Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Blaðsíða 4
16 - Miðvikudagur 9. apríl 1997 Jlagur-ÍCtmhm Umbúðalaust Vort daglega æsku sinni og uppeldi. Myndin sýnir einstaklega vel hvernig of- beldi uppalenda, hvort heldur það er líkamlegt eða andlegt, brýtur börn niður. David Helfgott flýr undan ofbeldi og útskúfun föður síns inn í sinn einkaheim, sem liggur á mörk- sumir einstaklingar eru lagðir ekki bara sem börn í skóla, heldur sem fullorðnir á vinnu- stöðum. Vort daglega ofbeldi er líklega eitt af mestu bannsvæð- unum í mannlegum samskipt- um. Það má ekki tala um það eða benda á vonskuna sem við- Viðþolum ofbeldisfólkinu allt of mikið og erum allt offljót að grípa til skýr- inga d begðun þess og framkomu í staðþess að stöðva það. Þegar þú kem- ur að brennandi húsi byrjarðu ekki að leita að eldsupptökunum. um geðveikinnar. Börn sem búa við ofbeldi af hálfu uppalenda, hvort heldur á heimilum eða í skóla eru rænd möguleikum sínum til þess að ná fullum þroska á fullorðinsárunum. Þetta ofbeldi getur birst í mörg- um myndum, t.d. í einelti sem gengst og þrífst í framkomu og hegðun okkar gagnvart hvert öðru. Ætli ýmis munstur kúgun- ar og valds myndu þá ekki hrynja. Gerendur ofbeldis sleppa ótrúlega oft, kannski vegna þess að athyglin beinist að fórnarlambinu, líðan þess og ástandi. Á meðan komast ger- endurnir upp með að endur- taka fyrri hegðun aftur og aftur. Það þorir enginn að styggja of- beldismanninn af hræðslu við að verða beittur ofbeldi sjálfur. Glundroði persónuleikans Þetta verður sýnu flóknara þeg- ar ofbeldið fer fram innan fjöl- skyldunnar eins og í tilfelli Dav- ids Helfgott. Hann kastast á milli lærðrar ástar á föður sín- um og uppreisnar gegn honum. Þegar honum loksins tekst að brjótast undan ægivaldi hans og þiggja styrk til frekara náms í Þegar ég byrjaði í 7 ára bekk var ég forvitinn krakki og þyrsti í all- an fróðleik sem skól- inn minn bauð mér upp á. Fyrsti kennar- inn minn, karlmaður á miðjum aldri, brýndi fyrir okkur börnunum að ein af æðstu dyggðum skólagöngunnar væri að mæta aldrei of seint í skólann. Ég tók þetta sem heilagan sannleika og lagði mig í líma við að mæta á réttum tíma á hverjum degi. Ég var ekki búin að vera nema örfáar vikur í skólanum þegar kennarinn kom dag einn 20 mínútum of seint til kennslu. Þá sagði ég upphátt svo allur bekkurinn heyrði: „Krakkar, nú kom kennarinn of seint“ og svo hlógum við öll skærum, dillandi barnahlátri. Kennarinn gerði sér litið fyrir, gekk rakleitt að mér þar sem ég sat áhugasöm og opin fyrir visku heimsins og rak mér rokna löðrung þannig að ég næstum hrökk út af stólnum. Niðurlæging mín gagnvart skólasystkinum var alger. Þessi löðrungur átti líklega að kenna mér hver réði í heimi skólastof- unnar. Gerendur sleppa Þetta og ýmislegt annað ofbeldi sem við höfum öll þurft að þola rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var að horfa á bíómyndina Shine um ástralska píanóleikar- ann David Helfgott, sem bjó við ofríki og kúgun föður síns í Afkoma bankaima ekki nógu góð 'BOG6! S*8M»anfcaxt|6ri •*girl?6ctað ur&Mml (rigln IJfcrviiriJpUhJWk- roflHSL ofbeldi píanóleik í London þá er honum hafnað fullkomlega af föður sínum og fær aldrei að stíga fæti sínum inn á æskuheimili sitt. Faðir hans refsar honum með því að slíta hann úr tengsl- um við systkini sín og móður. Honum er hafnað af þeim sem gaf honum lífið, þeim fullorðna einstaklingi sem hann lagði allt sitt traust á. Ofbeldi fjallar ekki endilega um blóð og barsmíðar, heldur miklu frekar um þá höfnun sem fórnarlambið verð- ur fyrir og þann glundroða sem allt persónulegt líf hafnar í. Höfnun í líki ofbeldis er líklega einhver versti glæpur sem for- eldrar og uppalendur geta drýgt gagnvart börnum sínum. Slík höfnun getur sett mark sitt á allt líf barnsins síðar meir á ævinni. David Helfgott er frá- bært dæmi um einstakling sem lendir í glundroða og