Dagur - Tíminn - 09.11.1996, Side 18

Dagur - Tíminn - 09.11.1996, Side 18
30 - Laugardagur 9. nóvember 1996 3Dagnr-Œírmrm S K Á K Systkinin Helgi Áss og Guðfríður Lilja Grétarsbörn skrifa um skák Dagurinn í dag, 9. nóvem- ber, er mjög merkur í sögu Þýskalands, ekki síst í sögu Berlínarborgar, en þaðan skrifar Guðfríður Lilja í dag og í vetur. Þennan dag árið 1919 var Weimar-lýðveldið stofnað, þennan dag árið 1938, sem síðan hefur verið minnst sem „Kristalnacht", fóru nasist- ar hamförum gegn þýskum gyð- ingum, og þennan dag fyrir 7 árum síðan féll Berlínarmúrinn. í dag, 1996, virðist samt sem ekkert þessu líkt ætli að gerast - þó aldrei sé að vita með þenn- an örlagadag þýskrar sögu - og borgin iðar af ógnarspennandi mannlíf! og menningu. Litrík kaffihús setja svip sinn á borg- ina á hverju horni, og sum þeirra a.m.k., búa yfir líílegri skákiðkan. Kaffihús hafa í gegnum tíð- ina gegnt mikilvægu hlutverki í skáksögunni. Cafe de la Reg- ence í París er líklega frægasta dæmið. Frá u.þ.b. 1740 til 1860 voru margir helstu mektar- menn Frakklands þar tíðir gest- ir og þar var skák ákaft telfd. Menn á borð við Philidor, Volta- ire, Rousseau, Robespierre og Napóleon tíðkuðu þar komur Kaffi sínar, og skáksnillingurinn Paul Morphy telfdi þar á ferðalagi sínu um Evrópu. Vegna vin- sælda staðarins ku á stundum hafa verið óbærileg molla inni, en menn létu það þó ekki aftra sér frá eldheitri skákbaráttu og bókmenntaumræðu. Kaffihúsið var raðað speglum á alla kanta, og á sunnudögum var svo mikil mannþröng að enginn tók ofan hatt sinn til að spara pláss. Þá var gulli betra og flestum ómögulegt að komast yfir stól. Sagan segir að eitt sinn hafi ung kona dulbúin sem karlmað- ur komist inn og teflt við sjáifan Robespierre. Kona þessi gerði sér lítið fyrir og mátaði harð- stjórann, og sem hún mátaði hann svipti hún sig karlmanns- dulunni og krafðist þess að sem sigurvegari fengi hún eina ósk uppfyilta. Hún bað þess að elsk- hugi hennar, sem hent hafði verið í fangelsi af mönnum Ro- bespierre, yrði ieystur úr haldi. Robespierre gat varla verið þekktur fyrir annað en að verða við ósk sigurvegarans, og kon- an unga labbaði út úr kaffihús- inu með lausnarbeiðni undirrit- aða af Robespierre undir hönd- um. Enn þann dag í dag gegna kaffihús í ýmsum löndum hlut- verki sem líflegar skáksamkom- ur. Franska kaffihúsakeðjan „Au bon pain“ er til dæmis þekkt um alla Bostonborg í Bandaríkjunum fyrir fjörugt skáklíf á torginu fyrir framan Harvard- háskóla. Þar situr jafnan rauðhærður, alskeggjað- ur maður með stráhatt við vel merkt borð þar sem á stendur „Play the Chess Master for $2,“ eða „Teflið við skákmeistarann fyrir 2 dolfara“. Skákmeistari þessi vinnur fyrir sér með því að bjóða gestum og gangandi að tefla við sig, en ef hann tap- ar verður hann sjálfur að borga andstæðingnum. Hann kennir og þeim sem vilja, og er manna fróðastur um hitt og þetta und- arlegt í skákfræðunum. Hann ku enda vera sonur frægs pró- fessors við skólann, þótt enginn virðist selja þá sögu dýrara en hún var keypt. „Skákmeistar- inn“ er þó ekki eini skákmaður- inn á þessu vinsæla kaffihúsi, því að þar sitja ávallt fjölmargir að tafli. Það er ekki síst gott ráð fyrir unga konu að setjast að skák- borðinu á Harvard-torgi. Það vekur ómælda athygli og undr- un, og í fyrstu hlátur, á meðal skákkarlanna á kaffihúsinu þegar kona gerir sig líklega til að tefla. Ef vel gengur nýtur maður hins vegar þess skondna en ánægjulega heiðurs að heyra pískrað, bent og horft stórum