Dagur - Tíminn - 13.11.1996, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn - 13.11.1996, Blaðsíða 2
14- Miðvikudagur 13. nóvember 1996 3]agur-©ntirai LÍFIÐ í LANDINU MFS-einingin hefur verið starfrækt á Landspítal- anum á annað ár. MFS stendur fyrir meðgöngu, fæð- ingu og sængurlegu og er að mestu leyti byggð upp eftir sænskri fyrirmynd. Að einingunni standa 6 ljós- mæður og taka þær á móti ófrískum heilbrigðum konum sem ekki hafa lent í erfiðum fæðingum eða meðgöngum áð- ur. Ljósmæðurnar geta tekið á móti um 200 konum á ári. Hróður þeirra hefur borist út því núorðið er fullbókað og þær hafa þurft að vísa konum frá. 34 ný andlit Markmiðið með starfseminni er í fyrsta lagi að verðandi foreldr- ar fái nokkuð samfellda þjón- ustu frá fáum manneskjum. „Konur sem fara í gegnum al- menna kerfið eru að hitta allt að 34 nýja aðila,“ segir Margrét Hallgrímsson, Ijósmóðir í MFS. f öðru lagi að allt gangi sem náttúrulegast fyrir sig og í JLJLI Markmiðið er að verðandi foreldrar fái samfellda þjónustu frá fáum manneslgunu í öðru lagi að allt gangi sem náttúru- legast fgrir sig og í þriðja lagi að foreldrarnir fái að taka aukna ábyrgð á meðgöngu og fœðingu. þriðja lagi að foreldrarnir fái að taka aukna ábyrgð á meðgöngu og fæðingu. Þannig forðast ljós- mæðurnar öll inngrip ef þess er mögulega kostur. Það er í fæðingunni sem MFS sker sig úr því í fæðingarstofum þeirra er ekki sérstakt fæðing- arrúm heldur venjulegt tvíbreitt hjónarúm. Engin mænudeyfing Ef konan æpir á mænudeyfingu í miðri fæðingu er henni rúllað inn á fæðingargang og dettur út úr MFS-kerfinu. „Þá er verið að gera læknisfræðilegt inngrip, því það er læknir sem leggur epídúral," segir Guðbjörg Davíðsdóttir ljósmóðir. Konurnar geta farið heim 6- 48 stundum eftir fæðingu. Guð- björg segir konurnar hreint ekki lúpulegar þegar þær ganga út af sjúkrahúsinu nokkrum klukkustundum eftir fæðingu. „Það er oft ekki fyrr en á þriðja, íjórða degi sem einhver depurð kemur í þær þegar adrenalínið er að minnka í líkamanum. Þá finnst mörgum betra að vera komnar heim í sitt rúm.“ MFS-ljósmæðurnar fylgja for- eldrunum eftir fyrstu vikuna og fara heim til þeirra að meðaltali 5-8 sinnum. Þær eru með sím- boða á sér og fljótar að bregðast við ef eitthvað kemur upp á. Síð- an tekur ungbarnaeftirlitið við. Ódýrara Almennt er talað um að um 70% kvenna gætu farið í gegn- um svona meðferð. Þetta er ódýrari kostur fyrir spítalann. Efkonan œpir á mœnu- deyfingu í miðri fœðingu er henni rúllað inn á fœðingargang og dettur út úr MFS-kerfinu. Guðbjörg telur raunhæft að koma upp fleiri svona einingum um landið, t.d. á Akureyri. Hins vegar má segja að lítil hætta sé á að verðandi mæður í smærri plássum mæti á fjórða tug nýrra andlita í heilbrigðiskerf- inu frá getnaði til ungbarnaeft- irlits. LÓA Sit hér eins og prinsessa Guðríður Arnardóttir, jarð- fræðingur, eignaðist fyrir nokkru sitt annað barn, hraustan 17 marka dreng sem fengið hefur nafnið Eyþór Örn. Fyrir á hún 7 ára stelpu. Guð- ríður fetaði í fótspor tveggja vin- kvenna sinna og fór í gegnum MFS-ferlið á Landspítalanum og er hæstánægð með þjónustuna, aðstöðuna og ljósmæðurnar. Og ætlar aftur til þeirra næst... Eins og hótel Laugardagur kl. 16: Þaú hjónin fóru upp á Landspítala, Guðríður komin með hríðir. „Þetta var eins og við værum að tékka okk- ur inn á hótel. Við vorum boðin velkomin og svo sögðu þær: „Hafið þetta bara eins og þið viljið, þið hringið bjöllunni ef þið þurfið eitthvað á okkur að halda." Ljósmóðirin kíkti á okk- ur öðru hvoru og settist svo inn þegar farið var að líða að fæð- ingu.“ í fæðingunni voru tvær ljósmæður viðstaddar en læknir kom nálægt þeim. Laugardagur kl. 20: Þeim fæddist sonur. „Þegar við vorum búin þá drógu þær sig í hlé. Þetta var okkar stund. Ég bað- aði barnið og klæddi hann um leið og hann var fæddur. Svo áttum við kvöldið. Það var ekk- ert verið að trufla okkur." Sunnudagur kl. 13: 17 klukkustundum eftir fæðing- una, gekk Guðríður keik út af spítalanum með manni sínum og nýtt barn. Hún hafði upphaf- lega ætlað að dvelja í fæðingar- stofunni í fulla tvo sólarhringa. „En ég var bara svo hress og okkur langaði heim.