Dagur - Tíminn - 13.11.1996, Page 13
jDagur-Βmmrt
Miðvikudagur 13. nóvember 1996 - 25
Hesthús
Hesthús til sölu!
Þrír básar og stla fyrir 2 hesta ásamt
heygeymslu og útigeröi.
Uppl. í síma 462 5869.
Dýrahald
Óska eftir snemmbærum kvígum.
Uppl. í síma 466 1528, Magnús, Koti.
Hundar
Lassy til sölu.
Nokkrir hreinræktaöir Colly-hvolpar eftir,
úr síöasta goti.
Uppl. t síma 471 1733 eöa 4711412.
Pennavinir
International Pen Friends, stofnaö áriö
1967.
Útvegar þér a.m.k. 14 jafnaldra penna-
vini frá ýmsum löndum.
Fáöu umsóknareyðublaö.
I.P.F., box 4276, 124 Rvk„
sími 881 8181.
Felgur - Varahlutir
Eigum mikiö úrval af innfluttum notuö-
um felgum undir flestar geröir japanskra
bíla. Eigum einnig úrval notaöra vara-
hluta í flestar gerðir bifreiöa.
Bilapartasalan Austurhlíö, Akureyri.
Opiö 9-19, laugard. 10-17.
Sími 462 6512, fax 461 2040.
Eldhús Surekhu
Hvernig væri aö prófa indverskan mat,
framandi og Ijúffengan, kryddaöan af
kunnáttu og næmni?
Ekta indverskir réttir fyrir einkasam-
kvæmi og minni veislur.
í hádeginu á virkum dögum er hægt aö
fá heitan mat á tilboösveröi.
Alltaf eitthvaö nýtt í hverjum mánuöi.
Hringið og fáiö upplýsingar í síma 461
1856 eöa 896 3250.
Vinsamlegast pantiö meö fyrirvara.
Indís,
Suöurbyggö 16, Akureyri.
Ýmislegt
Víngeröarefni:
Vermouth, rauðvín, hvítvín, kirsuberjavín,
Móselvfn, Rínarvfn, sherry, rósavfn.
Bjórgeröarefni:
Þýsk, dönsk, ensk.
Plastbrúsar, sfur, vatnslásar, alko-
hólmælar, sykurmælar, líkkjörar, filter,
kol, kísill, felliefni, suöusteinar ofl.
Sendum f póstkröfu.
Hólabúöin hf„
Skipagötu 4, sími 4611861.
Vélar
200 hp Volvo penta ásamt drifi, gafl-
stykki og öllum fylgihlutum til sölu. Útlit
og ástand mjög gott.
Verö 650.000 + vsk.
Uppl. í sfma 462 1839 eftir kl. 17.00.
Landsbyggðarfólk
Ef þiö þurfið aö skreppa til Reykjavíkur,
þá höfum viö sér hæö f hjarta borgarinn-
ar til leigu.
Stutt f Kolaportiö.
Uppl. í sima 554 6396 og 562J3229.
Fundir
I.O.O.F. 2. = 1781115814 = 9J.
□ RÚN 5996111319 - frl, atkv.
Messur
Glerárkirkja.
í dag miðvikudag verður
kyrrðarstund í hádcginu kl.
12.00-13.00. Orgelleikur, helgi-
stund, altarissakramenti, fyrirbænir. Léttur
málsverður að stundinni lokinni.
Allir velkomnir.
Sóknarprcstur.
Takið eftir
Stígamót, samtök kvenna gegn kynferðis-
legu ofbeldi. Símatími til kl. 19.00 í sínta
5626868._____________________________
Minningarkort Akurcyrarkirkju fást í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju, Blóma-
búðinni Akri og Bókvali.________
Samúðar- og heillaóskakort
t Gidconfclagsins.
' Samúðar- og heillaóskakort Gi-
deonfélagsins liggja frammi í
flestum kirkjum landsins, einnig hjá öðrum
kristnum söfnuðum.
Ágóðinn rennur til kaupa á Biblíum og
nýjatestamentum til dreiftngar hérlendis og
erlendis.
