Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Blaðsíða 16
^Dagur-^œtmn
28 - LaugUMágur‘28: júní 1997
LIF OG LAND
Gunnar Sverrisson
Ijósmyndari
'mm
JÓHANNESARSPJALL
Styðja prestar aðra láglaimameim?
Jóhannes
Sigurjónsson
skrifar
Prestar eiga upp til hópa allt
gott skilið. Eins og við flest.
I hópi presta eru örugglega
fleiri grandvarir og góðhjartaðir
menn en í öðrum starfsStéttum.
Og raunar getur ekki hjá því far-
ið því prestar, öðrum fremur,
hljóta að leitast við af fremsta
megni að halda boðorð og annan
siðaboðskap Jesús Jósefssonar
meistara síns sem þeir trúa á.
Eða gera vonandi.
Hefði Jesús
hent þeim út?
í huga almennings hafa prestar
ekki verið réttir og sléttir emb-
ættismenn á borð við t.d. sýslu-
menn, fræðslustjóra eða sálfræð-
inga hjá hinu opinbera. Prestar
eru, eða eiga að vera, andlegir
leiðtogar. Til þeirra eru gerðar
aðrar kröfur en til venjulegra
kerfiskalla. En prestar eru líka
breyskir menn og eiga stundum
erfltt með að standa undir þess-
um kröfum. Það er eðlilegt og
ekkert við því að segja.
Að undanförnu hafa prestar
hinsvegar sjálfir verið að grafa
sínar eigin grafir sem andlegra
leiðtoga. Á prestastefnu á dög-
unum komu þeir ýmsir fram sem
opinberir kerfiskallar, eiginhags-
munaseggir og þrautleiðinlegir
býrókratar sem hafa meiri
áhyggjur af eigin afkomu en sál-
arheill sinna minnstu bræðra. Ef
marka má lýsingu Biblíunnar á
Jesús Kristi, þá hefði hann,
óvænt staddur á prestastefnu,
velt um borðum og hrakið ein-
hverja út. Ef marka má Bibhuna.
Og mína túlkun á orðinu, sem er
jafn gild og túlkun prestanna.
Þegar svo er komið að við,
sauðsvartur og óupplýstur al-
múginn, gerum ekki lengur
greinarmun á prestum og öðrum
embæ.ttismönnum landsins, þá
fara að vakna upp spurningar
um hlutverk og nauðsyn kirkj-
unnar. Geta ekki sálfræðingar
annast sálgæsluhlutverk prest-
anna? Geta ekki sýsluskrifarar
séð um framkvæmd jarðarfara
og pistlahöfundar skrifað útfar-
arræður? Er ekki formaður
Kvenfélagsins á staðnum fullfær
um að gefa börnum nafn? Og
skólastjórinn að ferma þau borg-
aralegri fermingu?
Er von að spurt sé þegar
prestarnir okkar virðast ekki
lengur meiri andlegir leiðtogar
en ofannefndir.
Ópólitískir prestar?
Prestar eiga allt gott skilið. Þeir
eiga skilið að fá góð laun fyrir
erfiða og slítandi vinnu. Og það
eigum við líka öll. Og það er í
sjálfu sér ekkert athugavert við
launabaráttu presta. Að Geir
Waage og félagar vilji fá æfi-
ráðningu og hærri laun. Eða öllu
heldur væri ekkert athugavert
við það, ef Geir Waage og félag-
ar hefðu hingað til beitt sér í
kjarabaráttu fyrir sína minnstu
bræður, þá sem hafa enn lægri
laun en prestar.
Prestar hafa sem sé margir
forðast það að skipta sér af þjóð-
félagsmálum, taka pólitíska af-
stöðu, t.d. í kjaradeilum. En með
að því krefjast hærri launa sér til
handa eru þeir að taka pólitíska
og þjóðfélagslega afstöðu. Og er
hið besta mál. En hversvegna í
ósköpunum tóku þeir ekki af-
stöðu í verkfallinu á Vestfjörðum
og studdu launakröfur fisk-
vinnslufólks? Og hversvegna
sendi prestastefna ekki frá sér
ályktun þar sem lýst var yfir
stuðningi við ófaglært starfsfólk
á Sjúkrahúsi Þingeyinga í þeirra
vinnudeilu? Báðir þessir hópar
eru með lægri laun en prestar og
vinna erfið störf og óþrifalegri
en hinir andlegu leiðtogar.
Illa fyrir kallaðir?
Sem andlegir leiðtogar eru
prestar að missa tiltrúnað okkar.
Þeir hafna pólitískum afskiptum,
þeir veigra sér við að berjast
gegn almennu launamisrétti í
landinu, en berjast af hörku fyrir
eigin kjörum. Það styttist í það
að við hættum að gera kröfur til
presta og þá geta þeir farið að
drekka, drabba og hórast eins
og við hin og enginn kippir sér
upp við það, ekki frekar en ef
fulltrúi í samgönguráðuneytinu
hagaði sér svo.
Biskup spurði sem sé grund-
vallarspurningar í ræðu sinni á
prestastefnu þegar hann sagði:
„Er enginn munur á að vera í
þjónustu kirkjunnar eða t.d.
samgönguráðherra?" Og biskup
sem skynjar vaxandi trúnaðar-
brest (trúnaðarprest?) milli
kirkju og almennings í landinu
bætti við: „Illa væri komið ef við
litum ekki öðruvísi á starf okkar
en aðrir þeir sem stimpla sig til
hefðbundinnar vinnu að morgni.
Við erum kölluð."
Og er mergurinn málsins. Eða
ætti að vera það.