Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Blaðsíða 20
32 - Laugardagur 21. september 1996
©agitr-tEúmrm
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apó-
teka í Reykjavík frá 20. september til
26. september er í Laugavegs Apóteki
og Holts Apóteki. Það apótek sem fyrr
er nefnt annast eitt vörsluna frá kl.
22.00 að kvöldi til kl. 9.00 að morgni
virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum.
Lyfja, Lágmúla 5. Opið alla daga
vikunnar frá kl. 09-22. Upplýsingar um
læknis- og lyfjaþjónustu eru gefnar í
síma 551 8888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags íslands
er starfrækt um helgar og á stórhátíð-
um. Símsvari 681041.
Hafnarijörður: Apótek Norðurbæjar,
Miðvangi 41, er opið mánud.-föstud.
kl. 9-19, laugard. kl. 10-14, sunnud.,
helgidaga og almenna fndaga kl. 10-14
til skiptis við Hafnarfjarðarapótek.
Upplýsingar í símsvara nr. 565 5550.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu
apótek em opin virka daga á opnunar-
tíma búða. Apótekin skiptast á sína vik-
una hvort að sinna kvöld-, nætur- og
helgidagavörslu. Á kvöldin er opið í
því apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl.
11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðmm
tímum er lyfjafræðingur á bakvakt.
Upplýsingar em gefnar í síma 462 2444
og 462 3718.
Apótek Keflavíkur: Opið virka daga frá
kl. 9.00-19.00. Laugard., helgidaga og
almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka
daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað í hádeg-
inu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl.
18.30. Opið er á laugardögum og
sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka
daga til kl. 18.30. Á laugard. kl. 10.00-
13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga
daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl.
11.00-14.00.
ALMANAK
Laugardagur 21. september. 265.
dagur ársins - 101 dagar eftir. 38.
vika. Sólris kl. 7.00. Sólarlag kl.
19.31. Dagurinn styttist um 7 mín.
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 framkoma 4 andi 7 spíra 8
hólf 9 muldur 10 blaut 11 malbik 13
deig 14 varöa 17 ílát 18 eðja 20
skemmd 21 vanvirða 22 hvíldu 23
málmur
Lóðrétt: 1 stóru 2 tryllta 3 allmiklu 4
ólmast 5 bungulaga 6 svipað 12 aur
14 listi 15 vandræði 16 viðkvæmi 19
þjófnaður
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hóf 4 ske 7 áll 8 tak 9 sía
10 ört 11 knappa 13 dul 14 borðar
17 æfa 18 nóa 20 tuð 21 nam 22 ari
23 art
Lóðrétt: 1 hás 2 ólík 3 flandraði 4
stöplanna 5 karp 6 ekta 12 auð 14
bæta 15 ofur 16 róar 19 amt
1 2 3 1 4 5 6
7 8
9 ”
■ r 12
■
14 15 16
17 1 19
20 "
22 23
G E N G I Ð
Gengisskráning nr. 180
20. september 1996
Kaup Sala
Dollari 65,680 68,230
Sterlingspund 103,800 104,330
Kanadadollar 48,760 49,070
Dönsk kr. 11,4670 11,5280
Norsk kr. 10,3100 10,3660
Sænsk kr. 10,1060 10,1620
Finnskt mark 14,7320 14,8190
Franskurfranki 13,0070 13,0810
Belg. franki 2,1420 2,1548
Svissneskur franki 53,7700 54,0600
Hollenskt gyllini 39,3500 39,5800
Þýskt mark 44,1200 44,3500
itölsk lira 0,04379 0,04407
Austurr. sch. 6,2680 6,3070
Pod. escudo 0,4328 0,4354
Spá.' peseti 0,5241 0,5273
Japanskt yen 0,60820 0,61180
l'rskt pund 107,190 107,850
Stjörnuspá
Vatnsberinn
Þú verður ekk-
ert nema skinnið
og beinin í dag.
Hvað er konan að gera þér á
næturnar.
Fiskarnir
Tratratra og all-
ir á fætur. Haf-
inn er dagur
mikilla verka. Ekki hjá þér,
nei? Að drepast í höfðinu?
Næsti.
Hrúturinn
Þú verður meira
og minna í dag,
aðallega minna.
Ekki er það gott en fer þó
sennilega skánandi.
Nautið
í dag eru það
íþróttirnar í
sjónvarpinu sem
dagurinn gengur útá. Finnst
þér það eðlilegt, frú Hall-
dóra?
Tvíburarnir
Þú átt kannski
séns á vinningi í
dag. Nei ekki
kaupa 1100 raðir í lottóinu,
Jens. Stjörnurnar sögðu
kannski séns.
Krabbinn
Þú verður fræg-
ur í dag. Hvern-
ig ætli þér verði
við?
Ljónið
Tilbreytingar-
leysi lífs þíns
verður best lýst
með því að karlinn hellir
upp á óvenju gott kaffi.
Þetta er á mörkunum þótt
kyrrstaða geti verið ágæt.
%
Meyjan
Bang. Það eru
a.m.k. tveir
skilnaðir fram-
undan í merkinu, annar í
Hafnarfirði, en hinn' er ekki
hægt að staðsetja. Trén fella
laufin á haustin og dettur
ekkert skárra í hug segir
Þórarinn Eldjárn.
Vogin
Þú verður veru-
lega viðbjóðsleg-
ur í dag. Nei...
varstu fúll? Þú verður nefni-
lega alveg frábær.
Sporðdrekinn
Ýkt geðveikur
laugardagur og
allir saman í
hringdans. Sóknarfæri á
báða bóga.
Bogmaðurinn
Bogmenn verða
ekkert fyrir aug-
að í dag en
sæmilega þokkaðir og hafa
góða matarlyst. Þeir hafa
séð það svartara.
Steingeitin
Þú nærð
skemmtilegu
bragði á félaga
þinn af gagn-
stæðu kyni í dag. Passaðu
þig samt í umferðinni og
vertu þægur/þæg/þægt. Ef
þú nennir því ekki skaltu
venda þínu kvæði í kross og
verða þæfður/þæfð/þæft.
Nærðu þessum skilaboðum?