Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.03.1997, Side 19
Laugardagur 1. mars 1997 - 31
jDcxgur-©ntírat
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
IVIoel
Að stunda pilluát er ekki
verra en að drekka te,“
er nokkurn veginn það
sem Noel Gallagher, gítarleikari
og leiðtogi Oasis, lét hafa eftir
sér á dögunum og hefur valdið
enn einu írafárinu í kringum
þessi bresku poppgoð. Hversu
illa sem þetta nú hljómar með
tilliti til æskunnar, sem menn
óttast að taki þetta bókstaflega,
svo ekki sé nú meira sagt, er þó
út af fyrir sig hægt að leið gild
rök að því að þetta sé samt rétt,
að minnsta kosti og þá ekki
Friðrik Karlsson,
sem nú er að gera
það gott í landi
Engilsaxa, var
útnefndur
gítarleikari
ársins 1996.
Helstu
stað-
hvað síst hér á landi, er það
nefnilega lífsspursmál fyrir
marga að gleypa pillur í
„massavís" svo þeir geti haldið
sér gangandi. Það getur því vel
verið að of mikið sé gert úr
þessum orðum poppstjörnunn-
ar, þau tekin of bókstaflega, þó
menn eins og hann verði auð-
vitað að hafa sín takmörk eins
og aðrir.
E.t.v. kann það svo líka að
vera rétt að Gallagher hafi bara
verið að segja þetta til að hrella
keppinauta sína í Blur. Hann lét
þau orð einmitt falla á sama
tíma og nýja lagið þeirra, Be-
etlbum, fór rakleiðis á
toppinn í Bretlandi. Náði
hann með þessari
yfirlýsingu alveg að
skyggja á þenn-
an árangur
Blur. Þessu
halda
margir fram,
en þetta kann
samt bara að hafa
verið tilviljun. Og
raunar má fullyrða að
svo hafi bara verið, því
þegar grannt er skoðað féllu
þessi orð í kjölfar þess að Brian
Harvey söngvara East 17 var
sparkað vegna ummæla og
neyslu eiturlyíja (nánar tiltekið
E-pillunnar) Hefur Gallagher,
sem líka hefur verið þekktur
fyrir óheilbrigðan lifnað, því
Noel Gallagher leiðtogi Oasis hefur enn einu sinni tekist að valda ókyrrð í
bresku pressunni.
öðrum þræði verið að gefa íjöl-
miðlunum langt nef, ef að líkum
lætur.
Annars er það af Noel, Liam
bróður hans og félögum þeirra í
Oasis að segja, að þeir vinna nú
að krafti að nýju plötunni. Ein
15 lög hafa verið tekin upp, en
gert er ráð fyrir að platan inni-
haldi 12.
reyndir hátíðar
Eins og sjálfsagt ílestum er
kunnugt voru íslensku
tónlistarverðlaunin afhent
fyrir rúmri viku í hófi á Hótel
Borg. Var allt í allt um 17
flokka að ræða sem verðlaun
voru veitt fyrir auk þess sem á
dagskrá voru skemmtiatriði og
afhending viðurkenninga fyrir
söluhæstu plötur ársins 1996.
Þær plötur sem afgerandi
mest seldust voru Merman með
Emilíönu Torrini, sem seldist í
um 11 þúsund eintökum og
Strumpajól, sem fóru í rúmum
mu þúsund eintökum. Hvað svo
verðlaunahafana snertir kom
fátt á óvart, nema hvað að fé-
lögunum þremur í Botnleðju
var hampað meir en ef til vill
sumir höfðu búist við.Fengu
þeir víst þrenn verðlaun, sem
hljómsveit ársins, fyrir bestu
plötu ársins, Fólk er fífl og fyrir
lag ársins, Hausverkun. Er tríó-
ið unga úr Hafnarfirðinum vel
að þessum verðlaunum komið.
Það var svo líka nokkuð
ánægjulegt að Anna Halldórs-
dóttir var útnefnd sem Bjart-
asta vonin fyrir fyrstu plötuna
sína, Villtir morgnar, þó reynd-
ar megi segja að þessi fokkur sé
nokkuð afstæður.
Annars skiptust verðlaimin
að öðru leyti þannig, að Friðrik
Karlsson var útnefndur gítar-
leikari ársins og rauf þar með
„sigurgöngu“ Guðmundar Pét-
urssonar sem hafði hreppt
þennan titil í öll fyrri skiptin
þrjú. Félagar Friðriks í Mezzo-
forte, Gunnlaugur Briem
trommari, Eyþór Gunnarsson
hljómborðsleikari og Óskar
Guðjónsson saxafónleikari
nældu svo líka í verðlaunin í
sínum flokkum, þannig að
Mezzoforte var eiginlega líka
hljómsveit ársins rétt eins og
ungu mennirnir í Botnleðju.
