Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Qupperneq 9

Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Qupperneq 9
ÍDagur-Œímtim Laugardagur 21. september 1996 - 21 Eiður Smári kemur inn á fyrir föður sinn, Arnór, í landsleik íslands gegn Eistlandi sem fram fór fyrr á þessu ári. Þetta olli svo því að ég fór hingað til Svíþjóðar. Þegar ég var heima var Gunnar Gíslason á leiðinni til Háckhen í Svíþjóð. Hann hafði samband við mig og spurði hvort ég væri ekki til í að skella mér með. í fyrstu hafði ég engan áhuga á því en eftir að hafa talað við forráðamenn félagsins lét ég slag standa og fór utan. Og nú hef ég verið hér í þrjú ár og líkar bara nokkuð vel.“ Fótbolti mín vinna - Hvernig tilfinning er það að sitja hér á hóteli í Svíþjóð og líta til baka yfir tuttugu ára feril í knattspyrnu? „Þegar ég lít til baka finnst mér þetta hafa verið alveg ótrú- lega langt og í raun mun lengra en mig óraði fyrir í upphafi. Þessi tími hefur þó liðið mjög hratt. Ég held að fólk geri sér ekki almennilega grein fyrir því hvað ég er að gera. Til dæmis er alltaf verið að spyrja mig hvort ég ætli ekki að. fara að hætta þessu og snúa mér að einhverju öðru. En menn verða bara að átta sig á því að þetta er mín vinna og ég mun senni- lega vinna við fótbolta í fram- tíðinni. Auðvitað er ýmislegt annað sem mig langar að gera en að sparka í tuðru og líklega á ég eftir að gera margt annað þegar ég er hættur að spila sjálfur. Enginn veit hvernig hlutirnir koma til með að þró- ast.“ Ég held þó að fólk geri sér ekki almennilega grein fyrir því hvað ég er að gera. Til dæmis er alltaf verið að spyrja mig hvorl ég ætli ekki að fara að hætta þessu og snúa mér að einhverju öðru. En menn verða bara að átta sig á því að þetta er bara mín vinna. Oft getur myndast ágætis mórall en hver og einn veit að of mikil tengsl geta haft slæm- ar afleiðingar, því menn eru jú að keppa um sömu stöðurnar. Þann- ig að menn halda sér í hæfilegri fjarlægð frá hvorum öðrum. - Nú er oft sagt að atvinnu- mennska í íþróttum sé harður skóli. Hvernig er líf atvinnu- mannsins og hverskonar reynslu gefur tuttugu ára tuðruspark? „Margir vilja meina að fót- boltamenn lifi einhverju þægi- legu vellystingarlífi. Vissulega er mikill tími aflögu og kannski meiri frítími en í mörgum öðr- um atvinnugreinum. Þetta er hins vegar mjög orkufrekt starf og því get ég lítið annað gert í frítímanum. Þannig að þetta er alls ekki auðvelt líf. En þetta starf gefur mikla og góða reynslu fyrir lífið. Ég vil meina að menn verði góðir mann- þekkjarar í þessu starfi, enda þarf að hafa samskipti við allar tegundir af fólki. Ég tel mig hafa þroskast mikið í gegnum þetta og orðið sjálfstæðari ein- staklingur fyrir vikið. Ég hef til dæmis mjög ákveðnar skoðanir um lífið og hvernig hlutirnir eru metnir. Hlutirnir eru ekki sjálf- gefnir. Það þarf að berjast fyrir sínu.“ Menn halda sig í hæfilegri fjarlægð - Hvaða áhrif hefur líf knatt- spyrnumannsins á fjölskyld- una? „Það er nú upp og ofan. Ég er til dæmis skilinn, þannig að ég get ekki sagt að það hafi haft góð áhrif í rnínu tilviki. Þetta er náttúrlega allt undir einstak- hngnum komið eins og gengur og gerist. Það er þó alveg ljóst að þetta getur verið mjög erfitt fyrir eiginkonurnar enda þurfa þær að hagræða sínu lífi eftir starfsferli eiginmannsins, sem yfirleitt er algerlega óútreikn- anlegur. Það getur því verið erf- itt að gera áætlanir fram í tím- ann.“ - Hvað með liðið og félag- ana, tengjast menn nánum vin- áttuböndum eða eru þetta endalaus átök og samkeppni um stöður í liðinu? „Það er nú dálítið misjafnt. Hérna í Svíðþjóð er þetta aðeins afslappaðra og menn verða dá- lítið tengdari en á meginland- inu. Samkeppnin er þó alltaf til staðar. Oft getur myndast ágæt- is mórall en hver og einn veit að of mikil tengsl geta haft slæmar afleiðingar, því menn eru jú að keppa um sömu stöð- urnar. Þannig að menn halda sig í hæfilegri Qarlægð frá hvor- um öðrum.