Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.04.1997, Síða 2
14 - Laugardagur 19. apríl 1997
^Dítgur-'QIítttmn
Bamahom
Sumardagurinn fyrsti framundan og
tími útileikjanna að renna upp. Not-
um hugmyndaflugið og gerum eitt-
hvað skemmtilegt.
Vorleikir
Þegar snjóa leysir fer litla fætur að langa
að hlaupa. Aldrei er eins gaman í
teygjutvist, snú snú og sippuleikjum en
einmitt á þessum árstíma. Foreldrar, nú
er tækifærið að kenna prinsessunum
ykkar og prinsunum gömlu útileikina
ykkar.
Dansinn dunar
í íþróttahúsinu Seltjarnarnesi mun
dansinn duna í dag en þar fer fram ár-
leg innanskólakeppni Danssmiðju Her-
manns Ragnar. Keppt verður í barna- og
samkvæmisdönsum og er margt vitlaus-
ara en að bregða sér með börnin og
horfa á. Keppnin hefst klukkan 16. Að-
gangseyrir er 400 krónur en frítt fyrir
yngri en Qögurra ára.
Dans á sífellt meiri vinsældum að fagna hjá
ungu kynslóðinni.
Bróðir minn Ljónshjarta
í norræna húsinu á sunnudaginn verður
að þessu sinni sænsk kvikmynd, Bróðir
minn Ljónshjarta, um bræðurna Karl og
Jóhann. Eftir stutta lífdaga í jarðlíflnu
lenda þeir Karl og Jóhann í ævintýra-
landinu Nangijala. Líflð í Kirsuberja-
dalnum er þó enginn dans á rósum því
hinn grimmi riddari Þengill í Þyrnirósa-
dal ógnar tilveru Kirsuberjadælinga.
Myndin hefst kl. 14 og er aðgangur
ókeypis.
Ævintýra-Kringlan
fær Tönju í heimsókn
í dag kl. 14.30 kemur Tanja tatarastelpa
í heimsókn í Ævintýra-Kringluna (á 3.
hæð Kringlunnar). Tanja er leikþáttur
saminn af Ólöfu Sverrisdóttur leikkonu
og eru víst að verða síðustu forvöð að sjá
leikritið því hún ku vera að leggjast í
ferðalög. Tanja segir krökkunum frá
ýmsu sem flökku-tatari verður vitni að á
ferðalögum sínum. Aðgangseyrir er 300
kr. og er barnagæsla innifalin.
Kardimommubærinn á
Húsavík
Þeir Húsvíkingar sem hafa ekki þegar
tekið börnin með á Kardimommubæinn
geta bætt úr því um helgina. Ein sýning í
dag klukkan 17 og á morgun verða tvær
sýningar, önnur klukkan 15 og hin
klukkan 18. Allir í leikhúsið!
Ath! Barnahornið þiggur með þökkum
ábendingar frá öllum þeim sem eru að
skipuleggja eitthvað sniðugt og
skemmtilegt fyrir litla fólkið. Endilega
sendið okkur fax og látið vita (númer:
460 6171)
Þuríður er orðin þula
Þuríður Sigurðardóttir, nýjasta þulan hjá Sjónvarpinu. Mynd- sg
Þuríður Sigurðardóttir
söngkonafékk boð um að
verða þula í Sjónvarpinu
og tók því. Hún birtist í
fyrsta skipti á skjánum á
fimmtudagskvöldið.
etta er ákveðin lífsreynsla og kom
mjög snöggt til. Það var hringt í
mig og ég var spurð hvort ég hefði
áhuga á að prófa þetta. Ég er gjörn á að
prófa eitthvað nýtt og lít á það sem góða
reynslu í bankann. Það var hringt í mig
á miðvikudegi, sagt að prufan hefði
gengið vel og hvort ég væri til í að fara í
útsendingu. Þetta var mjög snöggt," seg-
ir Þuríður Sigurðardóttir, söngkona og
starfsmaður Útvarps Umferðarráðs.
