Dagur - Tíminn - 09.11.1996, Qupperneq 16

Dagur - Tíminn - 09.11.1996, Qupperneq 16
28 - Laugardagur 9. nóvember 1996 jDagur-'íEínttrai ICONUNGLEGA SÍÐAN Hæfíleikarík, dugleg og vinsæl Margrét Þórhildur við völd í 25 ár. BÚBBA heldur varla vatni af hrifningu gfir Margréti II Danadrottningu, ( Daisy ) það er nú þjóðhöjðingi í lagi! S rið 1997 verður merki- legt ár í tvennum, drott- ingarlegum, skilningi fyr- ir dönsku þjóðina. í fyrsta lagi fagna Danir 25 ára valdaafmæli Margrétar II drottningar hinn 14. janúar og í öðru lagi verða hinn 21. aprfl liðin 50 ár frá því að Ingiríður, móðir Margrétar, varð drottning Danmerkur. Vinsæl drottning Margrét Danadrottning heitir fullu nafni Margrét Alexandrine Þórhildur Ingrid. - Vinir hennar kalla hana Daisy. Hún er fædd í Amelienborgarhöll í Kaup- mannahöfn 16. aprfl 1940 og var því erfðaprinsessa á íslandi þegar hún fæddist. Margrét Þórhildur tók við völdum aðeins 32 ára að aldri við andlát föður síns Friðriks IX á árinu 1972. Valdatíð hennar hefur verið far- sæl og hún nýtur afar mikilla vinsælda meðal þjóðar sinnar. Samkvæmt skoðanakönnunum eru 83% Dana þeirrar óbifan- legu skoðunar að rétt sé að hafa konungsríki í Danmörku. Friðrik faðir Margrétar, var af hinni gömlu konungsætt sem kennd er við Gluksburg en móðir hennar Ingiríður er af Bernadotteættinni sem nú ræð- ur ríkjum í Svíþjóð. Sú ætt er raunar frönsk og er uppáhalds- konungsættin mín. Margrét Þórhildur er elst þriggja dætra þeirra Friðriks og Ingiríðar. Næst elst er Bene- dikte prinsessa sem gift er þýskum prins og yngst er svo Anna María Grikkjadrottning sem gift er Konstantín Grikkja- konungi sem nú er í útlegð í London. Margrét giftist 27 ára gömul frönskum greifa sem heitir fullu nafni Henri-Marie-Jean-André greifi af de Laborde de Monpez- at. Eftir giftinguna tók hann upp nafnið Hinrik prins. Þau hittust í London og var það ást við fyrstu sýn. Margrét Þórhild- ur sagði í sjónvarpsviðtali á ár- inu 1989 að hún væri ennþá ótrúlega ástfangin af mannin- um sínum. Þau hjónin eiga mörg sameiginleg áhugamál og hafa m.a. í sameiningu þýtt bækur á danska tungu. Listræn hæfileika- kona Menntun Margrétar Þórhildar er klassísk í besta skilningi orðsins en hún þykir einn best menntaði þjóðhöfðingi í Evr- ópu. Hún hefur stundað nám við a.m.k. fimm háskóla og tal- ar reiprennandi mörg tungu- mál, mig minnir sjö. Hún hefur sérstaklega kynnt sér fornleifa- fræði og þykir liðtækur fræði- maður á því sviði. Hún hefur stundað fornleifarannsóknir í Danmörku, Ítalíu, Egyptalandi og í Súdan. Margrét Þórhildur þykir hæf- ur listmálari og hefur hún hald- ið margar einkasýningar. Hún hefur hannað leikmyndir og búninga við uppfærslur í kon- unglega leikhúsinu í Kaup- mannahöfn. Upphafið að list- rænum ferli drottningarinar má rekja til þess er hún las bókina Hringadróttinssaga eftir Tolki- en. Hún og rithöfundurinn skrifuðust á um nokkurt skeið og hún sá um myndskreytingar í nýrri útgáfu bókarinnar í Dan- mörku á árinu 1977 undir dul- nefninu Ingahild Grathmer. Margrét Þórhildur les mikið, fer vikulega í balletttíma og er liðtækur bridgespilari. Þá þykir hún einnig frambærilegur pí- anóleikari. (Maður fær nú bara minnimáttarkennd!). Segist hafa verið siæm móðir Margrét og Hinrik eiga tvo syni: Friðrik, 28 ára og Jóakim, 27 ára. Þeir hafa þótt nokkuð fjör- ugir í gegnum tíðina og vegna áhuga þeirra á hraðskreiðum bflum hafa þeir verið kallaðir túrbó-prinsarnir . Það varð nokkurt uppistand í Danmörku fyrir u.þ.b. átta ár- um síðan þegar Margrét lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali að hún hafi verið slæm móðir. „Ég var ekki nógu mikið með þeim,“ sagði hún. „Það var einfaldlega ekki tími til þess. Ég vanrækti þá og hef alla tíð haft sam- viskubit yfir því.“ En Margrét bætti því við að hún væri af- skaplega stolt af sonum sínum. Astarmál prinsanna hafa verið í brennidepli. Jóakim gift- ist á sl. ári Alexöndru Manley sem er fimm árum eldri en hann og af kínverskum ættum. Alex, eins og hún er kölluð, hef- ur heillað Dani upp úr skónum og nýtur hún fádæma vinsælda. Ástarmál erfðaprinsins, Frið- riks, hafa hins vegar verið held- ur stormasamari. Nýlega slitn- aði upp úr sambandi hans og fyrirsætunnar Kötju Storkholm sem staðið hafði í tvö ár. Er tal- ið að afstaða Margrétar drott- ingar hafi ráðið þar mestu um, en henni fannst ungfrú Stork- holm ekki vera hentugur efni- viður í drottingu. Á henni að hafa þótt stúlkan ekki nægilega vel menntuð auk þess sem myndir hafa birst af henni á nærklæðunum einum fata, - som er meget upassende mildt sagt. - Nú er bara að sjá hvar Friðrik leitar fanga. Þá er það útlitið Ég kýs að vera hreinskilin, og segi því alveg eins og mér býr í brjósti. Samkvæmt hefðbundn- um fegurðarstöðlum telst Mar- grét Þórhildur ekki fögur kona. Hún hefur grófgerða húð og augnsvipurinn er sérstakur. Þá hefur hún nokkuð undarlega takta þegar hún talar og hlátur- inn er alveg sér á parti. Yfir henni er samt einhver klassi sem erfitt er að lýsa öðruvísi en þannig að vissulega sé yfir henni óviðjafnanlegur drotting- arlegur sjarmi. Hún er frjálsleg í fasi, brosmild og hikar ekki við að láta í ljós skoðanir sínar. Hún ber af öðrum þegar hún klæðir sig uppá, kjólarnir eru einstaklega glæsilegir og íburð- armiklir. Skartgripir hennar eru einstakir og bera þar af skartgripir sem kenndir eru við Bernadotteættina. Mannkostir Margrétar Þórhildar eru svo ótvíræðir að engum dettur í hug tilgerð eða sýndarmennska þegar hún er annars vegar.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.