Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Qupperneq 4

Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Qupperneq 4
16- Laugardagur 5. október 1996 ®itgur-®úmrm / „Þetta er sjálfsagt svipað og með rokkara. Þeir byrja af dúndrandi krafti og í hreinu rokki en eftir því sem þeir eld- ast fara að verða meira artí- smartí og of fágaðir. Tónlistin getur verið mjög falleg en hún hefur einhvern veginn misst hjartað, sláttinn, neistana og bálið.“ „Ég kann ekki einu sinni greinarmerkj a- setningu Jim Cartwright neitar því að vera eins og Damon Albarn og sumir „íslandsvinir" að- allega heimsfrægur á íslandi. Taka verður hann trúanlegan því leikrit hans hafa verið sýnd, ekki bara í Evrópu, heldur og Japan, Ástralíu, Bandaríkjun- um og víðar. Jim Cartwrigt er breskt leik- ritaskáld, komið hátt á fertugs- aldur. Hann kom til Iandsins í vikunni ásamt konu og tveimur börnum og var viðstaddur há- tíðarsýningu á verki sínu Stone Free í Borgarleikhúsinu í gær- kvöld. „Konan mín og sonur vildu endilega koma með og sjá þetta dularfulla land.“ Og ekki spillti fyrir þegar eldstöð tók að gjósa undir Vatnajökli og stað- festi sögurnar sem þau höfðu heyrt um land andstæðnanna, elds og ísa. „Það er næstum eins og jörðin hafi ekki alveg lokið verki sínu hér. Það er enn- þá verið að búa þetta land til.“ Stone Free er vinsælasta leikrit hans á íslandi til þessa og stefnir m.a.s. í að verða vin- sælasta leikrit ársins. Vinsældir leikritanna hér og annars stað- ar í heiminum koma að nokkru leyti á óvart því verkin eru ansi bundin breskum veruleika. „Ég er náttúrulega að reyna að skrifa um ásigkomulag manns- ins sem hægt er þýða út um allan heim. En þau eru sérstaklega vinsæl á Norðurlönd- unum og á íslandi. Reyndar var einni fyrstu uppsetningunni á Stræti, utan Bret- lands, leikstýrt af ís- lenskum leikstjóra í Árósum. Það var frá- bær uppsetning. Ég er greinilega stilltur inn á sömu rás og íslending- ar.“ - Nú var leikritið Stone Free auglýst hér upp sem heimsfrumsýn- ing. Er það rétt að þetta sé í raun gamalt leikrit sem þú blést rykið af fyrir íslendinga? „Eiginlega, en þetta er náttúrulega heimsfrum- sýning utan Englands og á þessari útgáfu Magnúsar Cartwrights, sem stjórnaði htlu leikhúsi í heimabæ hans, bað hann árið 1991 að vinna með sér. Þegar þeir ræddu saman um hvað skyldi gera sveigðist talið að hippatímanum. „Ég missti af 7. áratugnum og mér finnst alltaf eins og ég hafi misst af partíi. Leikstjórinn, vinur minn, rétt náði í bláend- ann á partíinu, kom fætinum í dyragættina og gægðist inn í íjörið en náði ekki að taka þátt.“ En hippatíminn heillaði og þeir ákváðu að setja upp eins konar litla hátíð í leikhús- inu, nota tónlist tímabilsins sem Cartwright segist mjög hrifinn af. Sviðið var þakið grasi og bæjarbúar íjölmenntu á hátíð- ina. Síðan hefur það verið sett tvisvar upp í Bristol af sama leikstjóra. - Fyrst þú misstir af hippa- tímanum hvernig komstu þér í stemmninguna? „Það er einmitt þess vegna sem Stone Free er öðruvísi en hin leikritin mín sem ég vann algjörlega upp úr sjálfum mér. Þegar ég skrifaði Stone Free varð ég að hafa í huga að hippatíminn gerðist í alvöru þannig Skriftir fyrir gáfað menntafólk Réttur áratugur er síð- an Cartwright tók að skrifa leikrit og hefur sól hans því risið nokk- uð hratt. í nokkur ár þar á undan hafði hann unnið sem leikari, starf- rækt lítið leikhús og vakið nokkra athygli fyrir að leika verk í heimahúsum eftir pönt- unum. Fram að tvítugs- aldri hefur það líklega verið nokkuð Qarlægt markmið að verða rit- höfundur í fullu starfi. „Ég er úr verkalýðsstétt, fór í almenningsskóla, var í mörgum láglauna- störf, á lagerum, í verk- smiðjum og þess háttar. Meðan ég var í skóla var ég alltaf að skrifa einhver ljóð og texta, svona bara fyrir sjálfan mig. Það er skrýtið en þegar maður kemur úr svona verkamannaumhverfi þá heldur maður að skriftir séu bara fyrir gáfaða fólkið sem hefur farið í háskóla. Maður má vera í íþróttum, jafnvel leiklist, en skriftirnar voru einhvern veginn heilagar." Eftir nám í leiklistarskóla fór Cartwright að skrifa ýmis konar leiktexta sem vinir hans hvöttu hann til að senda til Royal Court leikhússins í London, sem er frægt fyrir að taka unga rithöfunda upp á sína arma. „Allir ungu, reiðu mennirnir hafa byrjað þarna.