Aðdragandinn var skammur
Þuríður fylgdist með Ragnheiði Clausen
að þulustörfum í Sjónvarpinu á miðviku-
dagskvöldið og hoppaði svo inn í starfið
á fimmtudagskvöldinu. Aðdragandinn
var því mjög skammur. En hvernig
skyldi þessari landsfrægu söngkonu hafa
fundist þetta fyrsta kvöld fyrir framan
myndavélina. Var það erfitt - skemmti-
legt eða kannski truflandi?
„Ég hef náttúrulega staðið fyrir fram-
an sjónvarpsmyndavél áður svoleiðis að
reynsla mín sem söngkona hefur komið
sér vel. Ég hef unnið við útvarp þannig
að það hjálpaði mér að takast á við
augnablikið. Mér leið ekkert illa fyrir
framan vélina enda var viðmót allra
hlýtt og fólk sem hringdi var notalegt. Ég
reyndi bara að tala til fólksins eins og ég
geri þegar ég tala í útvarp," segir hún.
Er í námi og syngur
Þuríður er mjög önnum kafui kona. Hún
er að láta gamlan draum rætast og
stundar nám á listabraut í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ. Hún syngur einnig
með tríóinu Vanir menn, fyrst og fremst
á árshátíðum, þorrablótum og þess hátt-
ar og vinnur svo hjá Umferðarráði þann-
ig að hún býst ekki við að koma mikið
fram sem þula í Sjónvarpinu - en þó eitt-
hvað. Sérstaklega ef fólk er ánægt með
hana og vel gengur. -GHS
✓
tökin milli frændþjóðanna Islend-
inga og Norðmanna út af Smugu-
deilunni hafa birst í ýmissi mynd
og nú hafa Norðmenn farið inn á nýjar
brautir í áróðursstríðinu. Þeir hafa
framleitt stuttermaboli með áletruninni
„íslenskir sjómenn leita að Smugunni".
Þegar myndin er skoðuð er ekki víst
íslenskur ferðamaður rakst inn á Norske
Baren á Kanaríeyjum fyrir stuttu. Þar voru
stuttermabolir hangandi uppi á vegg, þar á
meðal einn af „íslendingi" að leita að Smug-
unni.
Ekki er víst að allir verði jafn hrifnir af þess-
um bol enda Norsararnir sjálfsagt bara að
stríða. íslendingar láta sér þetta í léttu rúmi
liggja enda Smuguna crugglega ekki að
finna á Kanaríeyjum.
að allir íslendingar verði jafn hrifnir, að
minnsta kosti var íslendingurinn sem
kom myndinni á framfæri við Dag-Tím-
ann lítt hrifinn, en íslendingar láta sér
þetta í léttu rúmi liggja. Smuguna er ör-
ugglega ekki að finna á Kanarí. Svo mik-
ið er víst.
Það var íslenskur ferðamaður, sem
var á sólarströnd á Kanaríeyjum um
mánaðamótin mars-apríl, sem rakst inn
á norsku krána Norske Baren, sá bolinn
hangandi þar uppi á vegg - og fannst
slegið undir beltisstað. Hann fór aftur
inn á krána daginn eftir og tók mynd af
veggnum og bolnum. Eins og sjá má er
bolurinn greinilega til sölu á kránni en
ekki fer neinum sögum af verðinu. -GHS
Leiðrétting
Iblaðinu í gær var ranglega greint frá
tveimur Shi Tzu hundum sem voru á
ræktunarsýningu Hundaræktarfélags ís-
lands um síðustu helgi. Á myndinni eru
besti hvolpur sýningarinnar, Kristals-
Yasmín, sem er í eigu Hafdísar Sigurðar-
dóttur. Einnig er þarna Tangsa-Loweesa,
sem er í eigu Jóhanns og Soffíu sem
ræktuðu hvolpinn.