Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Qupperneq 14

Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Qupperneq 14
26 - Laugardagur 21. september 1996 ^80UV-®ttttttttt JTtagur-Œmtmn ní) iiLei eimilis- homið Blómkál með krydd- sósu og rœkjum Fyrir 4 1 stórt eöa 2 minni blómkálshöfuð Ca. 200 gr ostur 1 dl kaffirjómi eða mjólk 1 laukur 'á búnt steinselja eða dill Salt og pipar 200 gr rœkjur Sjóðið blómkálið þar til það er næstum mjúkt, ekki of mikið, í léttsöltuðu vatni. Laukurinn smátt saxaður, steinseljunni, ostinum og rjómanum hrært vel saman. Bragðað til með salti og pipar. Blómkálið tekið upp úr vatninu, sett á fat og kryddsós- an sett á fatið með rækjunum. Gott brauð borið með. Blómkál- ið má bera fram hvort heldur er heitt eða kalt. Pastasalat m/skinku Fyrir 4 250 g soðnar pastaskrúfur 100 g skinka 1 gul og 1 rauð paprika 6 litlir tómatar Sósa: 1 msk. sinnep 1 eggjarauða 1 dl olía 2 msk. edik Salt, pipar og sykur Sjóðið pastað í léttsöltuðu vatni, sigtið vatnið frá. Skinkan skorin í ræmur. Takið kjarnana úr paprikunum og skerið þær í þunnar ræmur. Raðið þessu á fat eða litla diska fyrir hvern og einn. Sósan: Sinnep og eggjarauða hrært saman, olíunni bætt í, lítið í senn. Edikið hrært út í og bragðað til með salti, pipar og örlitlum sykri. Sósunni hellt yfir salatið eða borið með í sér skál. Sunnudagskakan 200 g brœtt smjör 200gsykur 4 egg 'A sítróna 3 epli 250 g hveiti Vá tsk. lyftiduft 50 g hnetukjarnar Perlusykur Smjörið er brætt, kælt og hrært vel saman með sykrinum, þar til létt og ljóst. Eggjunum bætt út í, einu í senn, og hrært vel á milli. 2 tsk. af rifnu sítrónuhýði og sítrónusafa bætt út í ásamt 1 rifnu epli. Hveiti, lyftiduft og hakkaðar hneturnar hrært út í. Deigið sett í stórt, kringlótt form, sem er vel smurt og raspi stráð. Þunnum eplabátum rað- að ofan á kökuna og stráið G/óða nótt 1. Borðið ekki stóra og þunga máltíð seint að kveldi. 2. Drekkið ekki kaffi eða te seinna en um 10-leytið. 3. Dragið úr reykingum að kvöldi til. 4. Hafið fastan svefntíma. Ekki sofa lengur eða vaka mikið lengur á frídögxun. 5. Á breytingaskeiðinu skap- ast oft vandamál varðandi svefninn. Þá þarf oft að fá einhver væg hjálparlyf. 6. Heitur bolli af súkkulaði eða heit mjólk og 1 ban- ani geta verið sérlega ró- andi fyrir svefn. 7. Ilmandi bað gerir mann syQaðan. 8. Er dýnan í rúminu þínu þægileg, mátulega breið og koddarnir góðir? 9. Ertu svo heppin að mað- urinn þinn hrýtur ekki? 10. Taktu ekki vandamálin með þér í rúmið. perlusykri yfir. Kakan er bökuð við 175° í ca. 1 klst. neðarlega í ofnimun. Kakan látin bíða í ca. 10-15 mín. í forminu áður en henni er hvolft úr því. Borin fram heit eða köld með þeyttum rjóma. Kókosmakkarónu- kökur 2 egg 100 g sykur 50 g smjör 150 g kókosmjöl QódrÁó Eggjahvítur þeytast betur ef þær eru ekki of kaldar. Rjómi þeytist aftur á móti betur ef hann er kaldur. Það er betra að fletja út deig á bökunarpappír eða strá kartöflu- mjöli á borðið. Grasblettir á fötum fara úr í þvotti ef við setjum smávegis uppþvottavélar-sápulög á blett- inn og látum það bíða smástund áður en það fer í þvottavélina. Góð ráð við þreytu: Borðið ávexti og ber á meðan það er á boðstól- um. Þar fáum við C-vítamínið, sem hressir líkama og sál. Gott er að setja bökunarpappír í botninn á formkökuforminu, þá losnar kakan strax úr. Kaffið í pakkanum heldur sér betur ef það er geymt í kæli- skápnum. 