Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Síða 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Síða 9
 Þriðjudagur 11. márs 1997 -9 iDagur-®tmtitn Halldór Eyjólfsson áhugamaður um umhverfis- og samgöngumál skrifar Vegir um hálendið Framtíðarsýn: Miðhálendisvegur uppbyggður meðfram háspennulínu milli suður- og austurlands ásamt línutengingu til Akureyrar og vegi til Mývatns í upphafi næstu aldar. Þjórsárbrúin úrelt Fljótlega þarf að byggja nýja 2ja akreina brú yfir Þjórsá og velja nýtt brúarstæði, með tilliti til hraðbrautar um suður- ströndina allt til Austurlands. Núverandi brú er á hættu-svæði Suðurlandsskjálfta, einnig fjölg- ar slysum og umferðartöfum á og við brúna árlega, enda eykst umferðarhraðinn með hverjum áratug og þungaflutningavagn- ar stækka ört. Þetta brúarstæði hefur vafalaust tahst hagkvæmt árið 1895, og við hæfi hest- vagna. Brekkur, blindhæðir og beygjur henta ekki nútímanum. Skyggnst til næstu aldar. Fækkar beygj- um og breikka brýr? Þessi þrönga brú var reist 1949 og hún þjónar Rangæingum, Skaftfellingum og Sunnmýling- um allt austur á Hérað ásamt almennri Hringvegarumferð. Þetta er eina brúin á þessu 230 km langa fljóti, sem klýfur byggðirnar ofan úr Þjórsárdal og til sjávar, að undantekinni virkjanabrú inn á afrétti. Nú- verandi brú gæti annað innan- héraðs umferð í náinni framtíð, svo sem póst- og mjólkurflutn- ingum ásamt skóla- og áætlun- arbílum. Víkingasveit Vegagerðar Oftast er talað um 2 brúar- stæði, það efra við Þjórsárholt, en á því svæði eru 2 - 3 virkj- anaáform, með tilheyrandi brú- argerð, ótímasett. Hitt brúar- stæðið er við Rauðavatn, ofan Fljótshóla austur í Háfsnes. Þar munu aðstæður svipaðar og við Óseyrarbrú, Markarfljót, Kúða- fljót og Fjallsá, en þjóðvegir eru komnir beggja vegna, nr. 305 og 275, en brúna vantar. Nú er ekki lengur um vorflóð í Þjórsá að ræða, því uppistöðulón raf- orkuvera taka við þeim, en það hefur auðveldað mönnum vinnu við brúargerð þegar hægt er að veita vatninu frá á meðan und- irstöðustólpar eru reknir niður og gengið er frá grjótvörn á leiðigarða á þurru. Það sannað- ist við brúargerð á Skeiðarár- sandi í haust, að í brúarvinnu- flokkum Vegagerðarinnar eru vel þjálfaðir verkkunnáttumenn með stórvirkan tækjabúnað og nefnast þeh nú víkingasveit Vegagerðar, sbr. víkingasveit Landsvirkjunar (línumenn) og víkingasveit lögreglunnar. Veikir hlekkir á Hringvegi Þessa tækni ætti að nota við brúargerð á Þjórsá sem fyrst, opnist augu Samgöngmnála- ráðuneytisins á þeim veika hlekk á Hringveginum, sem ein EINBREIÐ BRÚ á Þjórsá er. Undarlegt andvaraleysi viðkom- andi ráðuneytis og/eða þing- manna Suður- og Austurlands um framtíðarveghnu milli Faxaflóasvæðis og Fljótsdals- héraðs með suðurströndinni hefur taíið skipulagsmál í við- komandi héruðum og gert þau ómarkviss sbr. þjóðvegur 1 í gegnum miðbæjarkjarna Sel- fossbæjar, með gerðu hringtorgi ásamt trjá- gróðri og blómabeð- um í gamla þjóðvegar- stæðinu, sbr. Borgar- nes, Mos- fellsbæ og víðar. Með svona skipulags- leysi skap- ast umferð- artafir og slysahætta, því ekki fer saman akst- ur barna- vagna, gangandi fólks akstur stórra ílutn- ingavagna. Það þjónar ekki nútíð að þjóðvegir séu lagðir eftir heim- reiðum og hlöðum nærliggj- andi bæja. Þó má sjá slíka hand- vömm í einstaka byggðarlagi þar sem verið er að leggja nið- urgrafna og hlykkjótta vegi, líkt og gert var fyrir 100 árum. Hraðbraut Á dögunum gerði farþegi í bíl á leið- inni frá Síðu að Sel- fossi sér til dundurs að telja brýrnar á þessari leið, ein- breiðar og tvíbreið- ar. Brýrnar voru 28, af þeim voru 20 einbreiðar. til Hornafjarðar Með nútímaflutningatækni þarf endurbætta vegi og tvíbreiðar brýr, einnig jarðgöng, sórstak- lega í Reynisfjall, en Óskar í Vík, þingmaður Skaftfellinga gerði tillögur þar um, ásamt bátahöfn þar og tilheyrandi vegtengingum. Verður nýjum vinnubrögðum beitt í vegstæðisvali? Eykst