Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.02.1997, Síða 3
|Dagirr-'3!mrirat
Laugardagur 22. febrúar 1997 - 15
r
Sigurjón B. Hafsteinsson, mannfræðingur, hélt í
gær erindi í HÍ um tónlistarmanninn Pál Óskar
og ímynd hans. Kveikjan að pælingunni voru við-
brögð áhorfenda Stöðvar 3 við myndbandinu „Making
Love“ (þar sem Páll Óskar sést nudda og kyssa bak-
hluta á öðrum karlmanni). Fjöldi manna hótaði upp-
sögn og í kjölfarið fóru Stöð 2 og RÚV fram á að Páll
klippti ákveðin atriði út úr myndinni.
„Páll Óskar er að mörgu leyti öfugsnúningur á
kvenlegum þáttum í íslenskri menningu. Á íslandi er
lögð rík áhersla á móðurhlutverkið, móðurina sem
nærir, veitir vernd, er falleg og sterk. Hún er jafn-
framt uppfræðari og fóstrar m.a. íslenska tungumáhð
sem er hreint og fagurt. Móðurímyndin birtist hka
mjög sterkt í allri orðræðu um íslenskt þjóðerni.
Síðan kemur Páll Óskar fram á sjónarsviðið upp úr
1990 og allur hans frami hefur verið umpólun á þess-
ari móðurmynd. Hann slær í gegn í kvenmanns-
klæðnaði í uppfærslu á Rocky Horror, kemur fram
sem dragdrottning, syngur með indversku prinsess-
unni Leoncie, syngur suðræna tónlist með Milljóna-
mæringunum, sem er tengd þessari ímynd af gulum
söndum og heitum kroppum. Hann spilar diskótónhst
sem þykir frekar lummó og óþjóðleg, gerir myndband
þar sem hann kemur sjálfur fram og ástarviðfangið
hans er ekki kona heldur karl. Pað er svo fjölmargt
sem hann tekur sór fyrir hendur sem er uppbrot á
þessari móður,“ segir Sigurjón. En sem samkyn-
hneigður karlmaður í öfugsnúnu móðurhlutverki þyki
hann um leið „exótískur og spennandi."
- En hvernig gengur ímynd Páls Óskars upp í okk-
ar samfélagi?
„Ég held að hann sé kannski tákn okkar tíma fyrir
gagnrýni á þessar þjóðernishugmyndir íslendinga um
Island sem eyland í landfræðilegum og menningar-
legum skilningi. Að íslendingar séu kannski ekki jafn
einsleitir og þeir gefa sig út fyrir að vera. Þetta er
kannski mun margbrotnari menning heldur en hefur
verið ætlað.“ lóa
Páll Oskan Ofugsniíin móðurímynd?
Það erfleira en rykugar skrœður sem heilla
háskólamenn. Mannfrœðingur nokkur hefur
t.d. verið að pœla íPáli Óskari og myndband-
inu „Making Love“...
Eini strákurinn
í danskeppninni
Jóhannes Helgi Gíslason
heitir sprækur 16 ára
strákur á Selfossi sem var
eini strákurinn, sem tók þátt í
keppni í frjálsum dönsum,
Freestyle, í Tónabæ um síðustu
helgi. Jóhannesi Helga gekk
mjög vel í keppninni og var með
þeim efstu svo að Selfyssingar
mega vel við una. Að þessu
sinni keppti hann fyrir Selfoss
en í fyrra bjó hann á Akureyri
og lenti þá í þriðja sæti.
Æfði listhlaup
og fimleika
„Árið 1994 sá ég Freestyle
keppnina í sjónvarpi og sagðist
þá ætla að prófa að taka þátt í
keppninni árið eftir. Ég tók svo
þátt í henni árið 1995 í fyrsta
skipti,“ segir Jóhannes Helgi.
Jóhannes Helgi hefur komið
víða við í íþróttunum. Ilann
æfði fimleika til fjölda ára og
var í listhlaupi á skautum. Þar
náði hann þeim árangri að
verða íslandsmeistari árið 1992
þegar íslandsmeistaramótið var
haldið í fyrsta skipti. Jóhannes
Helgi er hættur að æfa fimleika
og listhlaup og er búinn að
stunda í eróbikk í nokkur ár. f
öllum þessum grein-
um hefur hann verið
eini strákurinn eða
einn fárra stráka og
mest keppt við stelp-
ur. Á Selfossi er hann
einn ijögurra stráka
sem æfa eróbikk.
að hann hefur alltaf yfrið nóg
að gera. -GHS
Hefur aldrei
lært að dansa
í danskeppninni í
Tónabæ sýndi Jó-
hannes Helgi frum-
saminn dans í ætt við
eróbikk en hann fékk
hjálp frá íþróttanema
á Laugarvatni við að
semja hann. Jóhann-
es Helgi hefur aldrei
lært dans. Ilann er í
10. bekk og vinnur
með skólanum þannig
Selfyssingurinn Jóhannes
Helgi Gíslason var einl
strákurinn sem tók þátt í
keppni I frjálsum dönsum f
Tónabæ um sfðustu helgi.
Flygill Tónlistarfélags Akureyrar er glæsilegur enda kostaðl hann sitt.
Fonnleg vígsla flygilsins
Hinn nýi flygill Tónlistarfélags Akureyrar verður formlega
vígður í dag á tónleikum í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Á tónleikunum verður einleikur á píanó, samleikur á selló
og píanó og einsöngur og kórsöngur við píanóundirleik.
Hinn nýi konsertflygill er af gerðinni Steinway D og kostaði 6,5
milljónir. Vel gekk að safna fyrir flyglinum og munaði þar mestu
um 3 milljónir sem Akureyrarbær lagði fram og 2,4 milljónir sem
söfnuðust á minningartónleikum um Ingimar Eydal, tónlistarmann,
sem haldnir voru 20. október sl.
Tónleikarnir heljast klukkan 14 í dag og verða öllum opnir en
sérstaklega eru þeir boðnir sem stóðu að minningartónleikunum.
AI