75 g hveiti 1 tsk. lyftiduft Þeytið egg og sykur vel saman í þykka eggjafroðu. Hrærið bræddu, kældu smjörinu, kók- osmjölinu, hveiti og lyftidufti saman við hræruna. Látið deig- ið bíða í ca. 10 mín. Deigið sett með teskeið í toppa á bökunar- pappírsklædda plötu. Hafið gott bil á milli. Bakað við 180° í ca. 12 mín. Við brosum Lögregluþjónninn hafði handsamað þjófinn, en vind- hviða feykti af honum kaskeitinu. „Ég skal ná í húfuna," sagði þjófurinn vingjarnlega. „Nei takk fyrir, gamli minn,“ svaraði lögregluþjónninn. „Þá bara stingur þú af. Ég næ í hana sjálfur og þú bíð- ur bara hér á meðan.“ „Og hvað var nú það síðasta sem pabbi þinn sagði áður en hann dó?“ spurði vinkon- an samúðarfull. „Hann fékk ekki að segja eitt einasta orð. Mamma var hjá honum allan tímann.“ „Voðalegur hávaði er í íbúð- inni hér við hliðina á ykkur. Hvað er það?“ spurði gest- urinn. „Þetta er bara hún Jónína gamla að tala við sjálfa sig,“ svaraði húsráðandinn. „Hún þarf nú ekki að hafa svona hátt,“ hélt gesturinn. „Jú, það verður hún að gera, hún er svo ansi heyrn- arsljó.“ ^TVÍatarkrókur Hjónin Ásta Einarsdóttir og Björn Óskar Björnsson segjast hafa verið ákaflega upp með sér þegar Aðalheiður, sem var síðast í Matarkróknum, hafi skorað á þau, þar sem hún sé einn besti kokkur sem þau þekkl Björn hefur hana þó grunaða um að hafa œtlað að fiska frá þeim uppskrift af ákveðinni sósu með þessu móti „En hana gefum við ekki upp, “ segir hann sposkur á svip. Ásta og Björn eru búsett á Akureyri og eiga tvö börn. Þau skora á Guðrúnu Hörpu Bjarnadóttur til að mœta með uppskriftir í nœstu viku. Súrsætur pottréttur Handa fjórum 600-700 g svínalundir (má nota kjúklinga- eða nautakjöt) salt og pipar Sósa: paprika púrrulaukur sveppir ananas ('/2 dós) 4 msk. maisenamjöl 2/ bollar vatn 4 msk. tómatsósa 18 msk. sykur 4 msk. sojasósa 7 msk. rauðvínsedik Steikið kjötið með salti og pipar. Steikið þvínæst sveppina, papr- ikuna, púrrulaukinn og anan- asinn á pönnu (setjið ananasinn síðast). Setjið vatn, tómatsósu, sykur, sojasósu og rauðvínsedik í pott og hrærið vel. Maisena- mjöli bætt út í pottinn og hrært í þangað til blandan fer að þykkna. Þá er paprikunni, púrrulauknum, sveppunum og ananasnum blandað saman við ásamt kjötinu og látið malla í 10-15 mínútur. Borið fram með salati og hrís- grjónum. Doddagœsabringur 2 gœsabringur salt og pipar villibráðakrydd Sósa: Rifsberjagel kjötkraftur (teningur eða duft) '/21 rjómi Sanderman púrtvín (eftir smekk) njuimi möla cmdiöuuiui uy ujui 11 vjöivcii DjuiiibbUll. Kryddið gæsabringurnar með salti, pipar og villibráðakryddi. Snöggsteikið þær síðan á mikl- um hita. Sjóðið sósuna þar til hún er farin að þykkna pínulítið og setjið síðan gæsabringurnar út í sósuna í um 10 mínútur. Gott að borða með nýjum kart- öflum og salati. Tillaga að salati: 4 msk. majones, 3 msk. appels- ínusafi, 1 msk. púðursykur, 2 epli, 4 gulrætur og kál. Ódýrt og fljótlegt Fyrir þrjá Tortulini (eða annað pasta) grœnmetisteningur Sósa: 1 dós túnfiskur í vatni 1 stór laukur 1 dós niðursoðnir tómatar (með eða án Chilipipars) salt og pipar pastakrydd Sjóðið pastað eftir leiðbeining- um á pakka ásamt grænmetis- teningi. Sósan er gerð þannig að fyrst er laukurinn léttsteikt- ur og því næst tómatarnir og túnfiskurinn settir út í. Kryddið eftir smekk og látið krauma í nokkrar mínútur. Berið fram með ristuðu brauði. Mynd: GG Mömmusnúðar 750 g hveiti 250 g smjörlíki 300g sykur 2 egg 3 tsk. ger 1 tsk. hjartasalt kardimommudropar mjólk Öllum þurrefnum blandað saman og síðan er smjörlíkið muiið sam- an við. Eggin, kardimommu- droparnir og mjólkin sett út í og öllu hnoðað vel saman. Deigið er síðan ílatt út, penslað með mjólk og kanelsykri stráð yflr. Þá er deiginu rúllað upp og skorið í jafnar sneiðar. Bakað við 200°C.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.