Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Blaðsíða 3
JUtgur-®ímtmt Laugardagur 21. september 1996 -15
Karlakór Reykjavíkur er ekki að baki dottinn. Von er á tveimur geisladiskum frá kórnum á næstunni og mikill hugur í mönnum.
Karlar
Unnendum karlakórssöngs ætli ekki að
leiðast þessi jól. Samtals er von á yfir
fimm klukkustunda efni á geisladiskum
frá hinum ýmsu karlakórum landsins og er
reiknað með að allir diskarnir verði
komnir út fyrir jól.
Diskarnir sem koma út eru
a.m.k. fimm talsins og
hugsanlega fleiri. Karla-
kór Reykjavíkur gefur út tvo
diska, Karlakórinn Fóstbræður
einn, Karlakór Selfoss einn og
Karlakór Akureyrar-Geysir
einn. Heyrst hefur af fleiri kór-
um í sömu hugleiðingum en
ekki náðist í formenn þeirra
kóra til að staðfesta hvort rétt
væri. En hvernig skyldi standa
á að þetta margir diskar
komaút um svipað leyti? Og
ekki síður forvitnileg spurning:
- Er markaður fyrir svona stór-
an skammt af karlakóratónlist?
I samtölum við karlakórs-
menn kemur fram að tilviljun
ráði því að miklu leyti að allir
þessir diskar komi út á sama
tíma. Karlakór Akureyrar-Geys-
ir hefur ekki gefið út hljómplötu
eða geisladisk eftir að hann var
uiaau er greinnega i uppáhaidi hja kórakörlum. Hún syngur einsöng bæði
á væntanlegum diski Karlakórs Akureyrar-Geysis og á diski sem Karlakór
Reykjavíkur er að senda frá sér.
kyrja í kór
Prúðbúnir Fóstbræður horfa tii himins. Ef til vill að biðja hinn háa herra um að diskurinn þeirra, sem kemur út á
næstunni, muni seljast vel þrátt fyrir væntanlegt flóð af geisladiskum frá karlakórum á markaðinn?
stofnaður upp úr tveimur kór-
um en síðast gaf Karlakór Ak-
ureyrar út plötu árið 1975. Þar
á bæ þótti mönnum því tími til
kominn að fara að taka upp
efni og fengu til liðs við sig
söngkonuna Sigrúnu Hjálmtýs-
dóttur sem syngur einsöng á
disknum. Sömu sögu er að
segja af Karlakór Selfoss. Sá
kór hefur ekki sent neitt frá
sér lengi, kórstarfið hefur
gengið vel að undanförnu,
og því var ákveðið að ráð-
ast í útgáfu geisladisks.
„Þetta er aðallega fyrir
okkur gert. Við reiknum
ekki með mikilli sölu og
verðum ánægðir ef við ná-
um upp í kostnað," segir
Júlíus Hólm Baldvinsson,
meðlimur í kórnum. Ein-
söngvarar með Karlakór Selfoss
eru þau Loftur S. Erlingsson og
Berglind Einarsdóttir.
Bjartsýnir á sölu
Geisladiskur Karlakórsins Fóst-
bræður er gefinn út í tilefni af
80 ára afmæli kórsins. „Vissu-
lega höfum við áhyggjur ef allir
eru að gefa út diska á sama
tíma en þessi útgáfa var löngu
ákveðin hjá okkur,“ segir Stefán
Már Halldórsson, formaður
Fóstbræðra. Kórinn stendur
ekki að útgáfunni sjálfur heldur
gefur Skífan diskinn út og segir
Stefán að svo virðist sem út-
gáfufyrirtækið hafi trú á diskn-
um og telji að til lengri tíma lit-
ið muni hann skila hagnaði þó
liann seljist ef til vill ekki í stóru
upplagi strax í byrjun. Á diski
Hér er Karl Jónsson, félagi í Karla-
kór Akureyrar-Geysi, glaður á
góðri stundu enda gaman að vera í
karlakór. Ekki bara út af söngnum,
heldur líka félagsskapnum, ferða-
lögunum og tækifærinu til að
klæðast í fín föt af og til.
þeirra Fóstbræðra syngur Þor-
geir Andrésson einsöng og
hugsanlega verður einn annar
einsöngvari.
Annar diskur Karlakórs
Reykjavíkur er einnig gefinn út
í tilefni afmælis, en sá kór held-
ur upp á 70 ára afmæli í ár.
Bjarni Reynarsson, formaður
kórsins, segir að diskurinn hafi
verið í vinnslu í þrjú ár og
menn séu nokkuð bjartsýnir á
að hann seljist, ekki síst vegna
þess að hann skarti fyrirtaks-
einsöngvurum. Þegar er búið
að ganga frá því að Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Kristinn
Sigmundsson syngi einsöng
með kórnum en ekki er
ljóst á þessu stigi málsins
hvort einsöngvararnir
verði fleiri.
Hinn diskurinn sem
Karlakór Reykjavíkur send-
ir frá sér á næstunni er með
lögum eftir Sigfús Halldórs-
son og var kórinn beðinn sér-
staklega um að syngja inn á
þann disk.
Ástæðurnar fyrir útgáfu
geisladiskanna eru því misjafn-
ar. Þó voru menn sammála um
að margir diskar á sama tíma
séu ekki eintómri tilviljun um
að kenna. Stutt sé síðan geisla-
diskar tóku við af hljómplötum
en plötur séu engu að síður á
hraðri leið með að verða úrelt-
ar. Útvarpsstöðvarnar spili t.d.
síður tónlist sem sé aðeins til á
plötum og þetta ýti enn frekar á
kórana að drífa í að taka upp
efni á geisladisk. AI