Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Blaðsíða 1
LIFIÐ I LANDINU MÍÓVÍkudagur 9. apríl 1997 - 80. og 81. árgangur - 66. tölublað Blað „Nútímaáhorfandi er orðinn vanur því að fara í bíó, horfa á sjónvarp, hlusta á músík og þetta allt saman býr til mynd. í staðinn fyrir að leikmyndin segi okkur að við séum komin til Frakk- lands eða Sikileyjar þá för- um við bara með músík. Og það er alveg nœgilegt. Ein- faldleikinn getur yfirleitt farið með okkur mjög langt. “ Mynd: GS SKIPTIUM SKOÐANIR EINS OG SOKKA „...þegar þú ert bú- in að lesa ein- hverja bók þá ertu í raun og veru búin að leikstýra henni - þú hefur séð hana í þínum huga... “ Svo lýsir Halldór E. Laxness þeim vanda sem hann stendur frammi fyrir við uppsetningu á Vefaranum mikla frá Kasmír eftir nafna hans nóbelskáldið. Halldór seg- ir lesendur bókarinnar hafa mjög sterkar skoðanir á upp- setningunni en Ieikritið verður frumsýnt á Renniverkstæði Leikfélags Akureyrar á föstu- dagskvöld. „Það er nú þannig með þessa blessuðu bók að það eru geysi- lega miklar ranghugmyndir í gangi um hana. Steinn Elliði er ekki einn í heiminum. Þetta er miklu meiri saga um fórnar- lömb manna eins og Steins Ell- iða,“ segir Halldór og á þar við hugsjónamenn sem sjást ekki fyrir. - Þú vannst leikgerðina ásamt Trausta Ólafssyni en í fljótu bragði virðist Vefarinn hreint ekki leik- ræn saga. Af hverju völduð þið hana? „Ég held nú að ef menn skoði bókina þá komist þeir að öðru. Þó að bók- in sé 320 bls., og þar sé fullt af hlutum sem ekki ganga á sviði, þá á þessi mikla ættarsaga Ylfingsljölskyldunnar sérstak- lega vel við svið. Þetta er lík- lega ein af þyngstu bókum Lax- ness en þegar þú ert búinn að búa til leikverk þá er hún allt öðruvísi." - Þungamiðjan í bók Laxness eru líklega þessi flaumur af heimspekilegum pælingum Steins Elliða. Þær eru sem sagt ekkert aðalatriði í leikritinu? „Nei, en það er líka miklu einfaldara að sýna á sviði þenn- an mikla þankagang Steins Elliða og þessar endalausu breytingar hans í hugsun. En þetta verk er ekki eingöngu um hann. Við er- um að reyna að lýsa því að menn eru allt- af í leit að trú á eitthvað því ef við trúum ekki á eitthvað þá erum við varla til.“ Diljá - Það veður á Steini í bókinni en Diljá er ekki mjög frek til orðs- ins og er nánast engill og hálf- ótrúverðug... „Nei, Diljá er bara venjuleg manneskja. Diljá er næstum því aðalkarakterinn í þessari bók þó að Steinn segi fleiri orð í bókinni. Diljá er fullkomlega einlæg, án þess að vera með einhvern kjaftavaðal. Saklaus og hrein og trúir á að maðurinn sé nokkuð góð manneskja og að lífið sé fallegt. Steinn er hins vegar alltaf að breytast, skiptir um skoðanir eins og hann skiptir um sokka. Hún þróast sem persóna og það eru stór- brotin hvörf í hennar lífi þegar hún ákveður að yfirgefa allt og alla fyrir það eina sem er hægt að lifa fyrir: ástina.“ Ruglið og vitleysan.... Halldór segir einna skemmti- legast að fylgjast með Diljá í leikritinu „með því hvernig hún velkist á milli í þessum voðasjó hugsjóna og trúarbragða,“ þar sem hún sé eins konar persónu- gervingur fólksins sem hefur orðið að láta hugsjónamenn eins og Stein yfir sig ganga í gegnum tíðina. „Sérstaklega á þessari öld þar sem heilaþvott- ur hefur verið rosalegur og hundrað milljónir manna hafa verið drepnar fyrir einhvern málstað," segir Halldór og vísar til faUs og upprisu þjóðar- bandalaga þessa öldina. „Þá fer maður að pæla í þessum miklu hugsjónamönnum sem eru til enn þann daginn í dag. Þegar maður hugsar um Alþýðu- bandalagið, Sjálfstæðismenn eða krata, þessa menn sem þykjast endalaust hafa rétt fyrir sér. Maður kaupir það ekki lengur að einhver hafi formúl- una tilbúna til að bjarga heim- inum.“ - Og stórhuga maður eins og Steinn endar... „Þessi fullkomnunarþrá þessa ófullkomna manns gerir það að verkum að hann endar bara úti á bjargi og fellur þar fram af. Svona eins og við vit- um að þessi mál hafa hrunið í Evrópu; nasismi, fasismi, kommúnismi... heilaþvotturinn, ruglið og vitleysan sem kemur með þessu öllu saman...,“ sagði Halldór og mátti greinilega sjá hann fyrir sér hrista hausinn yfir öllu þessu samansúrraða rugli sem viðgengst í heiminum. lóa Steinn Elliði: „Einn daginn er hann að elt- ast við að yrkja Ijóð fyrir guð og ncesta dag œtlar hann að hjarga mannkyninu og þriðja daginn œtlar hann að tortíma því. “

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.