“ 23ja ára gamall, 1983, sendi Cartwright ein- hverjar hugmyndir þang- að, fékk góð viðbrögð og peninga til að klára leik- ritið. Peningarnir virð- ast hafa farið forgörð- um því hann fór aftur norðureftir, til sinna heimkynna, og skrifaði ekkert í um 3 ár. „Ég svona datt inn í aðra menningu. 1985 minntu þeir mig á leikritið og ég sagði: já, alveg rétt, skrifaði moifc rt íi fcrtn íit* loiLr- stjóra og þýðanda innsk. eftir Jim f^eyrar ^nin'gu efti'r sýningu. búinn að blankur." vera svo það og vildi óska að .^soníhlutverkumsínum i ^ hefði skrifað það »j22!SíSíS- Kí.10"? Þ,iíg rir blm.]. Stone Free er ekki húsi hjá Leikfélagi t leikrit sem ég dró bara upp að ég varð að lesa mér til og stunda smá rannsóknarvinnu, sem mér leiðist frekar! Það var svo sem gaman að horfa á myndböndin og hlusta á tónlistina." úr skúffunni, útgáfa Magn úsar er öðruvísi en hinar hún virðist vera sú besta þeim öllum.“ og af Missti af partíinu Stone Free varð til þegar vinur Töfraformúlan - Hér á íslandi eigum við vel menntað fólk sem starfar við kvikmyndir, sjónvarp og leikhús en það virðist langerfiðast að verða sér úti um almennilega handritshöfunda ef marka má þá sem hafa vit á málunum hér á landi. Býrðu yfir einhverri töfraformúlu að vinsælu leikriti sem þú getur ljóstrað upp um - íslenskum handritshöfundum til góða? „Ég veit það eiginlega ekki. Ætli maður skrifi ekki bara, eins og aðrir listamenn, út frá reynslu sinni og tilfinningum. Ég fór ekki í háskóla og er í rauninni ekki vel lesinn. Þetta kemur eiginlega eins og af sjálfu sér hjá mér og verður kannski vinsælt af því það er hrátt. Maður verður kannski að hafa ákveðið viðhorf til lífsins. John Lennon sagði einu sinni að hann væri feginn að hafa ekki fengið almennilega mennt- un því hún hefði þvælst fyrir honum. Ég er ekki að segja að menntun sé ekki gott mál eða að fólk geti ekki skrifað hafi það menntað sig. En ofmenntun getur kannski hamlað því að hugdetturnar flæði fram. Stundum verður maður bara að kasta öllu frá sér. Ég veit ekkert um greinarmerkjasetn- ingu, ég veit ekki almennilega hvar á að setja punkta eða stóra stafi, ég kann ekki staf- setningu. Ég læt þetta bara ein- hvern veginn gjósa, eins og eld- ijallið ykkar. Ef það þarf að sigta of mikla menntun frá fyrst þá þarf maður endalaust að hafa áhyggjur af áhrifum þess sem maður hefur lesið og lært. Sumir trúa því að leikrit þurfi að hafa þrjá þætti, upp- hafsflækju í þeim fyrsta, vendi- punkt í öðrum og hápunkt í þeim þriðja. Ég er ekki svona formlega menntaður og myndi ekki vita hvort allt þetta er til staðar hjá mér eða ekki. Ég bara læt vaða og sé til hvað gerist. Stundum virkar það, stundum ekki. Ég vann mjög hratt þegar ég var yngri, sumar einræðurnar skrifaði ég á klukkutíma. Nú eru skriftirnar orðnar mitt Ufi- brauð og þetta hefur breyst. Eftir því sem árin líða er ég far- inn að meðtaka meiri áhrif. Þetta er sjálfsagt svipað og með rokkara. Þeir byrja af dúndr- andi krafti og í hreinu rokki en eftir því sem þeir eldast fara þeir að verða meira artísmartí og of fágaðir. Tónlistin getur verið mjög falleg en hún hefur einhvern veginn misst hjartað, sláttinn, neistana og bálið.“ Tilvistarlegu flækjurnar? - Nú hefurðu starfað sem leikritahöfundur í tíu ár og hlýt- ur að hafa ljarlægst það verka- lýðsumhverfi sem þú ert alinn upp í. Má fólk eiga von á leikrit- um um menningarspírurnar og efri millistétt? „Já, kannski. Ég sest að vísu aldrei niður og ákveð hvað ég ætla að skrifa um, ég læt það bara koma. En ég er orðinn eldri, miklu betur stæður og bý m.a.s. út í sveit. Maður fer þá kannski að skrifa um eitthvað annað. Líklega er það þegar farið að skríða aftan að mér, svona eins og: Um hvað snýst þetta líf eiginlega?,“ sagði Cartwright og hló en léttur hrollur fór um hann. - Fara út í svona tilvistarleg- ar flækjur um það hver sé til- gangurinn með þessu jarðlífi? „Já. En þá fer maður að verða leiðinlegur og það hræðir mig.“ LÓA

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.