“ í fótspor föðurins - Nú þegar ferill þinn sem at- vinnumaður í knattspyrnu er senn á enda er sonur þinn Eið- ur Smári Guðjónsen að hejja sinn feril með hollenska stórlið- inu PSV Eindoven. Þetta hlýtur að vera dálítið skrítin tilfinn- ing? „Já, þetta er dálítið skrítið. Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég mjög ánægður fyrir hans hönd, enda er hann alveg gríðarlega efnilegur knatt- spyrnumaður. Það er ekki spurning um að þetta er það sem hann á að gera. Hann er í raun fæddur inn í þetta og strax sem smápatti var hann farinn að sýna mikla hæfi- leika. Þetta er mjög spennandi hjá honum. Hann er í mjög góð- um klúbb og þekkir þetta líf miklu betur en ég gerði á hans aldri, enda ólst hann náttúrlega upp í þessu með mér og and- lega er hann margfalt betur undir þetta líf búinn en ég var. Ég vona líka að ég geti miðlað honum af minni reynslu og það ætti að geta auðveldað honum fyrstu skrefin. En ef ég á að vera alveg einlægur þá vona ég að ekkert annað barnanna minna fari út í þetta. Ég vil frekar fá að hafa þau heima." Árið 1986 lýsti Arnór því yfir í sjónvarpsviðtali í Belgíu að draumur hans væri að fá að spila „alvöru" leik með Eiði Smára syni sínum. Eiður var þá aðeins 8 ára gamall. Eftir því sem árin liðu og knattspyrnu- hæfileikar Eiðs þroskuðust hef- ur sá draumur orðið raunhæf- ur. Draumurinn var við það að rætast þegar Arnóri var skipt útaf fyrir son sinn í landsleik gegn Eistlandi. Sá orðrómur var þá á kreiki að þeir myndu spila hlið við hlið í næsta leik, en það hefur aldrei gerst að feðgar spili saman landsleik. Bið varð þó á að úr rættist því Eiður meiddist alvarlega og mun líklega vera frá keppni næstu mánuðina. En hverjar telur Arnór nú líkurnar vera á að uppfylla hinn langþráða draum? „Ég held að það sé algerlega undir sjálfum mér komið - í hvernig formi ég næ að halda mér. Ég er farinn að finna dálít- ið fyrir aldrinum. Þetta tekur meiri orku frá mér nú en áður. Ég hef til dæmis misst mikinn hraða en reynslan ætti að koma á móti. Þannig að það er aldrei að vita hvort þessi draumur verði uppfylltur." Viðtal: Eiríkur Bergmann Einarsson. Selfoss Risapeysa á Selfossi, sem hefur verið skráð í heimsmetabók Guinness. Uppskeruhátíð Mikill manníjöldi heim- sótti Selfoss um síðustu helgi þegar Uppskeru- hátíð var haldin í bænum. Bakkabræður og ráðskona þeirra heimsóttu bæjarbúa og sinntu erindum sínum í kaup- stað við mikinn fögnuð yngstu kynslóðarinnar. I Tryggvaskála var sett upp handverkssýning, þar sem meðal annars mátti sjá heimsins stærstu ullarpeysu og hefur hún verið skráð í heims- metabók Guiness. Handverks- konur í Þingborg og á Hvann- eyri prjónuðu peysuna. -hþ Prentsmiðir! Dagsprent hf. óskar eftir að ráða prentsmið í um- brot. Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu í Quark- XPress. Vaktavinna. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og prentsmiðju- stjóri í síma 462 2422. Starfskraftur óskast Reglusamur og iðinn starfsmaður óskast í texta- vinnslu og til afgreiðslu- og sendistarfa. Umsóknir leggist inn á afgreiðslu blaðsins, Strandgötu 31, Akureyri, merkt „Textavinnsla" og þar eru veittar all- ar nauðsynlegar upplýsingar. |Dctgur-®tmmn Rafvirki óskast til starfa strax. Mikil vinna, góð laun. Uppl. í vinnusíma 456 7373 og heimasíma 456 7477. Rafverk, Bolungarvík. Læknaritari Sjúkrahúsið og Heilsugæslustöðin á Húsavík aug- lýsa lausa 100% stöðu læknaritara frá og með 1. nóvember nk. Launakjör samkvæmt kjarasamningum Starfsmanna- félags Húsavíkur. Umsóknarfrestur er til 30. september nk. og skulu um- sóknir vera skriflegar. Nánari upplýsingar veita Dagmar eða Regína í síma 464 0500 frá kl. 8-16 virka daga. Sjúkrahúsið og Heilsugæslustöðin á Húsavík.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.