Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Page 13

Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Page 13
|Dagur-'3Imtmn Laugardagur 21. september 1996 - 25 ^Dagur-tEtmírai Ertu hagsýn(n)? 1. Bestu verðin á niðursoðnum dósum eru: a. Á hillum í augnhæð. b. Á hillum ofan eða neðan við augnhæð. c. Á aðskildum standi. 2. Ef þú vilt spara rafmagn er gott ráð að slökkva á hellun- um áður en maturinn er full- komlega soðinn. a. Satt b. Ósatt 3. Hvernig er auðvelt að spara við sig í matarinnkaupum? a. Taka sér góðan tíma í að versla svo hægt sé að bera verð saman. b. Elda a.m.k. eina kjötlausa máltíð á viku. c. Taka börnin þín með að versla svo þú kaupir örugg- lega bara mat sem þeim finnst góður. 4. Þú kaupir gular rósir þar sem þær endast lengur en rauðar eða bleikar? a. Satt b. Ósatt 5. Þegar kemur að afsláttarmið- um fylgir þú þessari megin- reglu: a. Klippir út alla afsláttarmiða sem þú sérð og notar þá. b. Notar þá aðeins á lúxusvarn- ing sem þú annars myndir ekki kaupa. c. Notar þá aðeins þegar þeir gefa afslátt á vörum sem þú kaupir hvort sem þær eru á afslætti eða ekki. 6. Jafnvel þó þú rekir btla fjöl- skyldu borgar sig að kaupa stórar pakkningar af matvör- um sem endast lengi eins og t.d. morgunkorn eða kex. a. Satt Etið, sparið og verið glaðir • Eldið mat sem getur orðið að tveimur máltíðum. Af- gangur af kjúklingi nýtist næsta dag sem kaídur kjúklingur með bökuðum kartöílum og salati. Og til að nýta hann til fulls má sjóða beinin og nýta sem grunn í súpu. • Ódýr matur þarf ekki að vera leiðinlegur. Bætið smá karrý út í hakkið eða fersk- um kryddjurtum út í pastað til tilbreytingar. Ef börnun- um líkar ekki við kryddið, má krydda hluta af réttin- um. • Sameinist við matseldina. Börn hafa mjög gaman af því að hjálpa til við matseld, hægt er að kenna þeim sparnaðarráð um leið og besta leiðin til að kenna þeim að elda er að leyfa þeim að hjálpa til meðan þau hafa áhuga. Að auki borða þau frekar mat sem þau hafa hjálpað til við að búa tU. • Matseld ætti aldrei að vera leiðinleg skylda sem haskað er af í fljótheitum fyrir fréttir. Maga og huga líður betur ef hægt er farið og matseldar notið. • Ef innkoma Ijölskyldunn- ar minnkar þarf að hugsa vel um innkaupin. Ekki kaupa tilbúinn eða hálftil- búinn mat. Vinnið allt frá grunni, það er í flestum til- fellum ódýrara. Meiri vinna samt. • ALDREI fara svangur að kaupa í matinn. • Kaupið inn vikulega, ger- ið vikuáætlun um máltíðir. • Eldið einfaldar máltíðir, notið helst ekki bæði ofn og hellur. Pottrétti má hita í ofni um leið og kartöflur eru bakaðar eða brauð. • Heyrst hefur að ef farið er öfugt í innkaupin, þ.e. byrj- að við kassana og endað við innganginn (þó svo að mað- ur þurfi að ganga aftur að kassanum) eyði maður minna. Þetta er reynandi, kannski virkar það! Vigdís Stefánsdóttir. Tremmutilboð í Tónabúðinni Bjóðum í takmark- aðan tíma 10-30% afslátt af trommu- settum, Bongo og Konga trommum og Paiste cymbölum. ^ m m a mm m tm m SSSsUssPimnU Akureyri>s,m' 462 1415 S w " mS sDUullV Laugavegi, sími 552 4515 b. Ósatt 7. Vifta eyðir minna rafmagni ef: a. Þú stillir henni upp í miðju herbergi. b. Notar viftu úr plasti. c. Hreinsar hana reglulega. 8. Matvörubúðir auglýsa aðeins „Tilboð" ef verð á vöru hefur lækkað umtalsvert. a. Satt . b. Ósatt Svör: 1. b. Matvörubúðir setja oftast dýrustu tegundirnar í augnhæð. 2. a. Hellurnar haldast heitar í dágóðan tíma eftir að slökkt hefur verið á þeim og maturinn mun því halda áfram að sjóða í einhverja stund. 3. b. Magafylli af grænmeti og kornmeti ýmiskonar kostar aðeins brot af því sem kjöt kostar. 4. b. Rauðar og bleikar rósir endast lengur. 5. c. Ekki láta afsláttarmiðana hafa þau áhrif á þig að þú kaupir vörur sem þú þarfnast ekki. 6. a. Engin ástæða til að borga aukaum- búðir fyrir vörur sem endast lengi. 7. c. Ef ryk fær að safnast fyrir í viftunni þarf hún að hafa meira fyrir því að snú- ast og eyðir því meiri orku. 8. b. Ekki endilega. Skoðaðu dagblaða- auglýsingar og berðu saman mismun- andi verð fyrir sömu vörur. Hvernig gekk þér? Þú færð 5 stig fyrir hvert rétt svar. Legðu saman stigin þín og lestu síðan hvaða lýsing á við þig. 30-40 stig: Þú ert greinilega með með- fædda bókhaldshæfileika. Hvort sem um er að ræða að spara orku eða nota afslátt- armiða missir þú aldrei sjón- ar á tilganginum, sem er að spara án þess að heimilis- fólkið finni fyrir því. Þú gætir örugglega rétt af þjóðarskút- una ef þú sæir um ríkisbók- haldið. Hringdu í Davíð, for- sætisráðherra, og bjóddu fram aðstoð þína - „collect" að sjálfsögðu. 15-25 stig: Hagsýni er ekki þinn aðal- kostur en þú reynir þó að fylgjast með hvað sé ódýrast hverju sinni. Bókhaldið er í sæmilegu lagi hjá þér en ef þú hugsaðir ofurlítið meira út í hvað hlutirnir ættir þú fleiri krónur í bankanum í enda hvers mánaðar. Minna en 15 stig: Þú fyllir flokk hinna óhag- sýnu: þú sérð eitthvað, lang- ar í það og kaupir það! Vinir þínir kunna vel að meta hve örlát(ur) þú ert en að öllum líkindum hættir þér til að fara yflr á heftinu þínu. Ef þú breytir hegðan þinni og hugsar út í það hvað hlutirn- ir kosta tekst þér ef til vill að snúa dæminu við og fara að safna vöxtum í stað reikn- inga. 5olt ISLENSKIR OSTAR, HVÍTA HÚSIÐ / SfA

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.