Dagur - Tíminn - 30.11.1996, Side 5
iDitgur-tHímiraT
Laugardagur 30. nóvember 1996 -17
MENNING O G LISTIR
„Ég á nokkra kunningja sem ég reyni að móðga eins mikið og ég get þegar ég hitti þá, og þeir mig, en allt í góðu.
Dagsdaglega held ég að ég sé tiltölulega kurteis," segir Sigurður.
Himna-
ríki
Leikritið Himnaríki
eftir Arna Ibsen
í leikstjórn Arnórs
Benónýssonar.
2. sýning mánu-
daginn 2. des. kl. 21.
3. sýning föstu-
daginn 6. des. kl. 21.
Ath. takmarkaður
sætafjöldi.
Miðapantanir
í síma 464 3107.
Nærfæmislega
valinn óþverri
Skemmtileg skot á náung-
ann er samansafn hent-
ugra og snjallra mógðana
við ýmis tækifæri sem Sigurður
G. Valgeirsson hefur tekið sam-
an. Dagur-Tíminn hafði sam-
band við Sigurð til að komast
að því hvers konar bók væri hér
á ferðinni.
„Ætli megi ekki segja að
þetta sé nærfærnislega valinn
óþverri," segir Sigurður og
hlær. Hugmyndina að bókinni
segist hann hafa _____—-—~
fengið fyrir nokkrum árum þeg-
ar hann rakst á svipaða bók er-
lendis. „Ég hef mjög gaman af
bókum með ýmiskonar speki og
þótti þetta óvenjulegt safn því
tilvitnanirnar voru allar frekar
nastí og oft fyndnar. Ég fór síð-
an að líta í kring um mig, bæði í
bækur og hlusta á fólk, og
komst að því að mjög margt af
því sem er fleygt er á vissan
hátt skot á náungann. Sumir
eru aldrei fyndnir nema á
kostnað annarra.“
„Reyndar var eitt skot frá
pabba heitnum sem mér fiimst
nokkuð gott en því miður náði
ég ekki að koma því inni í bók-
ina. Þetta gerðist þegar pabbi
var ungur og var á balli. Upp úr
miðnætti kom til hans maður og
sagði: t>ú sagðir að konan mín
væri með skegg. Þá svaraði
pabbi: Ég sagði aldrei að hún
væri með skegg. Ég sagði bara
að hún þyrfti að raka sig.“
- Ert þú ekkert hræddur um
að einhver verði móðgaður yfir
bókinni?
„Jú, hugsanlega gætu ein-
hverjir móðgast. En eins og
segir í einhverri speki þá er til-
gangurinn með tilvitnunum af
þessu tagi að móðga fólk með
orðum annarra. Þar sem öll
orðin í þessari bók eru orð ann-
arra get ég borið það fyrir
mig.“
- Ilvað með sjálfan þig,
finnst þér gaman að móðga
fólk?
„Ég á nokkra kunningja sem
ég reyni að móðga eins mikið
og ég get þegar ég hitti þá, og
þeir mig, en allt í góðu. Dags-
daglega held ég að ég sé tiltölu-
lega kurteis.“ AI
Úr ýmsum áttum
Uppistaðan í bókinni eru
skot á þekktar persónur sem
Sigurður hefur tínt saman úr
erlendum bókum en þó er
einnig að finna móðganir úr
íslensku samfélagi. „Þessi
skot eru héðan og þaðan.
Mest er þetta upp úr bók-
um,“ segir hann og nefnir
Stein Steinarr og Halldór
Laxnes sem dæmi um höf-
unda sem hafi látið ýmis-
legt vaða um náungann.
En kom ekki til greina að
nota tækifærið og koma
með eigin spælingar?