ökuhraði? Nú þarf brú á Þjórsá, Hólmsá neðan Djúpóss og Hornaíjarð- arfljót um Skógey, sunnan flug- vallar. Einnig þarf jarðgöng, syðst í Reynisíjalli, undir Al- mannaskarð í Skarðsdal og inn af Berufirði undir Exi í Suður- dal. Einhverjir óvissuþættir munu vera á þessum slóðum, en staðkunnugir telja þessa framkvæmd nauðsynlega í framtíð. Líklega verður Þrengslavegur og Ölfusárbrú vestan Eyrarbakka framtíðar- veglína um Suðurland, með sjávarsíðunni austur til Horna- Ijarðar og síðar að Egilsstöðum á Héraði. Veglínu þarf að breyta við Þykkvabæ og í Mýr- dal. Bið verði á hálendis- vegi norðan jökla Ótrúlegt er að þjóðin hafi fjár- magn til að gera heilsársveg norðan jökla meðan verið er að ljúka við og endurbæta hring- veginn, en atvinnulífið kallar stíft eftir hraðbrautum vegna þungaflutninga. Kort Það mun örugglega koma vegur frá Mývatni beint suður sanda til Suðurlands. Hliðarvegur verður frá efstu drögum Sand- múladalsár til Austurlands sunnan Dyngjufjalla en norðan Vaðöldu, um nýja brú á Jökulsá á Fjöllum við Upptippinga, og þaðan norðan FögruQalla en sunnan Hvannstóðsijalla að Laugafelli. Þar er komið á upp- hleyptan veg, og er þá greiðfært til Egilsstaða og bærileg slóð suður að Snæfelli. Það verður ekki reynt að tímasetja þessa vegi, en hitt er líklegt að stað- setning sé í nánd, varla verður malbikað fyrr en eftir árið 2020 - 30. Meirihluti umrædds veg- stæðis er sléttlent, mest sandar, möl og hraun. 4 aðilar þurfa að koma að staðsetningunni, svo að hægri höndin viti hvað sú vinstri er að gera og peningum sé ekki eytt að óþörfu eins og gerst hefur. Einn hálendisvegur milli Mývatns og Rangárþings Einn hálendisvegur milli Mý- vatns og Rangárþings, með tengingu til Austurlands við Sandmúladalsárupptök, en ekki þrír eins og nú horfir. Æskilegt samráð viðkdmandi stofnana verði haft um framan- Það mun örugglega koma vegur frá Mý- vatni beint suður sanda til Suður- lands. Hliðarvegur verður til Austurlands. greindan hálendisveg. 1. Línuvegur sem þarf að vera fær flutningabflum á bygg- ingartíma viðkomandi raf- línu, svo og jeppafær allt ár- ið til eftirlits og viðhalds. 2. Vegagerðin komi að vega- lagningunni með tilliti til framtíðarþjóðvegar, en fjall- vegasjóður annist árlegt við- hald og merkingar. 3. Sýslumenn eða hreppstjórar viðkomandi afrétta gæta þess að rétt sé staðið að framkvæmdum og gróður- lönd bætt ef þau spillast. 4. Skipulagsnefnd rfldsins eða viðkomandi héraða verði ráðgefandi. Þeir vegslóðar sem myndast hafa á undanförnum áratugum í óbyggðum við rannsóknar- ferðir og smalamennskur verði merktir á kortum en ekki hefl- aðir. Framangreindir ijallvegir (línuvegir) þurfa að liggja sem næst línunum svo möstrin virki sem vegvísar í dimmviðri og það er einnig kostur þegar myndatökumenn vilja ekki hafa möstur í myndefninu. Skaftfellingur skrifar í Dagskrána 5/12 1996 Á dögunum gerði farþegi í bfl á leiðinni frá Fossi á Síðu að Sel- fossi sér til dundurs að telja brýrnar á þessari leið, einbreið- ar og tvíbreiðar. Það var dimm- viðri og þoka svo talningin er kannske ekki alveg örugg en brýrnar töldust vera 28, og talningu hætt við Þjórsá. Af þeim voru 20 einbreiðar. Á þessari leið eru mörg stór vatnsföll. Þetta er ca 250 km þægileg leið og einu brekkurnar eru við Vík. Vegurinn er góður, hvergi þarf að slá af löglegum hraða nema í gegnum Vík, Hvolsvöll, Hellu og við einföldu brýrnar. Menn eru sammála um að brýrnar þarf að breikka, sem er bæði mikið verk og dýrt. Það þyrfti líka að leggja þjóðveg nr. 1 utan við Hvolsvöll og þjóð- vegurinn er utan við þéttbýhð á Hellu. Þar ætti ekki að þurfa að minnka hraðann að mati lang- ferðamanna, nema þá fáu daga sem hestamannamót eða aðrar stórsamkomur eru á Gadd- staðaflötum. Hella og Hvolsvöll- ur eiga ekki að fá að vaxa yfir þjóðveg nr. 1 eins og gerst hef- ur á Selfossi og víðar.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.