Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Qupperneq 19
|Dagur-®ímfam
Laugardagur 21. september 1996 - 31
ÍHitLÉiiLJkl j&íí k. i i J i i ÍUiikA .lAúiiAl, <i i m iia < iiáAkliAlUi t. L.ii i t , A iiU k iU
P O P P ^ L. x . íli. x A i ti ri i i w ’ ’ f ff "V ! » i i i . i . 4 i tii i ’ ’ ki A m t > f V 'TFH’ ' r ’ »f ff ..U iili ti i i . k A i i
'ip 'TVWV'V'f'v
• Mitt í orrahríð ofurfyrirsagna
um örlög stjörnudrengjanna í
Oasis, bræðraslagsmál á flug-
velli og þar fram eftir götunum,
(samkvæmt síðustu fregnum
fyrr í vikunni á nú allt að vera
fallið í ljúfa löð, hvað svo sem
það endist lengi) hefur höfuð-
paur hljómsveitarinnar, Noel
Gallagher, tilkynnt svo lítið ber
á, að hann mxmi í næsta mán-
uði senda frá sér nýtt lag í sam-
vinnu við danspopptvíeykið
Chemical Brothers. Bíða menn
nú spenntir eftir því.
• Ribbaldarapparinn Tupac
Shakur, lést nú á sunnudaginn
af skotsárum þeim sem hann
hlaut í Las Vegas, laugardaginn
7. september. Hafði Shakur
ásamt fleirum verið að horfa á
hnefaleikaeinvígi Tysons og
Seldons fyrr um kvöldið og var
á leiðinni inn á næturklúbb
þegar hann var skotinn fjórum
skotum af ókunnum mönnum í
hvítum Cadillac. Hafa tilræðis-
mennirnir ekki fundist, en get-
gátur eru um að eitthvert gengi
haíi verið að verki eða jafnvel
mafían.
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
Eins og rokkunnendur hafa
orðið varir við, vaknaði
gamla pönksveitin Sex
Pistols til lífsins í sumar og hef-
ur verið á tónleikayiirreið um
heiminn að undanförnu. Hefur
ferðin víst bara gengið bærilega
og sömuleiðis tónleikaplatan
sem kom út með sveitinni fyrir
nokkru. Forsprakki Pistols,
Johnny Rotten (Lydon) er þó
ekki frekar en fyrri daginn al-
veg ánægður með h'fið og hefur
látið ýmislegt miður jákvætt
falla í blaðaviðtölum upp á síð-
kastið. Hann vandar t.a.m Se-
attlesveitum á borð við Sound-
garden og Pearl Jam ekki
kveðjurnar í hinu virta
blaði USA Today ný-
lega og segir meðlimi
þeirra „líta út fyrir að
vera helmingi eldri
en þeir eru, sorg-
mæddir og einskis
verðir“. Gamli vandræðageml-
ingurinn spyr svo í framhaldinu
hvar sjálfsvirðingin og h'fsgleðin
sé hjá þessum mönnum? „Ef
þeir endilega vilja líta út eins
og úr sér gengnir bifvéla-
virkjar, ættu þeir að flytja
til Mið-Vesturríkjanna þar
sem þeir geta vafið sig
sjálfsvorkunn, en látið
aðra í friði á meðan.“
Nokkuð vel mælt, en
sumum finnst nú þessi
gagnrýni samt koma úr
hörðustu átt og ímynd
Rottens sjálfs bæði fyrr
og nú gefi honum ekki
tilefni til að vera með
slíka dóma um aðra. Meðlimir
Soundgarden og Pearl Jam hafa
hins vegar ekki svo vitað sé,
tjáð sig um þessi stóru orð
pönkgoðsins. Kannski vita þeir
upp á sig skömmina að
einhverju marki. Hver veit?
ABBA. Snýr hún aftur eða ekki. Það er nú stóra spurningin.
Annað hvort
Tvennum sögum fer
af endurkomu ABBA-
flokksins
Þau tíðindi um síðustu helgi
að ein allra vinsælasta
hljómsveit Norðurlanda
fyrr og síðar og þó víðar væri
leitað, ABBA, væri að líkindum
að koma saman að nýju eftir tólf
ára hlé og ætlaði allavega að
taka upp nýja smáskífu með
einhverjum eldri slögurum,
vöktu að sjálfsögðu mikla athygli
og tilhlökkun í brjóstum margra.
Samkvæmt þessum tíðindum var
það önnur af söngspírunum,
Anne Frid Lyngstadt, Frida, sem
lét hafa þetta eftir sér í viðtali
við breskt vikublað og sagði þar
jafnframt að tími væri kominn til
að byrja aftur, þar sem öll
ágreiningsefni sem ollu því að
sveitin hætti árið 1982, væru nú
farsællega til lykta leidd. Ilúrra
fyrir þessu hrópuðu sem sagt
margir, en nú x' byrjun vinnuvik-
unnar virðist eitthvert bakslag
hafa komið x' þessi „stórtíðindi"
Það er nefmlega haft eftir ónafn-
greindum talsmanni að h'tið sé
hæft í þessu og að hin þrjú, Ag-
netha Faltskog, Björn Ulvaeus og
Bermy Anderson, komi af fjöllum
þegar þetta hefur verið borið
undir þau. En hvað sem verður
(þegar þetta er ritað hafa ekki
frekari tíðindi borist) þá er ljóst
að gömul hjörtu hinna íjölmörgu
aðdáenda ABBA um allan heim
hafa tekið kipp og má bóka að
margir þeirra hafa nú tekið fram
ABBA-plöturnar og iljað sér við
minningarnar góðu.
