Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 18
30 - Laugardagur 5. október 1996
,®agur-'2ftmtrat
S K Á K
Hellisbúar í ham!
Meistaramóti Taflfelagsins
Hellis lauk nú í vikunni
með sigri Andra Áss Grét-
arssonar. Hverra manna skyldi
hann nú vera?! Þetta er í fimmta
skipti sem meistaramót þessa
unga en öfluga félags fer fram og
voru ýmsir sterkir skákmenn á
meðal þátttakenda. Hver keppandi
tefldi níu kappskákir eftir Monrad-
kerfi. Andri sigraði af öryggi með
7 1/2 vinning, þá kom Bragi Þor-
finnsson með 6 1/2 vinning og
þriðja sætinu deildu þeir Kristján
Eðvarðsson og Björn Þorfinnsson
með 6 vinninga. Stigahæstur þátt-
takenda var Jón Garðar Viðarsson,
Taflfélagi Hólmavíkur, og framan
af þótti líklegt að hann myndi raða
sér í eitt af efstu sætunum. Eftir
tap fyrir Andra í 6. umferð var Jón
hins vegar heillum horfinn og fékk
aðeins hálfan vinning út úr fjórum
síðustu skákunum. Gunnar Gunn-
arsson, fyrrum fslandsmeistari,
átti hins vegar frábæra spretti og
var sá eini sem vann sigurvegara
mótsins, auk þess sem hann lagði
Kristján Eðvarðsson. Gunnar,
Magnús Pálmi Örnólfsson og Vig-
fús Óðinn Vigfússon urðu í 5.-7.
sæti með 5 1/2 vinning. Svo
skemmtilega vildi til að sjö efstu
menn eru allir í Taflfélaginu Helli.
Taflfélagið Hellir er merkilegt
félag fyrir margs sakir. Það er eitt
allra yngsta skákfélag á íslandi,
var stofnað 1991, en hefur á ótrú-
lega skömmum tíma náð mikilli
fótfestu í Reykjavík og þó víðar
væri leitað. Áður en Hellir kom til
sögunnar var aðeins eitt taflfélag
starfandi í borginni. Stofnendur
félagsins settu það að markmiði
sínu í upphafi að auka fjölbreytni í
skáklííi höfuðborgarsvæðisins og
halda uppi virku félagsstarfi. Má
með sanni segja að það hafi tekist
með ágætum, því að risabarnið
hefur verið í örum vexti frá fæð-
Systkinin Helgi Æs\s
og Guðfríður Lilja
Grétarsbörn
skrifa um skák
ingu og stærir sig nú af mörgum
fremstu skákmönnum landsins.
Hellir hefur bryddað upp á
ýmsum nýjungum í skákmótahaldi
hér á landi. Félagið var það fyrsta
hérlendis til að halda mót með
hinum svokölluðu Fischer/Fide
klukkum, sem bjóða upp á alls
kyns nýstárleg timamörk og hafa
mælst einkar vel fyrir. Hellir var
einnig eins konar brautryðjandi í
atskákmótum hér á landi, en fjöldi
þeirra og umfang hefur margfald-
ast síðan félagið kom til sögunnar.
Þannig eru til dæmis reglulega
haldin geysivinsæl atkvöld á veg-
um félagsins þar sem tefldar eru
þrjár hraðskákir og þrjár atskákir
á einu bretti. Hornsteinn Hellis er
unglingastarfið, en rík áhersla er
lögð á að rækta áhuga yngri kyn-
slóðarinnar. Auk vikulegra barna-
og unglingaæfinga eru haldin sér-
stök unglinganámskeið og
kennsla, meistaramót unglinga og
einstaklings- og sveitakeppni milli
grunnskóla. Metnaður félags-
manna nær og einnig út fyrir land-
steinanana, því að taflfélagið
stefnir að því að halda alþjóðlegt
mót næsta vor, en félagið hélt sitt
fyrsta alþjóðlega mót aðeins
tveggja ára gamalt, árið 1993. Þá
stefnir Hellir að því að hasla sér
völl í sjálfum alheimi framtíðar-
innar — það er að segja á „inter-
netinu" — og hefur þegar komið
sér upp eigin heimasíðu:
http://www.vks.is/skak/hellir/ind-
ex.html. Hellisbúar eru því í mikl-
um ham og verður spennandi að
sjá hverju fram vindur!
