Dagur - Tíminn - 30.11.1996, Page 12
24 - Laugardagur 30. nóvember 1996
^Dagur-ÍHmmm
|Dagur-'3Imttmt
Þetta tekur smá tíma.
En ef vel tekst til er
fyrirhöfnin þess virði.
Notið blöð eða pappa til að
búa til form: 4 rétthyrn-
ingar, þar af tveir jafn-
Piparkökuhús
stórir fyrir þakið (21x25 cm) og
tveir fyrir hliðarveggina (21x8
cm).
4 rétthyrningar fyrir stromp-
inn (2.5x4 cm)
Bakhlið og framhlið sem
passar við stærð hliðarveggj-
anna og þaksins.
Einnig hægt að gera mót fyr-
ir grenitré og girðingarstaura
(1.5x7 cm)
Deig:
500 g sýróp
250gsykur
100 g smjör
2 egg
600 g hveiti
400 g fínt haframjöl
5 tsk. lyftiduft
4 tsk. kakó
2 tsk. kanill
1 tsk. anís
/ tsk. negull
Frostingur:
4 eggjahvítur
ca. 1 kg flórsykur
Skraut:
Hlaupmolar
kex
smartís
hnetur (pistasíuhnetur) ofl.
Aðferð:
1. Deigið: Hitið sýrópið og syk-
urinn í potti þar til sykurinn
hefur leyst upp. Kælið.
Hrærið sýrópsblöndunni
saman við smjörið og eggin.
Bætið hveiti, hafra mjöli,
lyftidufti og kryddi
saman við og hnoðið í mjúkt
deig.
2. Fletjið deigið út þar til það
er orðið 1 cm þykkt. Setjið
formin á deigið og skerið út
eftir þeim. Búið til op fyrir
glugga og dyr í framhlið
hússins. Sáldrið hveiti á
tvær bökunarplötur, setjið
deigið á og bakið í 200°C
heitum ofni í 15 mínútur.
Kælið á bökunargrind.
3. Frostingur: Stífþeytið eggja-
hvíturnar, sigtið flórsykur
inn og blandið saman við.
Þá er komið að því að púsla
lista verkinu saman.
4. Notið kökufat eða hvítan
pappa undir. Byrjið á því að
líma saman hliðarnar fjórar
á húsinu með frostingnum.
Látið þorna. Setjið síðan
þakið á og að lokum
strompinn. Þegar frosting-
urinn hefur þornað setjið þá
meiri frosting á öll sam-
skeyti. "" ’
5. Skreytið framvegginn og
þakið með sælgæti. Bætið
um betur með því að búa til
grýlukerti úr frostingnum
sem hanga fram af þakinu.
6. Notið frostinginn til að líma
hnetur á jólatréð og h'mið
tréð síðan í garðinn fyrir
framan húsið. Raðið girð-
ingastaurunum í kringum
húsið og skreytið með mikl-
um flórsykri (til að tákna
snjóinn). Látið þorna.
Ath! Til að ná fram réttu
jólastemmningunni er hægt að
setja litla Ijósaperu (sem geng-
ur fyrir batterO inn í húsið og
lýsa það upp.
GÓÐA SKEMMTUN!