn viti ekki hvert eigi að stefna, eru nú ekki alveg réttar. Britpop og Britrokkbylgjurnar sýna það t.a.m. greinilega, en þær hafa báðar haft á sér einkennandi svip. Aftur á móti eru ein- mitt nú í seinni tíð skilin milli þessara tveggja tónlistarfyrirbæri í Bretlandi nokkuð farin að óskýrast, þær með öðr- um orðum farnar að renna saman að sumu leyti. Má segja að hin gríðarvin- sæla en raunamædda sveit frá Wales, Manic Street Preachers, sé um margt valdurinn að því, en hún hefur bæði náð hylli og viðurkenningu hjá poppurunum og rokkurunum með sínum sérstaka stíl (því má svo skjóta hér inn í, að MSP eru farnir að huga að nýrri plötu og mun eyjaálfusöngkonan snoppufríða, Kylie Minogue m.a. syngja með þeim á henni). í kjölfar þeirra hafa svo siglt sveitir á borð við unglingatríóið í Ash, 3 Colours Red, Symposium og síðast en ekki síst, Silver Sun. Silver Sun, Silfursól, er kvar- tett frá London, sem síðasta árið eða svo hefur vakið mikla athygli. Til marks um það hve mikils er vænst af sveitinni, var hún ein af af þeim 15 nöfnum sem tíma- ritið virta Q tilnefndi sem það athyglis- verðasta í poppinu nú um stundir og voru með sín lögin hvert á sérstakri geislaplötu sem fylgd maihefti blaðsins (þar á meðal voru líka 3Colours Red, Sympoium og „okkar“ Gusgus). Fyrsta stóra plata Silver Sun kom út í síðasta mánuði og bar einfaldlega nafn sveitar- innar. Hefur hún fengið mjög góðar mót- tökur og jákvæða gagnrýni. Er hægt að taka undir þessi jákvæðu viðbrögð, því platan er full af fínum og grípandi lag- línum, sem svo félagarnir fjórir matreiða með fítonsrokkkrafti popppönksins. Þeir sem hafa hrifist af Ash, Manics úr breska rokkinu og sveitum á borð við No Doubt og Green Day úr amerísku rokk- flórunni, ættu hiklaust að gefa „silfursól- inni“ gaum. Skin hennar er bara býsna bjart og brosandi, þrátt fyrir að textarn- ir við lögin séu reyndar nokkuð svo al- varlegir. uAÍ.1 .iáú L i Iii ili.ui íAlLLÉÍa « ÍILM ! iU ÁAÍ káÁi á L ii A A ilÉu* k Á Uili 1 ál álii i m 'W'Vr'WV'V vvrTnv “Trvl" vmivTim f • Sniglabandið er enn einn ganginn komið á kreik í sumar og ætlar sér ör- ugglega að taka landann með trompi, eins og svo oft áður. Ný plata er að koma frá íjörkálfunum, sem eftir því sem næst verður komist á að heita Bandið. Er samnefnt lag farið að heyrast á öldum ljósvakans, ágætisrokksmíð. •Talandi um endurkomur, þá hefur það væntanlega ekki farið framjhjá neinum að Milljónamæringarnir, hin bárulétta gleðisveit, er enn og aftur farin að láta heyra í sér. Og enn skarta þeir nýjum söngvara, sem væntanlega hefur ekki farið framhjá mörgum, að er hinn fjall- myndalegi og raddgóði Bjarni Arason. „Sólóður" hefur hljómað mikið að und- anförnu og virðist heilla landsmenn á sama hátt og fyrri verk millanna. Mun Bjarni vera fimmti söngvarinn sem þen- ur sig með sveitinni. •Eftir mánuð eða svo kemur á markað ansi hreint merkileg tónleikaplata, tvö- föld, með blúshetjunni látnu, Stevie Ray Vaughan og hljómsveitinni hans, Double Trouble. Er um að ræða nokkuð gamla tónleika frá Carnegie Hall, en væntan- lega líka góða, þar sem m.a. Jimmie bróðir Stevies og pianóleikarinn Dr. John, tróðu upp með Stevie og félögum hans. •Annar strengjaplokkari, gítargoðið mikla og írska, Gary Moore, sem á síð- ustu árum hefur helgað sig blúsnum, snýr heldur betur við blaðinu á nýjustu plötunni sinni, Darker days in Paradise, sem kom út fyrir skömmu. Þar er á ferð- inni meinlætislegt popp í staðblússins og er vart hægt að tala um gftarsóló á allri plötunni. Vekur þetta óneitanlega athygli auk þess sem kappinn hefur verið með skrýtnar yfirlýsingar í viðtölum, m.a. að „blúsinn sé dauður“ o.fl. Ekki virðist hann þó ætla að græða mikið á þessum umsnúningi, a.m.k. hefur platan ekki farið mjög hátt. •Söngvarinn ungi í rokksveitinni vin- sælu Kula Shaker, Crispian Mills, læddi þeirri vitleysu út úr sér fyrir nokkru, að nasisminn hefði og ætti enn rétt á sér. Lauk hann lofsyrðum á foringjann ill- ræmda Adolf Hitler og sagðist ekkert hafa á móti því að skreyta sviðsmynd hljómsveitarinnar með hakakrossi og það upplýstum. Hefur stráksi skiljanlega fengið bágt fyrir þessi ummæli og það raunar svo mjög, að hann fann sig knú- inn að skrifa afsökunarbréf til íjölmiðla í Bretlandi, þar sem sagði að ekkert hefði verið að marka tiltækið. Mynd 3. Stevie Ray Vaughan. Með honum og félögum í Double Trouble er væntanleg væn tónleikaplata.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.