Dagur - Tíminn - 13.11.1996, Page 11
JJagur-®œmtn
Miðvikudagur 13. nóvember 1996 - 23
FÍNA FRÆGA
FÓLKIÐ
Madonna í tveim nýjum
rulliim; Evítu og mömmu
Með sérstökum brögðum við myndatökurnar, m.a.
nákvæmu vaii sjónarhorna, sviðsbúnaði og fatavali
tókst að fela 18 vikna óléttu Madonnu.
Að fá aðalhlutverkið í helgisögu Evu Per-
on, sem bæði er minnst sem engils og
harðstjóra, væri viðburður fyrir allar
leikkonur. Enda sótti Madonna það mjög fast að
hreppa hnossið. Um leið og hún frétti að Alan
Parker hefði gert samning um að stjórna Evítu,
settist hún niður og skrifaði honum átta síðna
bréf eigin hendi. Parker sagðist heldur aldrei
hafa verið í efa: „Madonna lofaði mér að hún
mundi leggja sig alla fram og hefur líka staðið
við það.“
Með Evítu, sem er 14. kvikmynd Madonnu,
hefur henni loksins tekist að breyta ímynd sinni
úr poppstjörnu í kvikmyndastjörnu, sem var
henni líka gífurlega mikilvægt. Madonnu lang-
aði nefnilega allra síst að enda sem einskonar
kvenútgáfa af Mick Jagger, þ.e. rokkandi gamlingja,
sem reynir af öllum mætti að láta sem náttúrulög-
málin snerti hann ekki.
Evíta þykir þó ekki gulltrygging fyrir frama. Bent
er á að ýmsum hæfileikaríkum stjórnendum hafi
síðustu árin mistekist við kvikmyndasöngleiki. Með
Evítu sé áhættan jafnvel ennþá meiri, því að örfáum
setningum frátöldum er myndin öll sungin og þann-
ig raunverulega fremur um óperu að ræða en söng-
leik.
Engu mátti heldur muna að náttúrulögmálin
settu alvarlegt babb í bátinn. Madonna, sem segir
það hreint ekki ótítt að blæðingar falli niður þegar
hún er í hörkuvinnu, uppgötvaði allt í einu að hún
var komin 12 vikur á leið. í fyrstu sagðist hún hafa
fundið til sektarkenndar, þar sem hún óttaðist að
geta ekki lokið myndinni vandræðalaust. En allt
bjargaðist það fyrir horn. Þungi hennar var ekki
orðinn verulega áberandi þegar sjálfum myndatök-
unum lauk á fimmta mánuði meðgöngutímans.
Að kvikmyndavinnunni lokinni gat Madonna síð-
an hellt sér út í meðgöngu og barnsburð - auðvitað
af miklum krafti eins og flest annað sem hún tekur
sér fyrir hendur.
Glæsileg í einum loðfeldanna, sem voru framleiddir
sérstaklega fyrir kvikmyndina hjá Fendi í New York.
Teitur Þorkelsson
skrifar
Sjortarar
ó það sé gott að elskast
klukkustundum saman í
fullkomnu næði frá heim-
inum má ekki gleyma því að
skyndibitar geta verið gómsæt-
ir, og sem betur fcr því það
gefst ekki alltaf tími til að upp-
lifa þriggja klukkustunda kyn-
lífsparadís í henni veröld. Alla-
vega ekki í hvert skipti sem
girndin kviknar. Þegar annað
ykkar er á leiðinni út getur
kveðjukossinn stundum kveikt
elda sem illt þykir að yfirgefa
án þess að ylja sér frekar. Eða
þegar vinur, í heimsókn hjá
ykkur yfir helgina, bregður sér
í sturtu og þið tvö þétt saman
eða volg í sófanum. Þið heyrið
vatnið renna, það er eina trygg-
ing ykkar fyrir næði og þið
verðið að hafa hraðann á. Fing-
ur laumast undir buxnastreng
eða upp undir pilsfald, einmitt
rétta augnablikið fyrir einn
stuttan, kannski 10-15 mínútur
til stefnu. Ekki nægur tími til að
fara úr spjörunum, þeim lyft
upp hér og dregin niður þar. Og
þið, hálfliggjandi, hálfsitjandi,
standandi, hvað sem er. Bjallan
gæti hringt á hverri stundu,
vatnið hætt að renna, spennan
eykst. Öll skilningarvit spennt
til hins ítrasta og líkaminn skil-
ur að nú verður að hafa hrað-
ann á.
Og á eftir. Tilfinning ástar-
bríma eða fullnægingar í
kroppnum og þið spjallið ósköp
rólega við vin ykkar. Sem ekk-
ert veit.
Með nýjustu vinkonunni, Celeine Altrahan.
Sjálfur með plástur
George Clooney, best
þekktur hjá okkur sem
barnalæknirinn á Bráða-
vaktinni, virtist sjálfur hafa haft
viðkomu á slysavarðstofunni
áður en hann mætti á Eldur og
ís (Fire and Ice) ballið í Holly-
wood. Einhver hefði nú valið
sér minna áberandi plástur við
þvílíkt tækifæri.
Njóttu lífsins í Reykjavík
Við höfum fjölgað íbúðum okkar að Skálholtsstíg 2a í
Reykjavík, við hliðina á Listasafni íslands. Þetta eru litlar
2ja herbergja íbúðir á besta stað í Reykjavík. í hverri íbúð
er lítið en fullkomið eldhús með öllum búnaði, stofa með
leðurhúsgögnum, svefnherbergi með bestu gerð
hótelrúma. Sjónvarp, sími og fax. Daglega eru íbúðirnar
þrifnar, skipt um handklseði, vaskað upp.
Fullkomin aðstaða fyrir rómantísk hjón sem hafa sloppið
frá börnunum.
Hausttilboð til 15. desember.
Til þess að kynna þessa frábæru gistingu í Reykjavík
bjóðum við nú gestum okkar að greiða allt að kr. 3.000 á
dag með nótum frá veitingahúsum í Reykjavík!!! en
afganginn kr. 5.500 með Visa eða Eurocard.
Einu skilyrðin eru þau að gist sé í a.m.k. 3 nætur og að
nóturnar séu nýjar.
Þitt annað heimili í Reykjavík
Sími: 562 5622 - Fax: 562 9165
Deildarfundir KEA
haustið 1996
Hríseyjardeild
Fimmtudagur 28. nóv. kl. 20, í kaffistofu
Frystihússins.
Félagsmemt eru hvattir til að
fjölmenna á deildarfundina.
Kaupfélag Eyfirðinga.