augum. „Polgar, Polgar!!!" Hvers vegna skyldi það vera að á íslandi, Mekka skákáhuga- manna, sjái maður nær aldrei fólk að tafli á kaffihúsum? Það væri ekki úr vegi fyrir eigendur að gera kaffihúsa- og skáklífið heima á Fróni eilítið frjórra og skemmtilegra með því einfald- lega að bjóða upp á taflsett til lans fyrir gesti og gangandi. Kaffi með skák? Já, takk! B R I D G E Björn Þorláksson skrifar „Missti ekki vitlaust spil“ ísland eignast heims- meistara í parakeppni s slendingar eignuðust heimsmeistara í parasveita- keppni á dögunum þegar Björn Eysteinsson, Jón Baldurs- son, Matthías Þorvaldsson og Ragnar Hermannsson gerðu sér lítið fyrir og unnu fyrsta mótið í þessum flokki ásamt tveimur breskum landsliðskonum. Sannarlega glæsilegur árangur. Aðaltvímenningur BA Glæstur endasprettur bræðranna Aðaltvímenningi Bridgefé- lags Akureyrar lauk sl. þriðju- dag með sigri bræðranna Antons Haraldssonar og Sigur- björns. Þeir áttu afar góðan lokasprett og skoruðu um 150 stig á síðasta kvöldinu, sem er með ólíkindum í aðeins 27 spil- um í barómeter. Lokastaðan varð þannig að bræðurnir skor- uðu 267 stig, Grettir Frímanns- son og Pétur Guðjónsson urðu í öðru sæti með 152 stig og Pre- ben Pétursson og Sveinn Stef- ánsson þriðju með 138 stig. Næsta keppni Bridgefélags Ak- ureyrar er hraðsveitakeppni og er spilað á þriðjudagskvöldum í Hamri kl. 19.30. Eitt magnaðasta útspil sem sögur fara af lengi fann Ragnar Jörð til sölu! Jörð í Eyjafjarðarsveit til sölu. Á jörðinni er greiðslumark 75.000 lítrar af mjólk. Fjós, 26 básar auk aðstöðu fyrir geldneyti. Hlaða um 1 100 rúmm, ræktun um 30 ha. íbúðarhús um 150 fm. Áhöfn 25 kýr auk geldneyta, vélar og hey. Tilboðum sé skilað til Búnaðarsambands Eyjafjarðar Óseyri 2 fyrir 25. nóvember. Nánari upplýsingar eru þar í síma 462 4477 á skrif- stofutíma eða í síma 463 1 320. Búnaðarsamband Eyjafjarðar. T. Jónsson á íslandsmóti yngri spilara um síðustu helgi. Ragn- ar og Tryggvi Ingason sigruðu á mótinu en Halldór Sigurðarson og Hlynur Magnússon urðu í öðru sæti. Bæði pörin eru frá ísafirði - en lítum á útspilið: 4 Á54 ** DGT9632 ♦ 83 * Á 4 D9 «4 754 ♦ GT94 * KD53 N V A S 4 KT76 «4K ♦ D7652 * 842 4 G832 «4Á8 ♦ ÁK * GT976 Sagnir gengu einfaldlega þannig að suður opnaði á 2 laufum (precision) og norður stökk í 4 hjörtu. Allir pass og Ragnar Torfi átti útspil. Ein- hverjar tillögur frá lesandan- um? Ragnar fann spaðakónginn (!?!) og fíraði á borðið. „Nei, ég missti ekki vitlaust spil á borð- ið. Það má segja að ég hafi bara ákveðið að spila „agressívt" út,“ Þessir fjórir skiptu með sér tveimur efstu sætunum á íslandsmóti yngri spilara, sem fram fór um síðustu helgi. Frá vinstri Hlynur Magnússon, Halldór Sigurðarson, Tryggvi hgason og Ragnar Torfi Jónsson. MyndBÞ sagði Ragnar eftir spilið. Afleið- ingar þess urðu óvæntar. Eins og sjá má á sagnhafi 12 slagi með því að gera laufið gott en sagnhafi, silfurhafinn Halldór Sigurðarson, taldi lítinn tilgang með þeirri handavinnu, enda spaðadrottningin „sönnuö" hjá austri. Hann varð ekki lítið hissa þegar hann spilaði spaða að gosanum eftir að hafa tekið trompin og vestur, Tryggvi, drap með drottningu og tryggði vörninni 2 slagi á spaða. Kannski var þetta spilið sem réð úrslitum um baráttuna hjá ísafjarðarskelfunum. A sama tíma fór fram ís- landsmót heldri spilara. Þar höfðu sigur Jón Hjaltason og Gylfi Baldursson, sem hafa ver- ið mjög sterkir á mótum að undanförnu. Stefán Guðjohnsen og Guðmundur Pétursson urðu í öðru sæti.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.