Dagur - Tíminn Akureyri - 02.09.1997, Page 12
en í seinni hálfleik. Sigurvin
Ólafsson, Tryggvi Guðmundsson
og Kristinn Hafliðason fengu
allir góð marktækifæri en
varnarmúr Keflvíkinga var
sterkur og lokatölur að loknum
90 mínútum var 0-0.
í framlengingu fóru leikmenn
liðanna að þreytast og
greinilega dómari leiksins
einnig. Sæmundur
Vfglundsson, annars ágætur
dómari leiksins, missti tökin á
að Ingi Sigurðsson hafði lent í
samstuði við markvörð
Keflvíkinga. Eyjamenn vildi svo
sjá Sæmund lyfta öðru gulu
spjaldi þegar Gestur Gylfason
braut illa á Sigurvin Ólafssyni
um miðja seinni framlengingu.
Gestur slapp með skrekkinn í
þetta sinn og þakkaði pent fyrir
sig með því að jafna metin á
síðustu sekúndu leiksins.
Lokatölur urðu því 1-1 og
Keflvíkingar fögnuðu sem
Pað vantaði ekki dramatíkina á
Laugardalsvelli þar sem
Keflvíkingar börðust gegn
Eyjamönnum um Coca-Cola
bikarinn. Flestir áttu von á
sigri ÍBV í leiknum en greinilegt
var strax á upphafsmínútum
leiksins að Keflvíkingar ætluðu
ekkert að gefa eftir. Hin
eldsnöggi Haukur Ingi
Guðnason stakk
varnarmann ÍBV af
á 2. mínútu og
komst einn innfyrir
en hitti boltann illa
og skotið fór framhjá.
Leikurinn róaðist í framhaldi af
þessu og ÍBV náði tökum á
miðjunni en náðu ekki að skapa
sér hættuleg marktækifæri fyrr
leiknum í framlengingu og bæði
lið fóru ósátt af velli eftir dóma
hans. Keflvíkingar fengu að
þeirra mati ólöglegt mark á sig
þegar Leifur Geir skoraði eftir
sigurvegarar.
Það er að vísu ekki raunin því
liðin munu eigast við að nýju
þann 24. september á
Laugardalsvelli.
Nú er lokið starfsemi íþrótta-
miðstöðvar íslands á Laugar-
vatni þetta sumarið. Fjöl-
margir hafa heimsótt íþrótta-
miðstöðina til lengri og
skemmri dvalar. Mikil íjölgun
var á þátttakendum í Litla
íþróttaskólanum og í dagsferðir.
Umtalsverð aukning varð á
heildar ljölda gesta milli ára.
Engin Héraðssambönd nýttu
sér þó starfsemi íþróttamið-
stöðvarinnar og aðeins tvö
ungmennafélög. Óskandi er að
undirtektir verði betri næsta
sumar. Hægt verður að bóka í
vetur pláss fyrir næsta sumar
hjá Frey í síma 581-1136.
Fara Blikar upp?
Breiðabliksmenn
hleyptu mikilli spennu í 1.
deildina í knattspyrnu um
síðustu helgi þegar liðið
sigraði ÍR 1-5. Þessi lið
hafa í sumar barist um 2.
sætið í deildinni en nú
þegar þrjár umferðir eru
eftir hafa Blikar tveggja
stiga forskot á ÍR-inga.
KS og Tindastóll
upp í 2. deild?
Knattspyrnulið KS og
Tindastóls eru komin með
annan fótinn í 2. deild.
Úrslitakeppni 3. deildar
stendur nú sem hæst og
eru fyrri leikjum undan-
úrslita lokið. KS sigraði
Ármann örugglega 6-0 á
heimavelli og Tindastóll
sigraði Aftureldingu 2-0 á
útivelli.
Gengur vel hjá
Óla
Á meðan Keflvíkingar
standa í ströngu hér
heima gengur allt í
haginn hjá fyrrum
markverði liðsins, Ólafi
Gottskálkssyni. Óli gekk
til liðs við Hibernian fyrir
skömmu og vann sér
strax fast sæti í
aðalliðinu. í dag er
Hibernian á toppi skosku
deildarinnar.