Dagur - Tíminn - 30.11.1996, Page 19
wammammm
Laugardagur 30. nóvember 1996 - 31
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
JDítgur-®mrirat
- Fyrr og nú
Q4U. Endurreist og með afrek fyrri tíma í farteskinu.
Eitt af því sem hefur sett
sterkan svip á plötuútgáf-
una í ár, eins og reyndar
undanfarin ár líka að hluta, er
mikil endurútgáfa. Það sem
gerir þessa útgáfu í ár hins veg-
ar að sumu leyti markverðari
en stundum áður, er að útgáf-
urnar nú í ár hafa margar
hverjar verið sögulegri og löngu
tímabærar. Sem dæmi má nefna
Söfnin með Fræbbblunum og
Risaeðlunni frá því í sumar og
svo af öðrum meiði, safnútgáf-
urnar með hljómsveit Ingimars
Eydal, Savannatríóinu og Rún-
ari Gunnarssyni. Nú er síðan
nýkomin út plata með hinni
endurreistu nýbylgjupönksveit
Q4U, þar sem saman fara öll
lög sveitarinnar sem út komu á
árunum 1981-1983, áður útgef-
in sem óútgefin, auk nýrra upp-
taka af eldri lögum og a.m.k.
einu lagi með sveit sem varð til
í framahaldi af Q4U, Þetta er
bara kraftaverk. Samtals 34
lög. Kemur þessi útgáfa, sem
einfaldlega kallast Q4U tvö, í
kjölfar Fræbbblaútgáfunnar í
sumar og varpar því enn skarp-
ara ljósi á þennan tíðaranda í
íslenskri sögu, sem tvímæla-
Iaust er einn af þeim mest
spennandi frá upphafi. Q4U
varð til í MH árið 1980 og
starfaði vel frá á árið 1983. A
þessu tímabili ummyndaðist
sveitin reyndar í aðra, Handan
grafar, en tók svo aftur upp
nafnið Q4U. Mjög margir komu
við sögu hljómsveitarinnar á
þessum starfstíma, en þau Ellý
söngkona og Gunnþór hljóm-
borðsleikari voru og hafa verið
í henni frá upphafi. Meðal ann-
arra sem komu við sögu eru
Steinþór heitinn Stefánsson,
Kormákur Geirharðsson, Berg-
lind Garðarsdóttir söngkona,
Danny Pollock og Árni Daníel
Júlíusson. Þau Elly, (Elínborg
Ilalldórsdóttir) Gunnþór og
Árni Daníel komu svo aftur
fram fyrr á þessu ári sem Q4U,
til styrktar baráttunni gegn
vímuefnaneyslu ungs fólks. Það
tókst svo vel að þau ákváðu að
taka þráðinn alveg upp að nýju
ásamt nýjasta meðliminum,
Óskari Þórissyni. Sem áður
sagði er þetta tímabil þegar að
Q4U kom fram á sjónarsviðið,
pönk og nýbylgjutímabilið með
Rokk í Reykjavík-myndinni og
öllu sem henni fylgdi (í henni á
Q4U þrjú lög, m.a. Creeps, án
efa þekktasta lag sveitarinnar)
eitt það merkasta í íslenskri
rokksögu. Það er því ánægju-
legt að fá þessa útgáfu nú, með
öllum sínum kostum og göllum,
þó ekki væri nema bara fyrir
heimildargildið. Hver veit nema
sveitin eigi svo eftir að láta
meira að sér kveða í framhald-
inu?
Það er kunnara en frá þarf
að segja, að Jet Black Joe
hefur verið ein fremsta og
framsæknasta rokkhljómsveit
landsins síðustu ár. Ásamt Páli
Rósinkranz söngvara var gítar-
leikarinn Gunnar Bjarni Ragn-
arsson leiðtogi sveitarinnar og
málsvari auk þess að bera
ábyrgð á flestöllum lagasmíðum
hennar.
Nú hefur Jet Black Joe hins
vegar kvatt, a.m.k. í bili og
Gunnar Bjarni og Páll ásamt
öðrum meðlimum farið hver í
sína áttina. Gunnar hélt til
náms í tónlistarskóla Paul
McCartney í Liverpool og var
þar um nokkurra mánaða
skeið, en hefur nú tekið sér frí í
óákveðinn tíma og snúið sér að
öðru. Upphaflega ætlaði hann
nú í haust að senda frá sér ein-
Jetz varð fyrir tilviljun að veruleika er Gunnar Bjarni Ragnarsson vann að
sinni fyrstu einherjaplötu.
„Ólafsköttur"
Ef yfirleitt er hægt að tala
um að einhver listamaður
sé hreínt ótrúlegúr, þá
verður ekki annað sagt um
manninn Ólaf Hauk Símonar-
son. Ekki er nóg með að hann
eigi nú tvö leikrit á fjölum Þjóð-
leikhússins, Þrek og tár, og hið
nýfrumsýnda Kennarar óskast,
sem mun vera einsdæmi, held-
ur er hann líka að senda frá sér
nýja bók, Rigning með köflum,
sem er sú fyrsta frá honum í
nokkur ár. Og ekki nóg með
það, því á meðan lítið ber á lau-
mar Ólafur Haukur í ofanálag
frá sér einu stykki af
geislaplötu sem hann gefur út í
dreifingarsamvinnu við Spor.