Útbreiðum Guðs heilaga orð.__________
Minningarkort Glerárkirkju fást á eftir-
töldum stöðum: f Glerárkirkju, hjá Ásrúnu
Pálsdóttur Skarðshlíð 16a, Guðrúnu Sigurð-
ardóttur Langholti 13 (Rammagerðinni), í
Möppudýrinu Sunnuhlíð og versluninni
Bókval.______________________________
Frá Náttúrulækningafélagi Akurcyrar.
Félagar og aðrir velunnarar eru vinsamlega
minntir á minningakort félagsins sem fást í
Blómabúðinni Akri, Amaro og Bókvali.
Iþróttafélagið Akur vill minna á minning-
arkorl félagsins. Þau fást á eftirtöldum stöð-
um: Bjargi Bugðusíðu 1 Akureyri og versl-
uninni Bókvai við Skipagötu Akureyri.
Minningar- og tækifæriskort Styrktarfé-
lags krabbamcinssjúkra barna fást hjá fé-
laginu í síma 588 7555. Enn fremur hjá
Garðsapóteki, sími 568 0990 og víðar um
iand. ______________________
Minningarkort Umhyggju, féiags til
stuðnings sjúkum börnum, fást í síma 553
2288 og hjá Body Shop, sími 588 7299
(Kringlan)/561 7299 (Laugavegur 51).
Minningarkort Gigtarfélags Islands fást í
Bókabúð Jónasar. ___
Miðstöð fyrir fólk í atvinnulcit.
Opið hús í Punktinum alla miðvikudaga
frá kl. 15-17.
Kaffiveitingar í boði. dagblöð liggja frammi
og prestur mætir á staðinn til skrafs og ráða-
gerða.
Sérstök dagskrá auglýst ef svo ber undir.
Akurcyrarkirkja.
Samkomur
HVÍTASUHhUHIfíKJAtl wswdshlid
Miðvikud. 13. nóv. kl. 20.00: Bænasam-
koma.
DENNI DÆMALAUSI
er að reyna að láta þau senda mig í rúmið
án þess aðfá að borða. “
Afmæli
Snorri Ásmundsson myndlistar-
maður er þrítugur í dag, 13. nóv-
ember. Afmælisbarnið er í fyrir-
lestraferð í Suður-Ameríku um
þessar mundir, þannig að hann
mun halda upp á daginn föstudag-
inn 13. desember.
Borgaraleg ferming
Kynningarfundur um borgaralega
fermingu verður haldin í Oddeyrar-
skóla, nmmtudaginn 14. nóv. kl.
20.30. (Gengið inn að austan). Sér-
staklega fyrir börn og forráðamenn
þeirra sem fermast eiga vorið
1997. Annars eru allir velkomnir.
Menntaskólinn á Akureyri
Kúba-Mexíkó. Vikuna 11.-15. nóv.
ætlum við að fá 4. bekkinga til liös
við okkur og minnast glæsilegrar
útskriftarferðar okkar í haust.
Ljósmyndir úr ferðinni verða til
sýnis í Kvosinni þessa viku. Sigurð-
ur lljartarson, fróðasti maður um
Mexíkó á fslandi, mun segja ykkur
allt sem þið viljið vita um Mexíkó
og meira til, fimmtudaginn 14. nóv.
kl. 16.15 í Kvosinni. Miðvikudag-
inn 13. nóv. munu koma hór fyrir-
lesarar sem hafa dvalið á Kúbu og
hafa heilmikið um hana að segja.
Stiðarvaukur ’96. Peir einstakl-
ingar sem hafa áhuga á því að taka
þátt í órafmagnaðri keppni hljóm-
sveita og trúbadora f M.A. undirbú-
ið ykkur vel! Keppnin verður hald-
in í Kvosinni 21. nóv. Upplýsingar
um keppnina og skráningu er að
flnna hjá Davíð 3.t, Róbert 3.f, Söl-
va 1 .g, Evu 3.g eða Gunni 3. f.
AMMA Amnesty International
boðar til vinnufundar í dag, mánu-
daginn 4. nóv. í M9 kl. 16.15. Und-
irbúningur fyrir sýningu.
