Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.02.1997, Page 7
iTTÍ_.
IDagur-'CEímhm Laugardagur 22. febrúar 1997-19
Það er eins og
gögnin séu vistuð á
Pentium vél þegar
Tryggvi er spurður
um einhvern gaml-
an vélbát úr Eyja-
flotanum fyrr á öld-
inni. Fyrr en varir
hefur Tryggvi tínt til
allt um sögu báts-
ins, um smíðina,
skipstjóra, vélar-
tegund og
örlög bátsins.
Sé miðað við tímakaup næði
það hins vegar ekki verka-
mannataxta.
Langafi Tryggva, Gunnar
Marel Jónsson í Dráttarbraut
Vestmannaeyja, var þekktur
skipasmiður fyrr á öldinni.
Hann smíðaði alls tólf báta í
fullri stærð. Barnabarnabarnið
hans er hins vegar að smíða
öllu minni báta en þeir eiga
það sameiginlegt, Gunnar Mar-
el og Tryggvi, að vera miklir
handverksmenn.
Tryggvi er algjörlega sjálf-
menntaður í módelsmíðinni.
Hann hefur aldrei farið á nám-
skeið heldur hefur prófað sig
áfram. Vélstjóramenntunin
kemur reyndar að góðum not-
um því Tryggvi þarf að leysa
ýmis vandamál sem koma upp
og þá kemur tækniþekkingin
úr vélasalnum sér vel. Tryggvi
segir að galdurinn við módel-
smíðina sé að hafa ríkulega
þolinmæði í bland við hæfilega
mikla útsjónarsemi.
„Gamlir sjóarar hafa gaman
að því að spjalla við mig um
gamla vélbáta. Þeir fylgjast vel
með smíðinni og sýna henni
áhuga. Ég hef gaman af því
enda eru margir af köllunum
afar fróðir um gamla tímann.
Gaman væri ef einhverjir sem
eiga gamlar myndir, bæði af
bátum og einnig þegar þeir
voru í smíðum, aðallega Eyja-
bátum en einnig annars staðar
frá, að fá að taka eftir þeim,“
segir Tryggvi.
Módel af Jötni VE 273. Þarna sést vel á þilfarið og hve mikil nákvæmnisvinna liggur þar að baki.
Hafsjór af fróðleik um
bátaflotann
Áhugamál fólks eru margvís-
leg, svo ekki sé meira sagt.
Líkt og ungar stúlkur geta þul-
ið upp ýmis smáatriði í ævi-
ágripum poppstjarna og leik-
ara, og ungir menn kunna
staðreyndir um ensku knatt-
spyrnuna eða NBA-deildina
betur en landafræði- og sögu-
bækurnar í skólanum, er
Tryggvi eins og alfræðiorðabók
þegar kemur að ástum og ör-
lögum Eyjaflotans og reyndar
alls íslenska togara- og báta-
flotans. Það er eins og gögnin
séu vistuð á Pentium vél þegar
Tryggvi er spurður um ein-
hvern gamlan vélbát úr Eyja-
flotanum fyrr á öldinni. Fyrr
en varir hefur Tryggvi tínt til
allt um sögu bátsins, um smíð-
ina, skipstjóra, vélartegund og
örlög bátsins. Tryggvi segist
hafa brennandi áhuga fyrir
öllu sem viðkemur Eyjaflotan-
um frá því vélbátaútgerð hófst
1906. Fyrir utan sögulegan
fróðleik hefur Tryggvi safnað
myndum af Eyjabátum og öðr-
um íslenskum bátum og á
hann svo til allan flotann í
myndrænu formi aftur til árs-
ins 1940. Hann hefur sjálfur
myndað alla nýja báta frá
1984 og hafa bátamyndir hans
birst víða. Við módelsmíði sína
styðst Tryggvi við teikningar
Siglingamálastofnunar að
grunni til. En þegar kemur að
útlitinu og smáatriðunum á
bátnum sjálfum styðst Tryggvi
við ljósmyndirnar. Vestmanna-
eyingar sem þekkja til Tryggva
vita að hann hefur fleiri
áhugamál. Meðal annars er
hann með ólæknandi mótor-
hjóladellu og hefur átt ýmsa
mótorfáka frá því hann var
unglingur. Þegar hann kvæntist
fyrir nokkrum árum kom hann
ásamt tilvonandi eiginkonu á
mótorhjóli til kirkju! Mótor-
hjóladellan hefur síður en svo
bráð af honum þrátt fyrir að
hann hafi haldið upp á fertugs-
afmæli sitt um daginn. Hann er
enn með tryllitæki sem hann
notar til að tæta og trylla upp
malbikið á góðviðrisdögum.
Tryggvi segist ekki tíma að
hanga yfir sjónvarpinu þegar
hann er í landi. Hann notar
það eingöngu til að drepa tím-
ann út á sjó. Honum þykir
greinilega vænna um tímann í
Iandi!
Síminn hringir. Óskar á Há-
eyri er á hinum endanum. Það
er ræs. Tryggvi verður að
leggja frá sér málningarpensil-
inn og ganga frá áður en hann
fer um borð í Frá VE. Loka-
frágangur á Austfirðingi verð-
ur að bíða um sinn, eða þang-
að til í næstu brælu...
ÞoGu/Eyjum
Tryggvi og síldarflutningaskipið Haförninn.
STARFSMANNAFÉLAG
AKUREYRARBÆJAR
STAK og BSRB auglýsa:
Starfslokanámskeið
Starfsmannafélag Akureyrarbæjar og Norðurbandalag
BSRB standa fyrir starfslokanámskeiði sem er opið öll-
um félögum í STAK og BSRB á Norðurlandi. Nám-
skeiðið verður haldið tvo laugardaga, þ.e. 1. mars og
15. mars nk. í Þjónustumiðstöðinni, Víðilundi 24.
Dagskráin
Laugard.
Kl.
13.00-13.10
13.15-14.40
14.40- 15.10
15.10-15.40
15.40- 16.15.
16.20-16.50
er eftirfarandi:
1. mars 1997.
Efni
Setning
Öldrunarþjón. ríkis
og sveitarfélaga
Húsnæðismál
Kaffihlé
Tómstundast.
aldraðra
Lífeyrissjóðir
Laugard. 15. mars 1997
13.00-14.45
14.45-15.15
15.15-15.45
15.55-16.30
16.35-17.00
Líkamsþjálfun
Kaffihlé
Tryggingar, bætur
Handverk á
Punktinum
Námskeiðslok
og umræður
Leiðbeinendur:
A. Jakobína Bjömsd.
Bjöm Þórleifsson
Guðríður Friðriksdóttir
Sigurbjörg Jónsdóttir
Birna Jóhannesdóttir
Stefán Ólafsson
Kristjana Baldursdóttir
Kristbjörg Magnadóttir
A. Jakobína Bjömsdóttir
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku til skrifstofu STAK
í síma 461 1599 í síðasta lagi 26. febrúar 1997.
Með félagskveðju,
Skrifstofa STAK.