Það er við hæfi að sýna athygl-
isverða skák með nýbökuðum
meistara Hellis, en hann varð
reyndar einnig fyrsti meistari fé-
lagsins árið 1992. Skákin var tefld
í 5. umferð mótsins.
Hvítt: Andri Áss Grétarsson
Svart: Björn Þorfinnsson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6
4. Rg5 d5 5. exd5 Rxd5?
Þetta þykir slakur leikur.
Venjulega er leikið 5...Ra5, en
þeir sem kjósa að tefla hvasst
leika 5...Rd4 eða 5...b5
6. d4 Bb4+
Til að koma í veg fyrir að hvíti
riddarinn hafl aðsetur á c3 reitn-
um.
7. c3 Be7 8. Rxf7 Kxf7 9.
Df3+ Ke6
10. De4! g5
Hvítur hefur fórnað manni
fyrir sóknarfæri. Staðan er mjög
vandtefld fyrir svartan, ef t.a.m.
er leikið 10...Dd6 þá kemur f4
og svartur á ekki auðvelt með að
koma í veg fyrir að hvítur skáki
á f5. Aðrir möguleikar fyrir
svartan eru hins vegar 10...b5,
til að koma svarta biskupnum á
b7, og 10...Bf8, til að koma ridd-
aranum á e7, en svarta staðan
verður þá ansi þröng og erfið. í
stað þess að hrókera kemur vel
til greina að leika 11. h4.
11. 0-0 Bf6 12. dxe5 Rxe5 13.
f4 gxf4 14. Bxf4 Dd6 15. Rd2 b5
16. Bb3 Bb7 17. Hael Haf8 18.
Rf3 Dc5+ 19. Rd4+?
Hvítur hefur öll völd. Eftir 19.
Khl hefði svartur ekki getað
hreyft sig án þess að missa
manninn til baka og fá á sig
kröftuga kóngssókn. Nú neyðist
hvítur hins vegar til umtals-
verðra uppskipta og auðveldara
verður fyrir svartan að hreyfa
sig.
19... Kd7 20. Bxe5 Rxe5 21.
Dxe5 Dd6 22. Hxf8 Hxf8 23.
Dg7+
Betra er 23. De6+ Dxe6
(Ekki gengur 23... Kd8 24.
Dxd6 cxd6 25. Re6+ og hvítur
vinnur skiptamun) 24. Rxe6 Hf5
25. Rc5+ Kc6 26. Rxb7 og hvít-
ur er peði yfir.
23... Kc8 24. He6 Df4 25.
Rf3 Rb6 26. Dg5 Bxf3 27. He8+
Kb7 28. Dxf4 Hxf4 29. gxf3
Hxf3
Svartur hefur náð peðinu til
baka og allt stefnir í jafntefli.
En í miklu tímahraki leikur
hann skákinni niður:
30. He7 h6 31. He6 h5 32.
He5 h4 33. Hxb5 Hd3 34. Hf5
Hd2 35. Hf2 Hd3 36. He2 a5
37. Bc2 Hd6 38. Be4+ Ka6 39.
Kg2 Ra4 40. Hc2 Hb6 41. b3
Rc5 42. Bd5 Hf6 43. Kh3 Hf4
44. Hd2 Kb6 45. Hd4 Hf2 46.
b4 Rd7 47. Hxh4 Hc2 48. Hh6+
Ka7 49. Hc6 Re5 50. Hxc7+
Kb6 51. Hb7+ og svartur gaf,
1-0.
Að lokum má geta þess að
Taflfélagið Hellir stendur fyrir
vikulegum barna- og unglinga-
æfingum á mánudögum kl.
17:15 í Menningarmiðstöðinm
Gerðubergi, sem og æflngum
sem öllum eru opnar á mánu-
dögum kl. 20.
Davíð Ólafsson æskulýðsfulltrúi fylgist með upprennandi stjörnum á ung-
lingaæfingu hjá Helli.
Þorláksson
Þrautin
Þroskahjálp á Norðurlandi eystra,
Akureyri
Félagsfundur
verður þriðjudaginn 8. október ’96 kl. 20.30
í Iðjulundi.