Bassaleikari ársins var hins
vegar Eiður Arnarson, sem er
nú í hinni endurreistu Todmo-
bile. Textahöfundur ársins var
Megas og Stefán Hilmarsson,
Friðrik Sturluson og Máni Svav-
arsson fengu svo viðurkenning-
una saman sem lagahöfundar
ársins. Emih'ana var einn gang-
inn enn valin söngkona ársins
og Bjarni Arason söngvari árs-
ins, sem kannski líka kemur
nokkuð á óvart, en er fyllilega
verðskuldað. „Gamli skalla-
popparinn" Gunnar Þórðarson
var svo heiðraður sérstaklega
fyrir framlag sitt til íslenskrar
popptónlistarsögu.
Þannig var það nú í stórum
dráttum hjá mörgum af popp-
urum þessa lands, á hinni óop-
inberu árshátíð þeirra.
4 ii liJntA AÁLÍUÁií i iúáá U,i i íÍAÁaÍÍ Máí á . L.ii.t . ,i í|La i 1
° n 1 wiínWHili
• Hlutirnir með Gus
gus hópinn ganga eins
og í sögu og virðist nú
fátt geta komið í veg
fyrir að hann verði
næsta frægðarfyrir-
bæri íslensku þjóðar-
innar á heimsvísu.
Smáskífan með laginu
Believe kom út 17.
febrúar og hefur verið
að fá jákvæða dóma og
nú er svo komin dag-
setning á útgáfu fyrstu
stóru plötunnar. Kem-
ur hún út hjá 4AD í Bretlandi
7. apríl og svo í framhaldinu
víðar um heim í dreifingu hjá
risum á borð við Warner Brot-
hers og Virgin.
• Eftir um tveggja ára undir-
búning, m.a. fólginn í mótun á
stíl með fjölda tónleika, er nú
fyrrum bassaleikari Nirvana,
Krist Novoselic, loksins tilbúinn
að gefa út fyrstu plötuna með
hljómsveitinni sinni, Sweet 75.
Mun platan bera heitið, Dogs
og kemur hún út snemma í mai
á vegum útgáfurisans Geffen,
sem hafði Nirvana líka á sínum
snærum. Það er hinbs vegar
ekki á hreinu hvert Novoselic
og félagar stefna tónlistarlega
á plötunni, en þó er vitað að
það verður öðruvísi en fyrrum
félagi hans, Dave Grohl og
hans kumpánar eru að fást við
í Foo Fighters. Það á Novoselic
hins vegar sameiginlegt með
Suede. Koma ekki til fslands, í bili að minnsta kosti.
Grohl nú, að hann skiptir um
hlutverk með Sweet 7t, spilar
ekki á bassa eins og með Nir-
vana, heldur á gítar eins og
Grohl með FF.
• Undanfarnar vikur hefur það
legið í loftinu, að ein af helstu
gítarpoppsveitum Breta á síð-
ustu árum, Suede, kæmi hing-
að til land einhvern tímann í
kringum páskana og héldi hér
tónleika. Nú er aftur á móti
orðið ljóst að af því verður
ekki, í það minnsta í þetta
skiptið. Önnur þekkt nöfn eru
samt á hinn bóginn í umræð-
unni, t.d. Liverpoolsveitin
hressilega Boo Radleys auk
þess sem búist er við að Pro-
digy komi hingað enn eitt
skiptið. (í það fjórða, ef rétt er
munað) Svo hefur blessaður
drengurinn hann Damon Al-
barn söngvari Blur lýst yfir
vilja að halda aftur tónleika
hér í sumar, en það ræðst víst
af því hvernig sveit-
inni gengur í væntan-
legri Bandaríkjaför.
• Bandaríska rokk-
sveitin Collective So-
ul, sem á meistara-
legan hátt hefur sam-
einað kröftugt og
melódiskt rokk og
þjóðlagaáhrif á
tveimur fyrri plötum
sínum, Hints... og
Collective soul, sendir
nú frá sér sína þriðju
plötu 10. mars. Mun hún bera
titilinn Deciplined Breakdown.
• Það er gömul saga og ný að
poppheimurinn getur leikið
menn grátt og það er eitt að
verða ríkur og frægur og ann-
að að standa undir því. Þetta
sannast nú enn og aftur á
söngvaranum Brian Harvey,
sem nú á ekki sjö dagana sæla.
Fyrrir nokkrum vikum var
honum fyrst vikið úr hljóm-
sveitinni sinni vinsælu, East 17,
sem hann hefur verið með um
árabil við miklar vinsældir,
vegna eiturlyfjaneyslu og nú
fyrir skömmu bættist svo grátt
ofan á svart hjá honum er
hann ásamt fleirum gekk í
skrokk á ljósmyndara einum
fyrir utan skemmtistað í Lond-
on. Var hann handtekinn
skömmu síðar og á yfir höfði
sér þunga refsingu.