Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Blaðsíða 9
jOagur-'CÍItmmn Miðvikudagur 9. apríl 1997 - 21 æga fólkið Vorír framsýnu unglingar Felulitir, hermannabuxur, langar og mjóar flaksandi flíkur frá byrjun áttunda ára- tugarins toppaðar með ABBA-hárgreiðsl- \ ur virðist vera það sem koma skal í sum- ar hjá þeim bresku ungmennum sem eru hlýðnir sínum tískuspekúlöntum. Fína og frœga leggst auðvitað ekki svo lágt og heldur áfram að kaupa sínar rándýru merkjaspjarir en hér má sjá sönnun þess hve íslenskir unglingar eru framsýnir. Hver hefur ekki rekist á íslenskan ungling í enn lummulegri (og þá vœntanlega framúrstefnulegri) útfærslum á búnaði ABBA-kynslóðarinnar? Jarðlitir eru í tísku. En það er þessi skæri og ógeðfelldi blái litur á pilsinu líka. Minnir helst á þessa sundlaugar- botna sem grill- ir í þegar bækl- ingum ferða- skrifstofanna er flett. Þessi ann- ars heimsblái litur sem laðar okkur til Algar- ve en ekki út í búð að kaupa pils. AJL Krossið ykkurí bak og fyrir og biðjið þess af öllu hjarta að stúlkur vorar taki ekki upp þessa car- menrúllu-út- jaðraogtoppa- greiðslu. Það er hægt að sætta sig við stórgert munstur, óþægilega liti og ofvaxna hælaskó en að þurfa að rekast á litlar Agnetur og Fridur á rölt- inu á 17. júní er einum of mikið af því góða. Reiðbuxurnar eru úti. Gammosíurnar líka. Gallabuxnasniðið lafir en er á leiðinni út. Inn eru komnar buxur sem á allan hátt líta út fyrir að hafa verið sniðnar heima af van- kunnáttu og saumað- ar upp úr forláta af- gangsgardínu- eður púðaefni breskrar húsmóður. Ekkert frumlegt (enda Freemans) og fer alveg prýðilega (þ.e. ef þú sveltir þig í 10 mánuði áður en þú keyptir þér þrjú 10 tíma kort í Trimmformi - og nýttir aila tímana í fitubrennslu). Undirkjólarnir eru nú alveg sér kapítuli. Þunnir skulu þeir vera. Nariurnar verða að sjást - annars er ekkert fútt í þessu. Og þeir eru nú ekki allir svona klæði- legir og bera flestir mun meiri keim af uppruna sín- um (með blúndum og þvíumlíku). Það eru náttúrulega ár og dagar síðan íslenskir unglingar fóru að klæðast felulitum og hermanna- buxum en Bretunum líst víst vel á slíkar múnderingar fyrir næsta sumar. Svona skór eins og hún amma hefði laumað ofan í ferðatöskuna til að tipla á úti á Mallorca fyrir um 25 ár- um síðan.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.