Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Side 6

Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Side 6
Lj ósameistari jólanna egar líður fram á miðaft- an aðfangadags kemst orkunotkun landsmanna í sögulegt hámark. Þá loga ljósa- skreytingar á hverju torgi og í hverjum húsglugga og á þessari sömu stundu taka allar vaskar húsmæður landsins sig til og stinga steikinni í ofninn og fara að malla sósima. Þvílíkt verður álagið á raforkukerfi lands- manna að ljósin fara að blikka, sem oft getur boðað annað, meira og verra. Pabbi minn er starfsmaður rafveitunnar á Sel- fossi. Flesta daga ársins er hann í viðbragðsstöðu við að koma ljósunum í lag þegar þau bresta. Frelsarinn var í heiminn borinn á aðfangadagskvöld og einmitt á því kvöldi verður hlut- verk rafveitustarfsmanna, hvar sem þeir eru á landinu, ekki ósvipað því sem til friðar frels- arans heyri. Hann fór um og tók heldur betur til óspillra málanna. Hann snerti blinda svo þeir fengu sýn, haltir gengu og daufir heyrðu eftir að frels- arinn hafði lagt gjörva hönd á plóg. Rafmagnsleysi er einsog vottur af heimsendi og þess vegna er samlíkingin ekki fjarri lagi. í aftansöng Sú var tíðin að við systkinin þrjú færum með mömmu í messu. Þar söng sr. Sigurður Sigurðarson, sem nú er orðinn vígslubiskup í Skálholti, inn jól- in og uppi á sönglofti var kirkjukórinn. Liðsfólk hans tók Homar félagsheimili Þórs: Bein útsending Newcastle-Liverpool á Þorláksmessu kl. 20.00 Hamar sími 461 2080 undir fullum hálsi með sínum undurblíðu sólskríkjuröddum. Og allar messur hjá sr. Sigurð- uri enduðu á því að hann kvaddi alla kirkjugesti með handabandi og óskaði þeim vel- farnaðar á jólunum. „Yður er í dag frelsari fædd- ur,“ sagði presturinn við kirkju- gesti, sem flestir voru svo hólpnir að hafa náð sæti. Frammi í anddyri Selfosskirkju stóð slangur af fólki sem ekki átti því láni að fagna. „Eigi var rúm fyrir þau í Guðshúsinu," sagði einhver - og snéri út úr jólaguðspjallinu með eftir- minnilegum hætti. Steikarlykt í símtóli Við vorum yfirleitt komin heim frá aftansöng sr. Sigurðar um klukkan sjö. Oft var það að ein- mitt þá hringdi síminn. „Það er rafmagnslaust, það var að slá út fyrir nokkrum mínútum,“ sagði einhver húsmóðir með jólaróm í röddinni. Steikarlykt af heimili hennar lagði í gegn- um símtólið heim til okkar. Pabbi bað um frekari staðsetn- ingu. „Ég kem,“ sagði hann snöggt - og svo var hann rok- inn. Mörg aðfangadagskvöld hafa verið eitthvað á þessa leið. Síðan hef ég sest á símavakt- ina. „Sævar er úti að kippa þessu í liðinn," segi ég. Síminn hringir í sífellu. Alltaf get ég boðað fagnaðarerindið. Sævar var úti í frelsarans líki að hugga rafmagnslausar hús- mæður sem voru með ham- borgarhrygginn hálfsteiktan í ofninum og kertaljós á borðinu, því engin önnur ljós var að hafa. Þvílíkt og annað eins. Hamborgarhyggur og pakkar Þegar pabbi hefur verið kallað- ur út á aðfangadagskvöld hefur það verið misjafnt hvenær hann hefur komist heim. Stundum er útkallið kortér, en stundum lengra. Það er með öðrum orð- um afskaplega misjafnt hvenær allar ljóstýrur á Selfosssvæðinu hafa verið farnar að skína að nýju og eldavélar farnar að þjóna sínu hlutverki. Allt eftir atvikum og umfangi. Stimdum höfum við systkinin, mamma og afi, sem verið hefur hjá okkur síðustu jóhn, verið búin að borða hamborgarhygginn og taka upp megnið af pökkunum þegar pabbi kemur heim. Satt best að segja man ég aldrei eftir því að rafmagns- laust væri heima á þessu helga kvöldi. Mamma hefur alltaf get- að fært „inndæla steik uppá stærðar fat“ með venjubundn- um hætti. Það eru húsmæður annarsstaðar á Selfossi eða í helstu nærsveitum sem ekki hafa átt þessu láni að fagna. í frelsarans líki Ég er orðinn vanur jólum með fyrrnefndum hætti og kippi mér því ekki upp við neitt. Almennt er skoðun okkar að helst eigi jólin ahtaf að vera eins frá ári til árs - og því finnst mér hrein- lega tilhlýðilegt að pabbi sé að heiman einhvern hluta að- fangadagskvölds. Eg ætla að vera heima á Sel- fossi um jólin og upplifa þar þessa sérstöku jólastemmningu, sem ég þekki svo vel. Mér finnst það ánægjuleg tilhugsun að eiga pabba sem bregður sér í frelsarans líki á aðfangadags- kvöld; samanber að blindir fengu sýn með liðveislu Jesús Krists og rafmagnslausir fá ljós þegar pabbi minn fer á stjá. Að ylja mér við þá tilhugsun veitir mór svo sannarlega gleðileg jól. Sigurður Bogi Sœvarsson. Blaðberar óskast Röskir blaöberar óskast á Stór-Reykjavíkursvæð- inu sem allra fyrst. Upplýsingar í síma 800 70 80. Ingibjörg eða Júlía. Opnunartími Flugfrakt Hjalteyrargötu 10 Akureyri (Tollvörugeymslan) Sími 461 2204 Laugardagur.........21..desember kl. 9-17. Sunnudagur..........22. desember kl. 12-16. Þorláksmessa........23. desember kl. 8-20. Aðfangadagur .......24. desember kl. 8-12. TVG-Zímsen hf. og Flugleiðir-Flugfrakt, Flugfélag Norðurlands.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.