Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.04.1997, Side 8
20 - Fimmtudagur 3. apríl 1997
Jkgur-©nrám
Ferðabændur í Fellabæ
Mannltf d Austur-
landi er í m 'örgum
litum. Blaðamaður
Dags-Timans fórd
fleygiferð í gegnum
Austfirðingafjórð-
ung d skírdag. Fyrir
utan að skoða fjóll
ogfirði var sjónum
ekki síður beint að
fólkinu. Fólkið er
firnindunum sterk-
ara — einsog segirfrd
hér og nú.
Hér voru sautján gestir í nótt,
en í það heila getum við hýst 40
manns. Það er talsvert af
ferðafólki hér um þetta leyti
árs, ekki síst fólk sem kemur til
að vera við fermningar, en
núna er verið að ferma í Egils-
staðakirkju og eins í Áskirkju í
Fellabæ. Margir komá hingað
austur vil að vera við þær, sagði
Þórunn Sigurðardóttir á Skipa-
læk í Fellabæ. Hún og Grétar
Brynjólfsson, eiginmaður henn-
ar, reka bændagistingu og eru
býsna umsvifamikil á þeim vett-
vangi. Það er mikið bókað hér í
sumar, segir Þórunn. Aðspurð
segir hún að margir hafi veit
fyrir sér bæjarnafninu Skipa-
læk, en býlið er byggt út úr
landi Ekkjufells. Nafnið er
dregið af því að í mýrinni hér
fyrir ofan bæinn er kelda og
lækur frá henni fellur hér fram
í Lagarfljót. Við þann lækjarós
eru síðan gamlir ferjusteinar -
þar sem var lægi ferjuskipa
sem gengu yfir Lagarfljót, áður
en það var brúað, segir hún.
Á fiskhjölliim við Stöðvaríjörð
Á fiskhjölfunum, sem standa
skammt utan við kauptúnið við
Stöðvarfjörð, hittum við þá
Tómas Björnsson og Óiaf Gutt-
ormsson, starfsmenn Gunnars-
tinds. Þeir voru í sannköUuðum
víkingaham að hengja upp
þorkshausa, þegar við hittum
þá. Nígeríumarkaður kallar.
Bolfiskvinnslan er núna að fara
aftur af stað, en hún hefur legið
í láginni síðan í september. Það
hefur ekkert verið fryst síðan
þá, það er mikið búið að vera í
loðnu, segir Ólafur Guttorms-
son. Hann er heimamaður á
Stöðvarfirði, og hefur búið þar
alla sína tíð. Tómas er hinsveg-
ar aðfluttur frá Austurlöndum
Qær, en móðir hans býr með
Birni Guðmunssyni, sem stýrir
útibúi Landsbankans á staðn-
um. „Það er algjört lágmark að
greiða fólki 70 þús. kr. iaun á
mánuði. Minna má það ekki
vera. Nei, ég geri ekki ráð fyrir
því að mitt atkvæði verði þungt
á metunum þegar fólk segir álit
sitt á þessum samningum," seg-
ir hann.