Skákfélag Akureyrar
Skákfélag Akureyrar hefst fimmtu-
daginn 15. nóv. Þá verða tefldar 3
umferðir. Mótinu lýkur sunnudag-
inn 17. nóv. Allir velkomnir.
Höfuðborgarsvæðið
Guðjón Ketilsson sýnir í
Slunkaríki
Laugardaginn 16. nóv. kl. 16 hefst
í Slunkaríki sýning Guðjóns Ketils-
sonar. Ilann mun sýna einn skúlp-
túr sem er samsettur af mörgum
einingum. Sýning Guðjóns stendur
yfir til 8. desember. Slunkaríki er
opið frá fimmtudegi til sunnudags
frá kl. 16-18.
Óþarfa hnýsni eða
sjálfsögð réttindi?
Blaðamannafélagið, Fólag um
skjalastjórn og Sagnfræðingafólag-
ið standa fyrir almennum fundi um
nýju upplýsingalögin, ilmmtudag-
inn 14. nóv. nk. kl. 20. Fundurinn
verður haldinn í Þjóðskjalasafninu,
Laugavegi 63.
AL-ANON
Samtök ættingja og vina
alkohólista.
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Ef svo er getur þú i gegnum samtökin:
- Hitt aðra sem glíma við
samskonar vandamál
- býggt upp sjálfstraust þitt.
- bætt ástandið innan fjölskyldunnar.
- fundið betri líðan
Fundarstaður:
AA húsið, Strandgötu 21, Akureyri,
Sími 462 2373.
Fundir í Al-Anon deildum eru:
Miðvikudaga kl. 21.00 og
laugardaga kl. 11.00
(nýliðar boðnir veikomnir kl. 10.30)
Alþjóðleg heimilisskipti
Nýr umboðsmaður hefur nú tekið
til starfa fyrir HomeLink Interna-
tional á íslandi - Alþjóðleg heimil-
isskipti - en það eru alþjóðleg fé-
lagasamtök sem starfrækt hafa
verið síðan 1953 og hafa það
markmið að gefa félögum sínum
kost á að eiga heimilisskipti inn-
byrðis. Starfsemin gengur þannig
fyrir sig að fólagar greiða sitt ár-
gjald og skrá sig, heimili sitt og
óskir um tímabil, áfangastað og
annað það er skiptir máli. Þessum
upplýsingum er síðan safnað sam-
an af umboðsmönnum HomeLink
um allan heim og á hverju ári eru
gefnar út alls 5 bækur með þessum
upplýsingum og myndum af heim-
ilum þeirra sem þess óska. lleimil-
isföng fylgja ásamt tilvísunarnúm-
eri sem hver félagi fær við greiðslu
árgjalds. Kostnaðurinn við árgjald-
ið er 6.000 kr. og er ekki meiri en
1 nótt á 2-3 stjörnu hóteli og inni-
falið er skráning fólagar og 3
fyrstu bækurnar og ef óskað er bók
4 (júní) og 5 (júlf). Ef fólk vill fá
nánari upplýsingar getur það beð-
ið um þær í gegnum HomeLink Int-
ernational - Alþjóðleg heimilis-
skipti, pósthólf 3384, 123 Rvk„ fax
562 6576 eða í síma 557 8303 á
kvöldin og einnig má senda skila-
boð í gegnum tölvupóst: elias-
sig@centrum.is og upplýsingar
ásamt skráningareyðublaði verða
sendar um hæl.
Jólakort
íslandsdeild Amnesty International
er nú að heíja sölu á jólakortum
ársins 1996 og vonast samtökin til
að sem flostir sameini stuðning við
brýnt málefni fallegri jólakveðju
með kaupum á kortum frá Am-
nesty International. Nokkur und-
anfarin ár hefur fslandsdeild Am-
nesty International gefið út lista-
verkakort og hefur sala þeirra ver-
ið ein helsta ijáröflunarleið deild-
arinnar. Að þessu sinni varð mynd-
in „Jólamorguninn” frá 1965 eftir
Barböru Árnason fyrir valinu.
Kortin eru seld á skrifstofu sam-
takanna að Hafnarstræti 15 í
Reykjavík, þar er einnig tekið á
móti pöntunum í síma 551 -6940
(fax 561 6940).