Nokkrar staðreyndir
Svo örlitlu til viðbótar sé bætt
við þessi tíðindi eða „ekki tíð-
indi“ af endurkomu ABBA, þá
var ferill hljómsveitarinnar hið
mesta ævintýradrama. Frá því
að þau íjögur komu, sáu og sigr-
uðu í Eurovision árið 1974 með
Waterloo sællar minningar og
þar til allt fór út um þúfur 1982,
var um ofurvinsældir að ræða og
er áætlað að plötur þeirra hafi
selst í allt að 200 milljónum ein-
taka, takk fyrir. Reyndar urðu
vinsældirnar aldrei neitt afskap-
lega miklar í Bandaríkjunum
miðað við margt annað (Dancing
Queen var t.a.m. eina lagið sem
náði á toppinn þar) en þeim mun
meiri voru þær aftur á móti víð-
ast hvar annars staðar. í Bret-
landi fóru t.d. eigi færri en heilar
níu smáskífur á toppinn, Wat-
erloo, Mamma Mia, Fernando,
Dancing Queen, Knowing Me,
Knowing You, The Name Of The
Game, Take A Chance On Me,
The Winner Takes It All og Sup-
er Trooper. Segir þetta mestalla
söguna um hverslags stórsveit
ABBA var og þarf þvx' ekki að
koma á óvart að tíðindi af hugs-
anlegri endurkomu vekji mikla
athygli.
„Sá Rotni"
rífur enn kjaft
„Köld eru kvennaráð1'
Fjórða plata Kolrössu
krókríðandi komin út
AUt frá því Kolrassa Krók-
ríðandi, stúlknasveitin
frá Keflavík, sigraði í
Músíktilraunum árið 1992, hef-
ur hún verið á stjái, mismikið
áberandi, í íslensku rokklífi,
sumum til mæðu, en þó lang-
flestum til óblandinnar ánægju.
í sumar hefur sveitin verið upp-
tekin við að vinna efni á nýja
plötu, sem nú hefur „rétt í
þessu“ litið dagsins ljós. Nefnist
hún því svellkalda nafni Köld
eru kvennaráð og telst vera sú
íjórða í röðinni frá Kolrössu.
Hinar þrjár eru. Drápa, sem
kom 1992, Kynjasögur, 1994 og
Stranger Tales, sem var endur-
unrnn útgáfa af Kynjasögum og
kom út á síðasta ári hérlendis
og í útlöndum. Nefndi sveitin
sig vegna erlendu útgáfunnar,
Bellatrix. Nýja platan inmheld-
ur samtals 13 lög, sem öll fyrir
utan eitt eru frximsamin. Er þar
á ferðinni gamla Bítlalagið All
Together Now (Nú væri spenn-
andi að vita hvort hringt hafi
verið í Jacko sjálfan, Michael
Jackson, en hann ku nú eiga út-
gáfuréttinn af lögum Bítlanna.)
Lögin Opnaðu augun þín, sem
naut töluverðra vinsælda með
Kölrössu í sumar og Bæ, bæ,
sem nú er tekið að hljóma á
öldum ljósvakans, eru svo tvö
önnur dæmi um lögin á
plötunni. Var hún bæði unnin
hérlendis og í Bandaríkjunum.
Ingolfskaffi
Eins og íbúar höfuðborgar-
innar hafa væntanlega
orðið varir við, í það
minnsta MH-ingar og önnur
ungmenni á svæðinu, hefur
staðið yfir heljarmikil „hljóðs-
veggjarveisla" (Wall of Soxmd
Party) síðan á miðvikudag. Wall
of Sound er ein af framsæknari
og mest spennandi útgáfufyrir-
tækjunum í Bretlandi í dag og
hefur á sínum snærum fram-
herja í trip hop/funk groo-
ve/jazz/breakbeat o.s.frv. á borð
við Wiseguys, Propellerheads,
Hustlers of Culture m.a.
Propellerheads og annar
helmingur Wiseguys, plötu-
snúðxxrinn Theo Keating, hafa
verið hér á landi að undanfórnu
og staðið fyrir gleðskapnum
ásamt einum af eigendum Wall
of Sound, Mark Jones. Nær
heimsókn þeirra hámarki í
kvöld í Ingólfskaffi en þar verð-
ur aðal partýið haldið. Aldurs-
takmark verður 0 ár og kostar
1.200 kr. inn. Enn er hins vegar
hægt að kaupa miða í forsölu í
Hljómalind, Japis og Músík og
Myndir, og kostar miðinn þá að-
eins kr. 900.