Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.02.1997, Side 1
Tvöfaldurl. vinningur
Góða helgi!
Laugardagur 22. febrúar 1997 - 80. og 81. árgangur - 37. tölublað
Heyrst hefur...
...að kvennaleikurinn sé ekki á nýjasta seðli Lengjunnar. Ástœð-
an er sú að Jyrirfram er talið að Haukar séu miklu sigurstrang-
legrL Karlaleikurinn er hins vegar á seðlinum og þar eru stuðl-
arnir jafhir hjá liðunum, 1,80 hjá hvoru liðL
...að hljómsveitin Stalla Hú, œttuð úr Vestmannaeyjum, muni
spila fyrir Hauka í báðum bikarleilgunum. Hljómsveitin hefur
verið „sigursœl" í bikarleilgum því hún spilaði fyrir KA-menn síð-
ustu tvo úrslitaleiki og unnu þeir í bœði skiptin. Ekki amalegur
stuðningsmaður þar en nú er hljómsveitin sem sagt komin í lið
með Haukum.
...að leikirnir tveir verði spilaðir á gólfteppinu góða sem notað
var á HM. Þetta mun vera gert að beiðni sjónvarpsins þar sem
eingöngu handboltalínur séu á gólfdúknum og komi það betur út
á mynd en línufrumskógurinn á hinu venjulega gólfL
íslenskir handboltaunnendur fá að titra og skjálfa af spenningi í dag,
sérstaklega þeir hafnfirsku. Úrslitaleikir í bikarkeppninni eru á dag-
skrá í Laugardalshöllinni og spilaHaukar íHafnarfirði til úrslita bæði
í karla- og kvennaflokkl
'
Mynd: Pjetur
Fyrirliðarnir Gerður Beta (t.v.) og Ragnheiður takast á.
Konurnar í Haukum mæta stallsystrum sínum í Val og hefst leikur lið-
anna klukkan 13:30. Haukar hafa verið á góðri siglingu í deildinni í vetur,
unnu íslandsmeistaratitilinn í fyrra, og er af flestum spáð öruggum sigri.
Fyrirliðar liðanna eru þó sammála um að ekkert sé unnið fyrirfram. „í bikar
leik getur allt gerst og má ekki vanmeta andstæðinginn. Þetta verður ekki
auðvelt en við ætlum að mæta einbeittar til leiks og taka þeim sem
hverjum öðrum sterkum andstæðingum," segir Ragnheiður Guð-
mundsdóttir, fyrirliði Hauka. Gerður Beta Jóhannsdóttir, fyrirliði
Vals, segir góða stemmningu í sínu liði. „Við höfum allt að vinna
en engu að tapa því Haukarnir eru taldir mun sigurstranglegri.
Pressan er á þeim en ekki okkur og ef við komum afslappaðar
í leikinn getur allt gerst,“ segir hún.
Hjá körlunum er
baráttann á milli hinna
gulu og glöðu KA
manna og hinna hafn-
firsku Hauka og hefst
leikurinn klukkan fimm
dag. KA er í úrslitum íjórða
árið í röð. í fyrra og árið á undan
stóðu þeir uppi sem sigurvegarar
og stóra spurningin nú er hvort þeim
takist að vinna bikarinn þriðja árið í
röð. Ef Haukar fá einhverju að ráða
tekst þeim það ekki. „Við fórum auð-
vitað í leikinn með því hugarfari að
við náum bikarnum. Annars væri ekk-
ert gaman að þessu,“ segir Gústaf
Bjarnason, fyrirhði Hauka. Erlingur
Kristjánsson, fyrirliði KA er hins vegar
hvergi banginn. „Ég er bjartsýnn og
spái að leikurinn fari 29-26 fyrir KA,“
segir hann.
Tekst
Haukumað
ná bikamum