Eru þetta aldeilis dæmalaus af-
köst sem margir munu efah'tið
kenna við ofvirkni. En burtséð
frá því þá er uppistaðan á
plötunni, lög og textar Ólafs
Hauks úr leikrithiu hans, Kött-
urinn sem fer sínar eigin leiðir
sem mjög vinsælt varð fyrir 10
árum eða svo. Eru þessi lög
mörg hver vel þekkt og vinsæl
enn í dag eins og t.d. Vögguvís
og Súpermann. Einnig er tvö ný
lög að finna á plötunni, Köttur-
inn hennar Milliu og Lífið er
stutt, sungin af Agli Ólafssyni.
Ólafur Haukur hefur að undan-
förnu verið í hverju viðtalinu á
eftir öðru vegna nýja leikritsins
og/eða nýju bókarinnar. í fá-
dæma lítillæti hefur hann þar
hins vegar ekkert verið að nota
tækifærið og flíka plötuútgáf-
unni. Segir það margt um lista-
manninn Ólaf Hauk Símonar-
son.
veröur
tríó
herjaplötu og byrjaði vinnu með
það í huga, en sú vinna þróaðist
hins vegar út í það að verða að
hljómsveitarstarfi, þ.e. tríóið
Jetz myndaðist, skipað tvíbura-
bræðrunum Kristni og Guðlaugi
Júníussonum á bassa og
trommum ásamt Gunnari á gít-
ar.
Við söng á plötunni og frek-
ari hljóðfæraleik komu svo íleiri
góðir listamenn til aðstoðar,
m.a. Móeiður systir tvíburanna
og hennar fylgdarmaður, Eyþór
Arnalds, Heiðrún Anna Björns-
dóttir, fiðlarinn fíni Dan Cassidy
og bandaríska söngkonan Kate
Nelson. Sú síðasttalda er dóttir
ekki ófrægari manns en kántr-
ístjörnunnar Willie Nelson. Var
hún skólasystir Gunnars úti og
syngur í einu laganna, You
Know, sem einmitt varð til í
skólanum.
Það sker sig reyndar nokkuð
úr á plötunni, ágætis píanóball-
aða í gö-mlum stfl. Ánnars er
platan nokkuð jöfn og leynir
arfurinn frá Jet Black Joe sér
ekki. „Sýrð“ og Speisuð2, svo
notuð séu hugtök sem menn
þekkja í rokkinu, lýsir plötunni
best. Þannig er hún í hnotskurn
og bara nokkuð góð sem slík.
Gunnar Bjarni semur bróður-
partinn af lögunum, en eitt er
eftir Kristinn og eitt úr smiðju
jaxlsins Lou Reed, Candy says.
Er þetta bæði framúrstefnuleg
plata og djörf, sem þ.a.l. er ekki
við allra hæfi, en ætti í það
minnsta að falla í kramið hjá
mörgum Jet Black Joe aðdá-
andanum.
M! ’ f
P O P P
• Hér á sama stað fyrir viku
var sagt frá mjög svo góðri
sölu á nýju plötunni hans
Bubba, Allar áttir, en hún
hafði þá selst í einum 3.000
eintökum á aðeins 3 vikum.
Töldu menn þetta vera met, en
nú bregður hins vegar svo við
að jafnvel Bubba karlinum er
slegið við. Söngfuglinn ungi,
hún Emih'ana Torrini, hefur
nefnilega gert gott betur, selt
um rúm 4000 eintök af nýju
plötunni sinni, Mermann. Geri
aðrir betur, segir maður bara
núna.
• Þú lifir, er nafnið á nýrri 10
laga plötu með kristilegum
lögum og textum eftir Loft S.
Guðnason. Loftur, sem alla-
vega hefur sent frá sér eina
aðra plötu, syngur þarna og
spilar lög sín ásamt mörgum
góðum listamönnum öðrum og
ef marka má þessi nöfn þá er
um mikla vina- og ijöl-
skylduplötu að ræða. Þau sem
syngja eru Páll Rósinkranz,
Sigríður Guðnadóttir, Ingibjörg
Guðnadóttir, Jóhanna Gunn-
arsdóttir, Karl Gunnarsson,
Bryndís Vilhjálmsdóttir og Sig-
urbjörg Gunnarsdóttir.
• Fyrst verið er að tala um Pál
Rósinkranz hér að ofan (og
reyndar kemur hann líka við
sögu hér annars staðar á síð-
unni) þá er rétt að minna á, að
Þú lifir inniheldur rokk og popplög
með kristilegum boðskap.
fyrsta einherjaplatan hans, I
Believe In You, kom út á
mánudaginn var. Þar er hann
eins og flestir sjálfsagt vita á
trúarlegum nótum og fer mik-
inn.
mivjwi
• Rúnar Þór Pétursson, sá
eljusami landshornafiakkari,
er rétt búinn að senda frá sér
enn eina plötuna, sem einfald-
lega ber nafn kappans. Er það
Stöðin/Axel Einarsson sem gef-
ur út og semur Rúnar að
vanda öll lögin á henni, flest
við texta Heimis Más bróður
síns.
• Hversu ótrúlega sem það
hljómar, er Kiss, gamla rokk
og ról sveitin sem snéri aftur í
allri sinni „múnderingu“ og
með upprunalegum mannskap
fyrr á þessu ári, nú orðin vin-
sælli en nokkurn tímann áður.
Á tónleikaferðinni sem nú
stendur yfir í Bandaríkjunum,
streyma eldri jafnt sem yngri
aðdáendur til að sjá goðin,
þannig að tugþúsunum skiptir.
Slær sveitin þessa dagana öll-
um við í þessum efnum. Sem
dæmi má nefna að innkoman
af tvennum tónleikum í Mich-
iganfylki nam hvorki meira né
minna en 1 millj. dollara, rúm-
um 60 millj. ísl. króna.