Stjórnin.
Foreldraráðgjafi/
starfsmaður
Þroskahjálp á Norðurlandi eystra, Akureyri, óskar eftir
að ráða sem fyrst foreldraráðgjafa/starfsmann í 50%
starf.
Þekking á málefnum fatlaðra ásamt góðri grunnmenntun er
nauðsynleg.
Starfið er fjölbreytt og gefandi.
Skriflegar umsóknir berist skrifstofu Þroskahjálpar í Kaup-
angi v/Mýrarveg, 600 Akureyri, fyrir 20. október.
Nánari upplýsingar í síma 462 6558.
S/NS
4 KG975
VÁ6
♦ KT42
* 83
N
S
4 ÁDT82
44 D5
♦ Á93
* ÁK6
Suður Vestur Norður Austur
14 24 34 pass
44 pass 44 pass
64 pass pass pass
Útspil: laufdrottning
Iívernig er best að spila?
Tígullinn virðist í fyrstu vera
lífliturinn og ef hann brotnar 3-
3 eru engin vandamál. Þá kem-
ur einnig til greina að toppa og
spilið vinnst ef háspil kemur í.
En það eru fleiri möguleikar.
Þegar spilið kom upp í Eng-
landi þóttist sagnhafi hafa
fundið hinn eina sanna tón með
spilamennsku sinni. Hann drap
útspilið með ás, tók tvisvar
tromp, tvo efstu í tígli og lauf-
kóng. Þá var lauf trompað,
hjartaás tekinn og hjarta spilað
á drottninguna. Vestur drap en
varð síðan að játa sig sigraðan
því svona var allt spilið:
4 KG975 44 Á6 ♦ KT42 * 83
4 6 N 4 43
44 KGT943 V A 44 872
♦ 75 ♦ DG86
* DGT2 S 4» 9754
4 ÁDT82 44 D5 ♦ Á93 <4 ÁK6
Sagnhafi vann sitt spil en til
er betri leið. Sú er að taka
trompin, hreinsa laufið og spila
tígulkóngi. Þá er litlum tígli
spilað úr borði og ef austur set-
ur h'tið er nían látin duga. Vest-
ur getur ekki yfírdrepið og
slemman er í höfn. Takið eftir
að vestur getur sér enga björg
veitt þótt hann hefði átt tígulhá-
mann.
Frá Bridgefélagi
Sauðárkróks
Sl. mánudag var spilaður
eins kvölds tvímenningur. Efstu
pör:
1. Kristján Blöndal-Ingvar
Jónsson 130
2. Bjarni R. Brynjólfsson-Ólafur
Sigurgeirsson 126
3. Gunnar Þórðarson-Árni
Blöndal 122
Nk. mánudag hefst 2ja
kvölda tvímenningur sem kall-
ast „vanir-óvanir“ og gefst þar
gott rækifæri fyrir þá sem
aldrei hafa spilað bridge. Spila-
mennska hefst kl. 12.00 og er
spilað í bóksnámshúsinu.
Frá BR
Nú standa yfir eins kvölds
tvímenningskeppnir hjá BR.
Miðvikudaginn 26. september
var spilaður Monrad-barometer
með þátttöku 44 para. Efstu
pör:
1. Helgi Sigurðsson-Sigurður B.
. Þorsteinsson 158
2. Hermann Lárusson-Ólafur
Lárusson 124
3. Ragnar Hermannsson-Einar
Jónsson 88
BR hefur bikarkeppni í tví-
menningskeppnunum bráðlega.
Pör verða dregin á móti hvort
öðru og það par sem fær liærra
skor kemst áfram í næstu um-
ferð.
Frá Bridgefélagi
Breiðfirðinga
Nú stendur yfir haustbar-
ómeter en aðalsveitakeppnin
byrjar 24. október. Spiluð verða
forgefin spil og butler-árangur
paranna reiknaður út. Fimmtu-
daginn 26. sept. var spilaður
Howell tvíemenningur og urðu
efstu pör eftirfarandi:
1. Júlíus Sigurjónsson-Tryggvi
Ingason 193
2. Albert Þorsteinsson-Kristófer
Magnússon 192
3. Einar Jónsson-Hlynur Magn-
ússon 186