Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Blaðsíða 3
iDagur-Œímtrut Miðvikudagur 9. apríl 1997 -15 „Gott að koma inn í preststörf með vanan og góðan mann mér við hlið,“ segir Skúli Sigurður hér í viðtalinu. starfsmaður SÞ, en ekki aðeins óbreyttur útlendingur. Manni er þá frekar kippt úr landi, ef eitt- hvað kemur uppá eða styrjaldir brjótast út,“ segir Kristín. Að- spurð segist hún vissulega hafa orðið fyrir menningaráfalli að koma frá þróuðu samfélagi á íslandi, í þann frumbýlishátt sem er þarna við lýði. Margt átakanlegt að sjá „Alltaf eru það góðu minning- arnar sem sitja eftir, hvert sem maður hefur farið eða hvað sem maður hefur séð. En þegar ég loka augunum og rifja upp Angóla, þá sé ég auðvitað fyrir mér drulluna, skítinn og kannski það sem ekki er síst sláandi, börnin sem þar veltast um og lifa á matarleifum af öskuhaugunum. Einnig er átak- anlegt að sjá hve margir ganga um á einhvern hátt limlestir. Talið er að um 25 til 30 þúsund manns sé þannig komið fyrir. En það er kannski ekki nema „Ég mœti þvísem að höndum her og með því hugarfari verður maður að taka öllu í þessu starfi. “ von, því í styrjöldum síðustu ára er landið allt lagt jarð- sprengjum," segir Kristín og bætir við: „Allt heilbrigðiskerfið í landinu er í molum, miðað við mælikvarða vestrænna þjóða. Malaría er mjög skæð, sá sem hana fær er hætt kominn, eink- um vegna lélegrar heilbrigðis- þjónustu. Á Hveravöllum Vist Kristínar og Kristins í An- góla síðustu árin er ekki eina sem þau hjón hafa gert, sem er stílbrjótur við „kassasamfélag- ið“ sem hann kallar svo. Á ár- unum 1987 til 1989 gegndu þau starfi veðurathugunarmanna á Ilveravöllum og reyndar nota þau hvert tækifæri sem býðst hérlendis til hálendisferða. „Það er hitastigið sem er mesti munurinn á Hveravöllum og Angóla. Þarna inn á hálendinu gat hann slegið í 25 stiga gadd,“ segir Kristín. Ilún segir að þau hjón hafi átt góð ár á Hveravöllum og dvölin þar skilji eftir sig margar góðar minning- ar. Kann vel við mig í starfi „Ég kann vel við mig í þessu starfi hjá SÞ og hyggst að óbreyttu verða í því svo lengi sem kostur er. Það verður að koma í ljós hvort mér er ætlað að starfa áfram í Angóla, eða hvort ég verð fluttur eitthvað annað. Það ræðst mest af því hvernig friðarferlið í landinu þróast. Nei, ég veit ekki ná- kvæmlega hvaða verkefni ég fer í, þegar ég kem aftur til starfa úti í maí. En það var reyndar verið að tala um að setja upp víðsvegar um landið eftirlits- stöðvar SÞ vegna fyrirhugaðra kosninga. Ég mæti því sem að höndum ber, og með því hugar- fari verður maður að taka öllu í þessu starfi,“ segir Kristinn Pálsson. S g flutti hingað vestur á Isaljörð í haust. Hafði þá aldrei komið hingað áður, og eftir því sem ég best veit á ég engar rætur við Vestfirði. Faðir minn er úr Hreppum og uppalinn í Keflavík og móðir mín er frá Siglufirði. Eg kann afar vel við mig hér fyrir vestan og hlakka til að takast á við þau viðfangsefni sem bíða,“ segir Skúli Sigurður Ólafsson, væntanlegur aðstoðarprestur á ísafirði. Akademískar hremm- ingar Skúli Sigurður er sonur herra Ólafs Skúlasonar biskups og Ebbu Sigurðardóttur, eiginkonu hans. Hann er fæddur árið 1968 og lauk embættisprófi í guðfræði í byrjun október sl. Eiginkona Skúla er Sigríður Björk Guðjónsdóttir, skattstjóri í Vestflörðum, og eiga þau eina dóttur, Ebbu Margréti. Ætla mætti að það hefði ver- ið Skúla biskupssyni auðveld ákvörðun að helga sig guðfræði, en hann segir að svo hafi ekki verið til að byrja með. „Ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum við Sund 1988 og var fyrst í lögfræðinámi við Háskóla íslands. Síðan lenti ég, eins og margir aðrir, í akademískum hremmingum en leysti þær með því að fara í guðfræðinám. Eft- ir því sé ég ekki.“ Kynnist þverskurði mannlífsins Lokahnykkinn í sínu guðfræði- námi tók Skúli úti í Kaup- mannahöfn sl. vetur þegar hann stundaði nám í kenni- mannlegri guðfræði og trúar- bragðasögu. Síðastliðið haust lá leiðin svo vestur. „Ég hef feng- ist við kennslu í vetur. Hef kennt í 4. og 10. bekk grunn- skóla ísafjarðar og þjóðhag- „Síðan lenti ég, eins og margir aðrir, í akadem- ískum hremmingum en leysti þœr með því að fara í guðfrceðinám. Eftir því sé ég ekki, “ segir Skúli Sigurður Ólafsson, vœntanlegur aðstoðarprestur á ísa- firði fræði við Framhaldsskóla Vest- ijarða. Það er áhugavert fyrir prest að starfa að kennslu, því þannig kynnist maður þver- skurði mannlífsins," segir Skúli. Lengi hefur verið baráttu- L.IFIÐ I LANDINU mál í stjórnsýslu Þjóðkirkjunn- ar að embætti aðstoðarprests í Isaíjarðarprestakalli væri föst staða. Kallinu tilheyra þrjár sóknir, þ.e. Hnífsdals-, Ísaíjarð- ar- og Súðavíkursóknir, og íbú- ar innan þeirra eru um 4.000 talsins. Loks nú hefur tekist að fá fasta íjárveitingu til þessa embættis. Geng inn í mótaðar starfshefðir Á kjörmannafundi í síðasta mánuði var Skúli kjörinn til þessa starfs, með góðum meiri- hluta atkvæða. Þörfin á aðstoð- arpresti á ísafirði hefur þótt brýn, meðal annars með tilliti til náttúruhamfara og almennt þungra áðstæðna vestra á síð- ustu árum. „Ég held að það sé mjög gott fyrir mig að koma inn í prest- störf með vanan og góðan mann mér við hlið. Ég geng inn í mótaðar starfshefðir í kallinu og það er auðveldara en að byrja sem nýgræðingur á byrj- unarreit. Ég tek prestvígslu 20. apríl næstkomandi og tek svo við embættinu 1. maí. Þá er sumarið framundan sem er ró- legasti tíminn í störfum kirkj- unnar. Þann tíma reikna ég með að við sr. Magnús Erlings- son, ísafjarðarprestur, munum í sameiningu nota til að móta verkaskiptingu okkar í milli og hvernig við í sameiningu get- um best þjónað sóknarbörnum í Ísaíjarðarprestakalli." -sbs.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.