Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Page 15

Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Page 15
jOagur-'3Imnmt Laugardagur 5. október 1996 - 27 ANNA O G ÚTLITIÐ Anna F. Gunnarsdóttir skrifar um tísku Fataskápur nútímakonu sé upp á tengingnum þegar við veljum sjálf að breyta(st). En þetta er ekki svo einfalt. Jafnvel þó við finnum þörf til að stíga skref í átt til breyt- inga í lífi okkar, eru margar hindranir á veginum. Þar verða þröskuldarnir innra með okkur stundum stærstu hindranirnar. Maðurinn geymir innra með sér forsögulegan ótta, sem á rót sína að rekja til þess að í sínum innsta kjarna man hann tíma þegar upp- skeran brást, þegar fjöll spúðu eldi og brennisteini og lönd hurfu undir vatn. Þessi ótti snýst um þá grunnþörf mannsins að komast af. í nú- tímanum birtist hann gjarnan sem áhyggjur af því hvort við eigum fyrir gíróseðlunum um næstu mánaðarmót. Það er því ekkert skrýtið að sá eða sú sem vill segja upp föstu starfi sínu, bara vegna þess að viðkomandi vill sækjast eftir meiri fullnægju í lífinu, finni sterkt fyrir óttanum um hvernig honum eða henni muni reiða af íjárhagslega. Mér er minnisstætt viðtal sem ég sá eitt sinn við konu sem hafði gert ótrúlega mikið úr því lífi sem henni hafði verið gefið. Hún talaði mikið um þá tilfinningu sem hún fann innra með sér þegar allt gekk upp. Tilfinningu gleði og jafnvægi. Þessa tilfinningu sagðist hún alltaf nota sem leiðarvísi í lífinu. Þegar henni leið þannig, yfir því sem hún var að gera, vissi hún að hún var á réttri leið. Gleymum við ekki alltof oft að leitast við að finna þessa fullnægju innra með okkur? En kannski er stóra spurn- ingin hvort við trúum því að við eigum svo gott skilið. Ef þú sættir þig við h'f sem þér finnst eiginlega ekki vera nema hálft líf, getur þá verið að þér finnist þetta bara full- gott handa þér? Að það besta í lífinu, hafi ekki verið þór ætlað, heldur einhverjum öðr- um? Trúðu að þú eigir aðeins það besta skilið. Trúðu að hæfileikar þínir séu dýrmætir og þeir séu gefnir til að þú ræktir þá sem best. Trúðu að þú sért nægilega mikils virði til að eiga gott líf. Mundu að enginn er eins og þú og að enginn kemur í þinn stað. Og leyfðu þér að lifa heil(l) og sæl(l). Hvernig getum við klætt okkur fínt án þess að eyða öllum deginum í undirbúning? Draumafataskáp- ur inniheldur einfaldan kjól, sem hægt er að raða mismun- andi fylgihlutum við, fimm skyrt- Mynd 2 Mynd 4 Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar frá Egilsstöðum Trúðu að þú eigir það besta skilið s Isíðustu viku velti ég fyrir mór hvað það er sem helst kemur í veg fyrir að við þorum að stíga skref í átt til stórra breytinga í lífi okkar. í dag skulum við halda áfram á þeirri braut, og skoða aðeins þá þröskulda sem eru innra með okkur. Þröskulda sem við verðum að fara yfir, ef við ætlum að halda áfram að stækka og þroskast í lífinu. Að vilja verjast breytingum eru eðlileg viðbrögð. Við vit- um jú hvað við höfum, en ekki hvað við fáum. Hægt væri að draga þá ályktun að þetta eigi sérstaklega við þegar við verðum fyrir utanaðkomandi breytingum sem við fáum engu ráðið um, en að annað Mynd3 ur, íjórar þunnar peysur, tvö vesti í mismunandi litum, tvær slæður með mismunandi mynstri, tvö belti, annað með glanssylgju og tvenna skó í stfl. Þessi fatnaður getur gefið um 250 mismunandi útlit ef rétt er á málum staðið. Á meðfylgjandi myndum eru tekin fyrir dæmi um hvernig út- lit á fatnaði getur breyst úr hversdagsfötum í sparifatnað með örfáum tilfærslum. Þetta getur verið hentugt fyrir konur sem þurfa að fara í eftirmið- dagsboð eða kvöldverð eftir vinnu. Fyrsta myndin sýnir svartan jakka, svartar buxur, kremaða skyrtu, slæðu og þægilega vinnuskó. Dragtin leggur áherslu á mittið og er hægt að ráða hvort haft er belti eða ekki með jakkanum. Buxurnar þrengjast niður á við og leggja áherslu á lærin. Mynd 2 Önnur myndin sýnir rauðan jakka, svartar buxur, slæður og spari- skó. Þessi samsetning er mjög sígild og verður konan að hafa bjartan eða dökkan varalit. Á þriðju myndinni er svartur jakki, svartur kjóll, slæða og einfaldir skór. Á ljórðu myndinni er kjóll- inn og slæðan sú sama og á þriðju myndinni en skipt hefur verið um jakka, sem er rauður, og skó (spariskór). Þessi Qögur dæmi sýna að við eigum ekki að þurfa að eiga mikið af fatnaði til að fá fram mismunandi útlit heldur verður hvert stykki að passa við það næsta. Áð klæða sig upp tekur ekki nema þrjár til fimm mínút- ur ef við erum skipulagðar. í þessum dæmum gefum við okk- ur að auka rauður jakki og spariskór séu til staðar í bfln- um. Misskilin sparnaður Vandamál með okkur konurnar, þegar við verslum á okkur fatn- að, er að við tímum stundum ekki að kaupa nema eina flík, t.d. jakka, í einu og bíðum með pilsið eða buxurnar þar til síðar. Við teljum okk- verslunarmáta, síst okkur sjálf- um. Við verður síður ánægðar með okkur og teljum okkin- ekki eiga neitt til að klæðast. Margar okkar verða að læra að fjár- festa í sjálfum sér. Að kaupa rétt getur sparað heilmikið. Ef fataskápurinn er ósamstæður erum við alltaf að reyna að kaupa eitt og eitt stykki sem passar kannski ekki nema við eina flík. Erlendis er það viðurkennd íjárfesting að vanda kaup á fatnaði. Konur sem ætla að ná langt verða að vera mjög vel til fara auk þess að gera allt ann- að 100% sem þær aðhafast. Eyðum ekki of miklum tíma í að púsla fötum saman heldur kaupum rétt inn í upphafi því tími er peningar í nútíma þjóð- félagi. Fötin, sem sjást á myndun- um, eru fengin að láni hjá versluninni Kello á Laugavegin- um. Efnablandan er ull og poly- ester. Polyester er mjög gott efni í vinnuflíkur því efnið krumpast ekki.. Gott er að gefa sér nægan tíma þegar farið er í innkaupa- leiðangur. Við þurfum að skoða hvaða hannanir henta okkar vaxtarlagi og lífstfl. Dragt er ur vera að spara og erum með heimilið og börnin eða makann í huga. Ef við verslum eingöngu eina ílík í einu verður erfiðara að samræma fötin í fataskápnum. Þegar við erum búnar að safna fyrir næsta hlut, í framhaldi af fyrri kaupum, er varan oft upp- seld og við sitjum eftir með sárt ennið. Við gerum engum greiða með þessum ekki bara dragt því þær geta verið sparilegar, sportlegar, við- skiptalegar og einfaldlega mjög kvenlegar.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.