Hafnagönguhópurinn
í miðvikudagskvöldgöngu Hafna-
göngubópsins verður farið frá
Hafnarhúsinu kl. 20 og gengið með
ströndinni inn á Sólfar. Síðan upp
á Skólavörðuholt og um Þingholt,
Vatnsmýrina, Skildinganeshóla og
Mela upp á Landakotshæð. Þaðan
niður í Hafnarhús. Á leiðinni verð-
ur byggingarsaga Ilallgrímskirkju
rifjuð upp.
Háskólatónleikar
Á Háskólatónleikum í Norrama
húsinu í dag, miðvikudag, munu
þeir Jón Aðalsteinn Þorgeirsson
klarinettleikari og Brjánn Ingason
fagottleikari spila lög eftir Beet-
hoven og Poulenc. Tónleikarnir
eru heQast kl. 12.30.
Handhöfum stúdentaskírteina
er boðinn ókeypis aðgangur, en að-
gangseyrir fyrir aðra er 400 kr.
Fundur um torlæsi
Á fólagsfundi Foreldrafélags mis-
þroska barna í kvöld, miðvikudag,
mun Ingibjörg Símonardóttir sér-
kennari ljalla um dyslexíu eða tor-
læsi og aðgerðir til þess að minnka
líkur á námsörðugloikum síðar
meir. Fundurinn verður í sal Aíf-
ingaskóla Kennaraháskóla íslands
á mótum Bólstaðarhlíðar og Iiá-
teigsvegar og hefst kl. 20.30.
Fundur með Má Jónssyni
Félag íslenskra fræða boðar til
fundar með Má Jónssyni í Skóla-
bæ, Suðurgötu 26, í kvöld, mið-
vikudag. Hefst hann klukkan
20.30. Erindið, sem Már flylur,
kallast „Skapgerð Árna Magnús-
sonar”, og ber upp á 333. afmælis-
dag Árna Magnússonar, prófessors
og handritasafnara.
Hermann Pálsson með
fyrirlestur
Hermann Pálsson flytur fyrirlestur
á vegum Rannsóknarstofnunar
Kennaraháskóla íslands á morgun,
limmtudag, kl. 16.15. Fyrirlestur-
inn nefnist „Grímur og gervi í ís-
lenskum fornsögum". Fyrirlestur-
inn verður haldinn í stofu M-201 í
Kennaraháskóla íslands við
Stakkahlíð og hefst eins og fyrr
segir kl. 16.15.
Námskeið um ofvirkni
barna og unglinga
Endurmcnntunarstofnun Háskóla
íslands mun 15. og 16. nóvember
standa fyrir námskeiði um ofvirkni
barna og unglinga. Námskeiðið er
ætlað kennurum á leikskóla- og
grunnskólastigi, hjúkrunarfræð-
ingum í heilsugæslu, sem og öðr-
um fagmönnum á uppeldis- og
heilbrigðissviði.
Námskeiðið verður haldið á
Hótel Sögu, á föstudag kl. 9-16 og
laugardag kl. 9-13.
Nánari upplýsingar og skráning
er í símum 525 4923 og 525 4924.
Jólamerki og jólakort
Thorvaldsensfélagsins
Jólamcrki og jólakort Thorvald-
sensfélagsins eru komin út. Jóla-
merkin hafa verið gefin út síðan
1913 og myndefni þeirra þetta árið
er „Sendiboðar” eftir Karólinu Lár-
usdóttur.
Jólamerkin og kortin eru seld á
Thorvaldsensbazar, Austurstræti 4
og víðar. Allur ágóði af sölunni
rennur til líknarmála.
GARÐARS SIGURJÓNSSONAR,
Dvalarheimilinu Hlíð,
áður til heimilis að Ægisgötu 3, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir
margra ára hlýja umönnun.
Geir Garðarsson,
Garðar Geirsson,
Hörður Geirsson,
Ósk Geirsdóttir,
Ómar Geirsson,
Emma Geirsdóttir,
Sólveig Jóna Geirsdóttir
og fjölskyldur.