Dagur - Tíminn - 08.10.1996, Qupperneq 9
ÍDagur-ÍILmmm
Þriðjudagur 8. október 1996 - 21
F Ó L IC
■.'.vj/.;
Gleym mér ei
Hér má sjá Guðbjörgu Vilhjálmsson næla barmmerkið Gleym mér ei í herra Ólaf Ragnar Grímsson og Margréti Eggertsdóttur afhenda frú Guðrúnu
Katrínu Þorbergsdóttur merkið.
Konurnar í Kvenfélaga-
sambandi Gullbringu- og
Kjósarsýslu vilja nýjan
barnaspítala. Um helgina seldu
þær fagurt merki sitt til ágóða
fyrir spítalann, meðal þeirra
sem fyrst fengu merki voru for-
setahjónin. Katrfn Gunnarsdótt-
ir er ein þeirra sem stendur að
söfnuninni og segir hún að beð-
ið sé eftir að ríkisstjórnin taki
ákvörðun um spítala - „við vilj-
um fá þetta á hreint“ segir hún,
en barnaspítali hefur ekki enn
komist á íjárlög. Þær konurnar
eru enn að selja merldð og
hægt að nálgast það símleiðis
hjá Sólveigu, sími 421 6600, hjá
Gunnhildi, sími 426 7890 og hjá
Katrínu í síma 565 3782 og 552
7420. MerWð er táknræn
áminning til fólks að horfast í
augu við þann vanda sem kon-
urnar telja að húsnæðisskortur
barnaspítala sé: blómið Gleym
mér ei.
Nú haustið er liðið.-.fyrsti vetrarhvellurinn kom um helgina og nú eru fagrar minningar frá haustinu til þess fallnar að ylja okkur meðan úti geysa vetrar stormar stríðir. Ungi smalinn á
myndinni er úr Árnessýslu, nú eflaust sestur á skólabekk, en ilmur af fé af fjalli í vitum og jarmið sára í huga... Vonandi semur hann Ijóð um þennan dag.
iDagur-(Etmtmt
Strandgötu 31 • Akureyri
GarSarsbraut 7 • Húsavík Sími 800 70 80
Brautarholti 1 • Reykjavík