upplausn persónuleikans af því honum er hafnað þrátt fyrir snilligáfu og afburða hæfileika á tónlistar- sviðinu. En allt á sér skýringu, of- beldið líka. Faðir Davids Helf- gott hafði misst foreldra sína og systkini í útrýmingarbúðum nasista. Áður en hann veit af er hann búinn að reisa sínar eigin fangabúðir á heimilinu og orð- inn yfirpyntingarstjóri fjölskyld- unnar. Mér var líka sagt síðar að þessi fyrsti kennari minn hafi verið alkóhólisti og hafi lík- lega verið eitthvað illa fyrirkall- aður morguninn sem hann sló mig. Orsök verknaðarins átti að réttlæta ofbeldið og afsaka manninn. Og þannig er það líka í voru daglega ofbeldi. Við þol- um ofbeldisfólkinu allt of mikið og erum allt of fljót að grípa til skýringa á hegðun þess og framkomu í stað þess að stöðva það. Þegar þú kemur að brenn- andi húsi byrjarðu ekki að leita að eldsupptökunum. m rj rj Hiirn m ikli leiðtogi Mikill leiðtogi stétta- baráttunnar í land- inu reis upp á Al- þingi í vikunni þegar Stein- grímur J. Sigfússon alþingis- maður harmaði hin stór- felldu mistök verkalýðshreyf- ingarinnar að semja frá sér verkfallsvopnið í þrjú ár. Er það niðurstaða leiðtogans að með því að semja til þriggja ára hafi verkalýðshreyfmg- in dæmt sig úr leik í baráttunni við ríkisstjórnina, sem er „harðsvíraðasta ríkisstjórn pen- ingamanna og einkagróða" sem nokkru sinni hefur gengið um gólf í íslenska stjórnarráðinu. Steingrímur sagði m.a.: „Ég hef miklar áhyggjur af því (ég verð að segja það?!) að ríkisstjórnin láti kné fylgja kviði. Það eina sem er eftir, er að stjórnar- andstaðan getur rifið kjaft. Það er annað valdajafnvægi í landinu þegar búið er að hefta verkalýðinn í svo lang- an tíma“. Konaná kaupstaðarskónum Og það er e.t.v. eðhlegt að Steingrímur J. hafi áhyggjur af því að menn geri sér ekki grein fyrir því hversu skelfi- leg ríkisstjórnin er sem verkalýðshreyfingin var að semja við. Út af fyrir sig er það nógu slæmt að allir verkalýðsforingjarnir láti sakleysislega ásjónu Davíðs glepja sig, en það sem verra er þá virðast foringjar í stjórnarandstöðunni ekki með böggum hildar þegar kemur að því að „rffa kjaft“. Konan á kaupstaðarskónum, Margrét Frímannsdóttir sjálfur formaður Alþýðu- bandalagsins og þar með formlegur foringi Steingríms J., hóf utandagskrárumræð- ur í vikunni um þessa illræmdu kjarasamninga sem breyttu valdahlutföhunum. En í staðinn fyrir að benda á hversu skelfileg staðan er orðin, endaði sú snerra með því að forsætisráðherrann baðaði sig í fjölmiölum upp úr því að hér stæði til að auka kaupmátt meira en nokkru sinni fyrr og að hann væri í forsvari fyr- ir ríkisstjórn sem væri hinn eini sanni velgjörðar- maður verkalýðs- ins. Meira að segja kratar sem aha jafnan þurfa ekki margar áskoranir til að ráðast á rík- isstjórnina héldu að sér höndum og viðurkenndu upphátt og í hljóði að tíma- setning umræðunnar hefði eiginlega ekki getað verið betri fyrir ríkisstjórnina og Davíð Oddsson. Hin dulda merking í ljósi þessa er athyglisvert að skoða yfirlýsingu Stein- gríms um að síðasta úrræðið í baráttunni gegn stjórninni sé að „stjórnarandstaðan rífi kjaft“. Sú yfirlýsing er ekki öll þar sem hún er séð, eins og sérfræðingar í „kremlóló- gíu“ Alþýðubandalagsins og aðrir innvígðir vita. Margrét reyndi semsé að rffa kjaft við rfkisstjórnina, en tókst ekki betur en svo að Davíð endaði sem góði kallinn. - f því fel- ast skilaboð Steingríms J. til sinna manna í flokknum. Þetta mikla útspil Steingríms á þingi er því í raun ekki hugsað sem árás á ríkis- stjórnina nema að öðrum þræði. Aðal tilgangurinn er að sýna fram á að hann er miklu betri í því að „rffa kjaft“ gegn Davíð en Mar- grét. IJann er að sýna að ílokksmenn völdu vitlaust þegar þeir kusu Margréti en ekki hann í formennskuna. IJann er að minna á að óðum styttist í að menn fá tækifæri til að breyta til. Garri.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.