Dagur - Tíminn Akureyri - 24.09.1997, Síða 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 24.09.1997, Síða 5
ÍDíigur-^mmm TJ lí 17 T T T B Þriðjudagur 24. september 1997 - 5 TBBIBHjllBM Launabilið hefur aukist Jóngeir H. Hlinason framkvæmdastjóri VMS Meiri launahœkkun en almennt hefur verið. Ófaglærðir huga að leiðréttingu á laun- um. Verkalýðshreyf- ingin getur ekki öf- undast út í þá sem semja betur. Svo kann að fara að Starfs- mannafélagið Sókn kreiji borgina um leiðréttingu á launum ófaglærðs starfsfólks á leik- skólum í framhaldi af nýgerðum samningi leik- skólakennara. Jón- geir H. Hlinason, fr amkvæmdastj óri Vinnumálasam- bandsins, segir að þótt samningur leikskólakennara feli í sér meiri launahækkun en samið hefur verið um, þá geti verkalýðs- hreyfmgin ekki verið með neina öfund út í þá sem semji betur. „Það kom svona launabil á milli starfsfólks á leikskólum árið 1987. Þá gengum við á fund Davíðs Oddssonar, þáver- andi borgarstjóra, sem leiðrétti kjör ófaglærðra um einn launa- flokk. Það eru til fordæmi fyrir hinu og þessu,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Starfsmannafélagsins Sóknar. Enn sem komið er hefur það ekki verið rætt innan stjórnar Sóknar hvort farið verði fram á leiðréttingu á launum ófag- lærðra á leikskólum. Þórunn útilokar ekki að það verði skoð- að nánar síðar á árinu. Vanda- málið sé hinsvegar að félagið sé með bundinn samning út samn- ingstímann. Sjálf segist hún fagna því þegar aðrir hópar ná árangri við samningaborðið og þá sérstaklega kvennastéttir sem einatt eigi undir að högg að sækja. f kjarasamningi sín- um sl. vor fengu ófaglærðir starfsmenn leikskóla um 20% launahækkun á móti 24-26% í nýgerðum samningi leikskóla- kennara. Samningstími þeirra síðastnefndu er jafnframt nokkru lengri en hjá Sókn, eða tU ársloka árið 2000. Framkvæmdastjóri Vinnu- málasambandsins bendir á að almennt sé kauphækkun á samningstímanum á almenna markaðnum um 13-16%, þótt finna megi dæmi um meiri hækkanir hjá einstaka einstakl- ingum. í þeim efnum getur ver- ið um að ræða allt að 25-30% hækkanir og jafnvel meira. Á móti var samið um ákveðna hagræðingu í samningum á al- menna markaðnum, sem ekki virðist vera að finna í leikskóla- samningnum. Þá er samnings- tíminn lengri hjá leikskólakenn- urum, eða til ársloka árið 2000. Á almenna markaðnum er gild- istími margra samninga fram í febrúarlok sama ár -grh Ófaglært starfsfólk á leikskólum telur að launabilið meðal starfsmanna hafi aukist með nýgerðum samningi leik- skólakennara. Hagkaup opnar verslun Unnið af kappi að undirbúningi að lagningu bundins slitlags á Strákavegi fyrir skemmstu. Þá verður langþráðum áfanga í náð í samgöngumálum Siglfirðinga. MyndiGS Almenningar lagðir bundnu slitlagi Unnið hefur verið í sumar við endurbætur á þjóð- veginum um Almenn- inga, þ.e. á Strákavegi milh Siglufjarðar og Fljóta. Þessa dagana er verið að undirbúa veginn undir lagningu á varan- legu slitlagi sem lagt verður næstu daga. Þá geta Siglfirðing- ar ekið á bundnu slitlagi frá Siglufirði að Reykjahólabökkum í Fljótum, en þaðan og í Hofsós er enn ekið á malarvegi. Frá Hofsósi er svo hægt að aka á bundnu slitlagi til Reykjavíkur. Verktaki að þessum fram- kvæmdum er Möl & sandur á Akureyri og var tilboðið upp á 30 milljónir króna. Þetta var stærsta einstaka framkvæmdin á Norðurlandi vestra á þessu sumri. GG í kring um næstu ára- mót mun Hagkaup opna matvöruverslun í Borgarnesi þar sem nú er Verslun Jóns og Stefáns. Hagkaup hafði frumkvæðið að kaupunum eftir ábendingar frá heimamönnum, segir Óskar Magnússon forstjóri. Gera má ráð fyrir að Hag- kaup opni verslun í Borg- arnesi í kring um næstu áramót en nýverið var gengið frá kaupsamningi milli Ilag- kaups og eigenda Verslunar Jóns og Stefáns í Borgarnesi (JS). Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups, segir að fyrst og fremst verði um matvöruversl- un að ræða og núverandi starfsfólki Verslunar Jóns og Stefáns verði boðið starf þegar að því kemur að Hagkaup opni verslunina. Auk heimamanna er horft til ferðamannaumferð- arinnar varðandi viðskipti. “Verslunin er ágætlega staðsett fyrir það. Það þarf ekki að fara langt til að komast í hana frá gatnamótum,“ bendir Óskar á. Aðdragandinn að kaupunum var stuttur, eða um tvær vikur. „Við höfðum frumkvæði að því sjálfir þegar við fréttum af því að þetta kynni að vera falt, eftir ábendingu frá fleiri en einum íbúa í Borgarnesi," segir Óskar. “Við höldum að það geti verið skynsamlegt og spennandi að reka verslun í Borgarnesi og okkur heyrist að okkur muni verða vel tekið, ég hef ekki heyrt neitt annað. Menn höfðu áhyggjur af því að þarna væri kannski að íjara út sú sam- keppni sem hefur verið á staðn- um og það er ef til vfll ein ástæðan fyrir því að við heyrum góð orð um þetta. Svo á eftir að reyna á það allt saman." Óskar vildi ekki viðurkenna að í þessu fælist stefnubreyting hjá Hagkaup varðandi verslun- arrekstur á landsbyggðinni. „Við höfum verið að reka búðir úti á landi og þarna kom tæki- færi sem okkur leist vel á. Við höfum ekki verið með neina sérstaka útþenslu- stefnu í gangi en horft í kring um okkur ef eitthvað hefur verið sem okkur hefur fund- ist spennandi," segir hann. Hagkaup rekur nú verslanir á Ak- ureyri og í Njarð- vík auk höfuðborg- arsvæðisins og er innan tíðar að opna verslun í Mosfellsbæ. “Þetta var einstakt tækifæri sem kom upp og at- hygli okkar var vakin á því og við nýttum okkur það. Svo nær það ekkert lengra, það er ekk- ert tilefni til að draga neinar víðtækari ályktanir afþessu.“ Tvær matvöruverslanir aðrar en JS eru í Borgarnesi, báðar í eigu Kaupfélags Borgfirðinga (KB). Samningaviðræður höfðu verið í gangi milli kaupfélagsins og eigenda JS um að KB keypti Verslun JS en kaupfélagið dró sig út úr þeim viðræðum vegna andstöðu við kaupin innan fé- lagsins. -ohr Óskar Magnússon forstjóri Hagkaups Við höldum að það geti verið skgnsamlegt og spennandi að reka verslun í Borgarnesl

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.