Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Side 19

Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Side 19
Jlagur-©mmn Laugardagur 28. júní 1997 - 31 LIFIÐ I LANDINU ýjáUÍ titti - ýetltt* í ‘áHH Dauðans alvara... A amerískum sjónvarpsþætti sem sýndur er að morgni dags í öllum Bandaríkjunum var fyrir skömmu fjallað um ís- land. Sérstakur þáttur var helg- aður landi og þjóð. Að kvöldi útsendingardagsins var sér- stakur þáttur í íslenska sjón- varpinu helgaður þessum am- eríska þætti; gúdd morning am- eríka. í íslensku samantektinni fengum við að sjá að ritstjóri Dags-Tímans, Stefán Jón Haf- stein, var kynntur til sögunnar sem ritstjóri dagsblaðsins sem „íslendingar kalla stundum dagblað dauðans" vegna þess að í blaðinu er svo mikið fjallað um hina látnu. Þar var átt við minningargreinarnar. Fyrir nokkrum dögum átti ég dauða stund. Stund milli stríða, tíma til að drepa. Ég hef undan- farið reynt að nota svona tæki- færi til að slaka á og njóta augnabliksins. í þetta skiptið varð göngutúr með félaga um kirkjugarðinn í Fossvogi fyrir valinu. Þetta er einstaklega fal- legur og skjólgóður garður og á göngu um hann leiðir maður ósjálfrátt hugann frá argaþrasi borgarinnar og að öðrum gild- um. Kirkjugarðurinn iðaði af lífi. Fjöldi starfsmanna kirkjugarð- anna var þar nefnilega við vinnu við að halda garðinum í fyrirmyndar horfi. Hinir látnu skipta íslendinga greinilega ekki bara máli í dagblöðunum. Þessir starfsmenn voru flestir um tvítugt, skólafólk í sumar- vinnu. Dugmikil ungmenni vopnuð skóflum, klippum og vasadiskói, sem réðust til at- lögu við greinar, arfa og mosa. En eins og oft vill verða leynist oft misjafn sauður í mörgu fé. Ekki höfðum við félagi minn labbað lengi er við gengum fram á tiltölulega láréttan mann við hlið eins leiðis. Þó að þessi stelling piltsins kunni að þykja við hæfi í kirkjugarði var hann ekki líklegur. Við héldum að vísu fyrst að hann væri sof- andi en tókum þá eftir að um líkama hanns fóru reglulegir kippir. Takktfast og örugglega var hann að dansa við undirleik vasadiskósins sín. Hann vistist sannarlega njóta augnabliksins. Félagi hans úr vinnuflokkn- um kom þar að og potaði í hann. Dauðans aumingi get- urðu verið sagði hann. Það má ekki líta af þér þá ertu lagstur. Slappaðu af svarði sá ólíklegi. Ég er búinn að vinna vel. Ég vinn bara miklu betur ef ég hvíli vel á milli. Hann var greinilega viskubrunnur. Hvfld- in er jú nauðsynleg. Við félagi minn héldum áfram göngunni og brostum út í annað. Hugsuðum og sögðum eitthvað á þá leið að svona væri nú unga fólkið o-já já. Ég er nú orðin fertugur og ég nenni ekki lengur að vera í vinnu við að stela mér lúr, en lfldega var maður akkúrat svona o-jájá. Verst að vesturheimsku sjón- varpsmennirnir voru ekki þarna. Þessi uppákoma hefði örugglega aukið á skemmtigildi þáttarins þeirra ekkert síður en sagan af Stefáni Jóni og dag- blaðinu hans sem fjallar um fólk - lifandi og dáið. Eða verst hvað þessi amiríski þáttur var yfirborðskenndur og einhvern- veginn fyrtur. Eða verst að okk- ur skyldi finnast svo mikið til þess koma að þeir skyldu íjalla um land vort og þjóð að okkur var alveg sama hvað þeir sögðu og gerðu. Bara ef þeir Ijölluöu um okkur. Okkur! Svona fer maður ósjálfrátt að velta vöngum ef maður fer í göngutúr. Pétur Gunnarsson skáld kallar þetta að hugsa með fótunum. Göngutúr með eða án tilgangs, með eða án sérstaks áfangastaðar er meinhollur. Andartak frá erli dagsins, gerir okkur ekki vesturheimsk, við höldum