“ Fæðingardeildin vs. MFS-einingin Guðríður fæddi eldri dóttur sína á fæðingardeild Landspítalans. „Fæðingarnar voru tæknilega svipaðar en þetta rólega and- rúmsloft núna munaði mig svo miklu. Við fyrri fæðinguna fékk Guðríður engin verkjalyf en í þetta sinn fékk hún peditín- sprautu. MFS-ljósmæðurnar gefa öll verkjalyf nema mænudeyf- ingu sem deyfir allan neðri hluta daginn eftir eins og eftir fimm daga. Það er hins vegar voða notalegt að hann sé heima og ég sit hérna eins og prinsessa.“ Snuddar með moppuna Því verður þó ekki neitað að lík- amleg átök fylgja því að ýta lítill mannveru út í heiminn og kannski ekki ráðlegt að taka strax til við að kjaga eða rigsa um eins og ekkert hafi í skorist. Sumar konur eru sjálfsagt hræddar um að freistingin bæri þær ofurliði. Að kústaskápnum yrði rykkt upp við heimkomuna og hafist yrði handa við að skúra, skrúbba og bóna. Því einhvern veginn tilheyrir það „Þetta var eins og við vœr- um að tékka okkur inn á hóteL Við vorum boðin velkomin og svo sögðu þœr: „Hafið þetta bara eins og þið viljið, þið hringið bjöllunni ef þið þurfið eitt- hvað á okkur að halda. “ líkamans. Kveljist konur mjög í fæðingu eru þær gjarnan mænu- deyfðar en Guðríður sagðist ekki hafa séð eftir ákvörðuninni í miðri fæðingu enda hefði hún aldrei ætlað sér að fá mænudeyf- inguna. „Meginmunurinn er sá að þarna eru rólegheit og þú kem- ur inn í herbergi með dempuð ljós, fæðir inni í þessu herbergi með þínum maka og þið eruð tvö þarna inni ailan tímann með barnið ykkar þangað til þið farið heim. Maður getur fengið að vera þarna inni í 48 tíma og makinn allan tímann. Þetta er bara eins og maður sé á litlu hótelherbergi." Eiginmaður Guðríðar var ekki síður ánægður með MFS. „Honum finnst svo mikil forrétt- indi að hafa getað verið með barnið á handleggnum síðan á laugardaginn [sagt á þriðju- degi] en undir venjulegum kringumstæðum væri hann bú- inn að hitta það þrisvar sinnum í hálftíma." Mæðraskoðun í heimasætuherbergi Á meðgöngunni fór Guðríður í mæðraskoðun á MFS-stofuna á Kvennadeildinni. „Þær eru með voðalega huggulegt herbergi, svona heimasætuherbergi með bast- húsgögnum, betrekkborð- um og grænum litum. En það er fylgst vel með blóði, þvagi, leg- botninum og andlegri heilsu. Hver skoðun tekur alveg hálf- tíma og það er mikið spjallað. Ég myndi heilsa þessum konum út í búð.“ Kariinn ekki ómissandi Eiginmaður Guðríðar verður meira og minna heima fyrsta hálfa mánuðinn en hann átti inni vetrarfrí. Guðríður telur það samt ekk- ert frumskilyrði að pabbinn geti verið heima fyrstu dagana þó svo að móðirin og nýburinn komi heim á fyrsta eða öðrum sólar- hring. „Ef þetta væri fyrsta barn þá myndi það engu máli skipta. En það er auðvitað misjafnt hvernig heilsan er. Það er þó eig- inlega nauðsynlegt ef maður er með eldra barn. Ég hefði samt alveg plumað mig hérna. Ég er það hress að ég get alveg séð um mat og annað. Ég myndi allt eins treysta mér til að koma heim að allt sé spegilfágað og brak- andi hreint í kringum hvítvoð- unga. Guðríður segist hafa staðist það „þrátt fyrir löngun til þess. Ég fékk reyndar hrein- gerningaræði í aðdragandanum að fæðingunni þannig að það var svo sem jólahreingert hérna. Hann maðurinn minn veit nú líka hvernig ég er og er samviskusamlega að snudda við að moppa gólfin og svona. Þetta blessast allt.“ LÓA MFS ekki a Akureyri AAkureyri hefur þunguð- um konum ekki staðið til boða samsvarandi þjónusta og MFS og segir Ingi- björg Jónsdóttir, deildarstjóri á fæðingar- og kvensjúkdóma- deild FSA, að ekki hafi verið formlega rætt um að koma á fót slíkri þjónustu. Málið hafi lítið verið kannað og því erfitt að segja hvort þörfin sé jafnmikil á Akureyri, þar sem fámennið er meira en á höfuðborgarsvæð- inu. AI

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.