Skot á náungaim
Gylfi Þ. Gíslason (f. 1917,
prófessor í hagfræði og ráð-
herra):
„Við verðum að muna, að við
erum öll að borða sama graut-
inn...“
Svavar Guðjónsson (1917-
1973, verkamaður í Reykjavík):
„Já, en sum okkar hafa sleif-
ar og önnur aðeins teskeiðar.“
Lafði Astor:
„Winston, ef ég væri gift þér
myndi ég eitra kaffið þitt.“
Winston Churchill (1874-
1946, forsætisráðherra Breta):
„Nancy, ef þú værir konan
mín myndi ég drekka það.“
Sandra Harris (Þáttagerðar-
maður hjá BBC):
„Eru múrar stéttaskiptingar-
innar hrundir?"
Barbara Cartland (f. 1901,
breskur rithöfundur af aðals-
ættum):
„Auðvitað eru þeir það. Ann-
ars myndi ég ekki sitja hér og
spjalla við manneskju eins og
þig“
Groucho Marx (1890-1977,
bandarískur gamanleikari):
„Ég engdist af hlátri alveg
frá því ég tók bók þína upp og
þar til ég lagði hana frá mér. Ég
ætla að lesa hana við tækifæri."
(Sagt um fyrstu bók banda-
ríska rithöfundarins S.J. Perel-
man)
Efling.
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Stóra sviðið kl. 20
. ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
í kvöld. Uppselt.
Fimmtud. 5. des. Orfá sæti laus.
Síðustu sýningar fyrir jól.
KENNARAR ÓSKAST
eftir Ólaf Hauk Símonarson
3. sýn. á morgun, sunnud.Uppselt.
4. sýn. föstud. 6. des. Nokkur sæti laus.
5. sýn. sunnud. 8. des. Nokkur sæti laus.
Síðustu sýningar fyrir jól.
NANNA SYSTIR
eftir Einar Kárason og
Kjartan Ragnarsson
Lau. 7. des. Nokkur sæti laus.
Síðasfa sýning fyrir jól.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
í dag kl. 14.00. Órfá sæti laus.
Á morgun kl. 14.00. Uppselt.
Næstsíðasta sýning.
Aukasýning sunnud. 8. des. kl. 14.
Síðasta sýning.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
Á morgun. Föstud. 6. des. Sunnud. 8. des.
Síðustu sýningar fyrir jól.
Athygli er vakin á að sýningin er ekki við
hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum
inn í salinn eftir að sýning hefst.
Litla sviðið kl. 20.30
í HVÍTU MYRKRI
eftir Karl Ágúst Úlfsson
I kvöld. Uppselt.
Fimmtud. 5. des. Laugard. 7. des.
Síðustu sýningar fyrir jól.
Athugið aö ekki er hægt að hleypa gestum
inn í salinn eftir að sýning er hafin.
★ ★ ★
GjAFAKORT í LEIKHÚS -
SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF
★ ★ ★
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Mánud. 2. des. kl. 21.00
Gleðileikur séra Snorra Björnssonar
á Húsafelli „SPERÐILL",
elsta varðveitta leikrit ritað á íslensku.
.Griðkvennaflokkur Snorra á Húsafelli" flytur,
þær eru: Guðrún Glsladóttir, Hanna María
Karlsdóttir, Ingrid Jónsdóttir og Rósa Guðný
Þórsdóttir. Inngangsorð flytur Þórunn
Valdimarsdóttir, sagnfræðingur.
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga
kl. 13-18, miðvikudaga til sunnudaga kl. 13-20
og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma.
Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10
virka daga i síma 551 1200.
Leikfélag
Dalvíkur
sýnir
Stútunga-
sögu
(eða kyrrt um hríð)
Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir.
Sýning:
Laugardag 30. nóv. kl. 21.
Sýnt er í Ungó.
Miðapantanir sýningardagana í síma
466 1900 milli kl. 17 og 19.
Leikfélag Dalvíkur.
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
Dýriní
Hálsaskógi
eftir Thorbiorn Egner
Sýningar:
Laugard. 30. nóv. kl. 14.00
Sunnud. 1. des. kl. 14.00
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram aS sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Simi í miöasölu: 462 1400.
|Dagur-'2Emttmt
- besti tími dagsins!