jarðsambandi. Þriðja ráð mitt til lesenda um hollustu og heilbrigða lifnaðar- hætti er því einfalt og viðeig- andi í þessu dagblaði: Fáðu þér göngutúr um næsta kirkjugarð. Svo er nú það. Gaui litli. BRIDGE Alli Þorláksson Þegar þetta er skrifað er ijórum umferðum ólokið á Evrópumótinu í bridge, þar sem landslið íslands í opn- um flokki hefur allan tímann verið í efstu sætunum. Fyrir gærdaginn var ísland í 7. sæti en takmarkið er að enda í einu af fimm efstu sætunum sem veitir þátttökurétt á heims- meistaramótið í Túnis í haust. Mótinu lýkur í dag. Skipst hafa á skin og skúrir hjá opna flokknum en árang- urinn verður að mati umsjón- armanns alltaf viðunandi þótt takmarkið náist ekki. Auðvitað má setja út á tapið gegn Líban- on, 7-23, vont gengi gegn Norðurlandaþjóðunum nema Danmörku og aðra ósigra, suma nokkuð óvænta, en sig- urinn gegn Ítalíu var á hinn bóginn sérlega glæsilegur. Enn er ekki of seint að afskrifa möguleikann á HM-sæti. ítalir hafa spilað sérlega vel á mótinu og ekkert kemur í veg fyrir að þeir verji Evrópu- meistaratitilinn. Þá er sýnt að Pólverjar fylgja þeim og senni- lega Frakkar. Ekki er hægt að spá frekar fyrir um hin efstu sætin. Hvað kvennalandsliðið varð- ar hefur árangurinn verið slakur en í fyrradag gekk allt upp þegar liðið sigraði í þrem- ur leikjum í röð. Þrautín * 64 * D92 * ÁT853 * ÁD2 N V A S * ÁK3 V ÁG * DG974 * 864 Þú spilar þrjú grönd í suður og andstæðingarnir skipta sér ekk- ert af sögnum. Vestur spilar út spaðafimmu og austur stingur upp drottningu. Hver er örugg- asta spilaleiðin til að hljóta 9 slagi? Ef txgulsvíningin gengur er minnsta málið að vinna spilið, en það tapast ef engar svíning- ar ganga. Svona er allt spilið: ♦ 64 * D92 ♦ ÁT853 * ÁD2 ♦ G8752 ▼ K73 ♦ 6 * GT73 * DT9 * T8654 * K2 * K95 * ÁK3 V ÁG * DG974 * 864 Án ígrundunar virðist eðli- legt að byrja á tígulsvíningunni en það er ekki leiðin til lífsins eins og sjá má á dreifingu spil- „Srákarnir okkar“ berjast upp á líf og dauða um sæti f Túnis f haust. Konurnar geta bjargað sér fyrir horn með góðum endaspretti. anna. Austur drepur og spilar spaða og sagnhafi fer niður á spilinu. Rétta spilaleiðin er að dúkka spaðann, drepa síðan og búa til hjartaslag. Þetta útilokar vestur frá spilinu, hann spilar spaða, en þegar austur fer inn á hann engan spaða. Það skiptir engu máli hvort tígulsvíningin gangi. Ath. að ef vestur hefði skipt í lauf þegar hann er inni á hjartakóng þá stingur sagnhafi upp ás, fer heim á hjarta og svínar tígli. Bikarinn ’97 Dregið f aðra umferð Búið er að draga í 2. umferð bikarkeppninnnar 1997. Fyrri sveitin á heimaleik: Sparisj. S-þing- Bflanes, KeflavxTc HAM ísafirði- Roche Reykjavík Sérsveitin Rvk,- Jón Sigurbjörnsson Siglufirði Gissur Jónasson Akureyri- Neon Reykjavík Friðrik Jónasson Rvk.- Frímann Stefánsson AK. Eimskip Reykjavík- VÍB Hjólbarðahöllin- Marvin, Reykjavík Landsbréf- SS Brú, Borðeyri Guðjón Bragason IJeilu- Ól. Steinason Selfossi Samvinnuf. Landssýn- Hjálmar Pálsson Reykjavík Guðlaugur Sveinsson Rvk.- Guðmundur Ólafs Borgarnesi Sigtryggur Sigurðsson Rvk,- Anton Haraldsson Rvk. Birgir Steingrímsson Rvk.- Símon Símonarson Rvk. Gylfi Baldursson Rvk,- Steinar Jónsson Rvk. Jens Jensson Rvk.- Snorri Karlsson Rvk. Radíómiðun Rvk.- Sveinn Aðalgeirsson Húsavík Af stórleikjum þessarar um- ferðar má nefna leik Antons og Sigtryggs sem og leik Hjól- barðahallarinnar og Marvins. Leikjunum skal vera lokið fyrir 20. júlí.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.