Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Síða 12

Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Síða 12
24 - Laugardagur 21. desember 1996 ®agur-®mThm BÓKABÚÐ JONASA.R Áritanir í dag, laugardag Kl. 15-16 áritar Ómar Ragnarsson bók sína Mcmnlífsstiklur Kl. 16-18 árita Pétur og Inga í Laufási bók sína Lífskraftur Munið: Afsláttur af öllum bókum í Bókabúð Jónasar B0KABUÐ e-JV ,j JONASAR Jlll \\lt=i Hafnarstræti 108 • Akureyri • Sími 462 2685 Frádrátturvegna hlutabréfakaupa afnuminn t áföngum Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 11. desember sl. var ákveðið að afnema í áföngum frádrátt vegna fjárfestingar manna í atvinnurekstri. Til að fá fullan frádrátt þurfa einstaklingar að fjárfesta fyrir 129.900 kr. og hjón fyrir 259.800 kr. Frádrátturinn verður sem hér segir: 80% affjárfestingu ársins 1996, að hámarki 103.920 kr. á mann 60%af fjárfestingu ársins 1997, að hámarki 77.940 kr. á mann 40% affjárfestingu ársins 1998, að hámarki 51.960 kr. á mann 20% af fjárfestingu ársins 1999, að hámarki 25.980 kr. á mann Frádráttur hjóna er tvöfaldurfrádráttur einstaklings Þeir sem fjárfesta umfram framangreint hámark á árinu 1996 og þeir sem eiga ónýttan frádrátt frá fyrri árum geta nýtt þann frádrátt á næstu þremur árum. Ónýttar frádráttarheimildir skerðast eftir þeim reglum sem gilda á því ári sem þær koma til frádráttar. Ekki er heimilt að millifæra og nýta sem frádrátt það sem fjárfest er umfram hámark á árunum 1997 og 1998. RSK RÍKISSKATTSTJ ÓRI „svanga mimksins“ Vænt Iræiit með Steinunni Jæja, jólin eru bara komin! Ekki á morg- un, ekki hinn, held- ur hinn. Þeir sem borða alls ekkert kjöt eða fisk þurfa líka eitthvað til há- tíðabrigða. Fyrir hina er þetta afskaplega gott sem lóttur hádegisverður eða jafnvel kvöldverður. Ég er að tala um flókna og seinlega upp- skrift af hátíðlegum og fallega röndóttum grænmetis- hleif sem ég ætla að gefa ykkur í dag. Yfirleitt nenni ég ekki að elda mjög seinlega rétti en nú eru jólin og hvað lætur maður ekki hafa sig útí. Rótturinn heitir Grænmetishleifur „svanga munksins" og er nafnið dregið af heiti lítils sælkeraveitingastaðar á Suður-Englandi. Hátíðargrœnmetishleifur m/karrí-sveppasósu Fyrir 6-8 500 g gulrætur 2'á dl nýrnabaunir (mœldar ósoðnar, annars 5 dl ef búið að sjóða) 500 g spínat 500 g blómkál 8 stk. egg 1 peli rjómi salt og svartur pipar Sósa: 300 g sveppir smjörvi til steikingar 1 dós 18% sýrður rjómi smá vatn 1 -2 tsk. karrí (Mild Madras Curry frá Rajah) salt og pipar Sjóðið blómkálið og látið í mat- vinnsluvél ásamt tveimur eggj- um, 'A af rjómanum og smá salti og pipar. Maukið vel og skiptið í tvö vel smurð löng form. Leggið baunir í bleyti (eða notið baunir úr dós) í sólarhring. Skolið og sjóðið í saltvatni í 1 klst. Kælið aðeins, látið í mat- vinnsluvél ásamt tveimur eggj- um, % af rjómanum og smá salti og pipar. Maukið vel og hellið varlega í formin ofan á blóm- kálsmaukið. Sjóðið gulræturnar vel meyrar og látið í matvinnsluvél ásamt tveimur eggjum, '/ af rjómanum og smá salti og pipar. Maukið vel og hellið ofan á baunamaukið. Snöggsjóðið spínatið og látið í matvinnsluvél ásamt tveimur eggjum, 'A af rjómanum og smá salti og pipar. Maukið vel og hellið í formin ofan á gulrótarmaukið. Látið nú formin í ofnskúffu hálffulla af heitu vatni og bakið í heitum ofni í ca. 45 mínútur (hit- ið ofninn upp í 180°C áður) eða þar til maukið er orðið þétt und- ir fingri. Látið standa á borði í smástund áður en hvolft er úr formunum. Sósan: Fínsneiðið sveppina og léttsteikið í smjörva á pönnu. Stráið svörtum pipar og karríi yfir. Hrærið síðan sýrða rjóman- um vel útí ásamt svolitlu vatni og slökkvið á hitanum. Gott getur verið að setja örlítinn sítrónu- safa út í sósuna. Hvolfið grænmetishleifunum úr formunum og berið fram með sósunni, hrísgrjónum og grófu brauði. Verði ykkur að góðu og gleði- legjól. Fiskur a joladag eða annan í jólum Hátíðamatur þarf ekki endilega að vera kjöt. Fiskur er alveg frábær sem veislumátur og er þar að auki léttari í maga. Þessi réttur er fljótlagaður, tiltölulega ódýr og mjög bragðgóður. Uppskrift- in hentar 6-8 manns en auðvelt er að stækka hana eða minnka. Meðlœti: 3 bollar hrísgrjón. Meira ef fólkið er gefið fyrir hrísgrjón, afganginn má nota í hrís- grjónagraut daginn eftir. Byrjið á því að setja hrís- grjónin í pott ásamt 5 bollum af vatni og kveikja undir og á meðan þau sjóða er fiskréttur- inn búinn til. Fiskrétturinn: 6-800 g fiskur, t.d. ýsuflak, roð- flett og skorið í litla bita ‘/ dós niðursoðnir sveppir 100 g rœkjur 6-8 nýir sveppir, skornir í bita 1 súputeningur eða 1-2 tsk. kraftur 2 vœnir laukar, skornir í fremur smáa bita 1 paprika skorin í bita Z l rjómi aromat, salt, pipar 1-2 msk. karrý 2 msk. majones 2 msk. ólífuolía til steikingar Setjið olíuna á pönnuna og hrærið karrýinu saman við. Léttsteikið laukinn, fersku sveppina og paprikuna. Setjið innihald sveppadósarinnar á pönnuna, ásamt kryddinu og rjómanum. Látið sjóða í um 5-8 mínútur. Setjið rækjurnar og fiskinn í sósuna, hrærið aðeins í sósunni til að íiskurinn blandist vel í sósuna og látið lok á pönn- una. Slökkvið undir pönnunni og látið bíða í um 5-7 mínútur. Berið á borð með hrísgrjónum, grænmetissalati og heitum smábrauðum.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.