Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Side 19

Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Side 19
Jlagur-®mTmrt Laugardagur 21. desember 1996 - 31 STUIMUþungi Ibyrjun þessa áratugar þeg- ar Speed og Thrashrokk átti miklu fylgi að fagna víða um heim, var ein slík sveit nokkuð áberandi hér á landi, Bootlegs. Sú sveit gaf út tvær plötur, WC Monster og Bootlegs. Kristján Ásvaldsson var tromm- ari á þeim báðum, en á seinni plötunni var söngvari að nafni Jón Símonarson með sveitinni. Eftir að Bootlegs hætti varð Jón söngvari með Dos Pilas, en Kristján lét að því er best er vit- að lítið fyrir sér fara. Stjúni og Nonni, eins og þeir kalla sig, eru hins vegar núna aftur komnir saman fram á sjónarsviðið í nýrri hljómsveit, Stunu, og hafa ásamt tveimur öðrum félögum sínum, Ziggy bassaleikara og Alla hljóm- borðsleikara, sent frá sér plötuna, M M M. Kemur svo sem ekki á óvart að mikill þungi og kraftur er í tónlistinni hjá þeim félögunum í anda Bootlegs, en „dansstælar", sem eru í bland koma hins vegar nokkuð á óvart. Er þetta eins og að t.d. frægum sveitum á borð við Ministry, Prodigy, Mo- by o.fl. væri blandað saman. Reyndar ekki svo galið með pönkinu sem í ofanálag er bætt við, (lagið Achtung er gott dæmi um það og raunar eitt það besta á plötunni) og er platan að auki vel unnin. Lögin eru þó misjöfn að gæðum, sem dregur úr gildi plötunnar. Samt telst hún fínt innlegg í útgáfuflóruna fyrir sérstöðu sína. Umsjónarmaður Magnús Geir Guomundsson Hallgrímur Óskarsson hefur sent frá sér um margt sérstaka plötu og nýstárlega. Ljóð og Ijúft popp Eins og sagt var frá hér á síð- unni fyrir stuttu hefur Hall- grímur Óskarsson verkfræðing- ur hjá Flugleiðum tekið sig til og gefið út eitt stykki geislaplötu. Hugurinn heima nefnist hún og gefur Hallgrúnur hana út sjálfur. Hallgrímur er Akureyringur um þrítugt og hefur um all- nokkurt skeið fengist við að semja lög og texta. Hann hefur hins vegar ekki komið fyrir augu landsmanna fyrr á tónlist- arsviðinu. Er þessi plata vægt til orða tekið nokkuð sérstök og að mörgu leyti merkileg. í lang- flestum tilvikum er það tónlistin sem skiptir mestu máli, text- arnir svo. Hjá Hallgrími eru það hins vegar textarnir, eða öllu heldur ljóðin sem skipta mestu. Tónlistin er hjá honum í öðru sæti. Uppistaða plötunnar eru nefnilega 10 lesin ljóð, af leik- urunum Jóhanni Sigurðarsyni og Hinrik Ólafssyni, og Hall- grími sjálfum sem les eitt þeirra. Eitt laganna á plötunni, sem eru sex, syngur hann svo líka og leikur, Norðanmenn, og er það jafnframt skemmtileg- asta lag plötunnar, í þjóðlagastíl með glettilegum „rembings- texta“. Páll Óskar Hjálmtýsson og Stefán Hilmarsson syngja svo hin lögin, en við flutning þeirra koma einnig við sögu systkini Hallgríms, Gunnar, Asta og Fanney auk listamanna á borð við Evu Ásrúnu, Gunn- laug Briem, Guðrúnu Gunnars- dóttur og Jón Kjell. Hafði Jón líka umsjón með útsetningum á lögunum og undirleik við ljóðin. Er þetta ljúf og þokkaleg popptónlist hjá Hallgrími enO það eru fyrst og síðast ljóðin sem standa upp úr. Þau eru mörg hver mjög vel ort, af ýmsu tagi með öllum tegundum ríms, mið-, enda- og hálfrími. í Tröll- reið yrkir Hallgrxmur meira að segja á Dróttkvæðanótum, sem án efa er ekki á færi margra og gerir það listavel. Það er ánægjulegt að fá svo nýstárlega útgáfu og verður vonandi fram- hald á. Rúnari Pór við að gefa út plötur. Ilans nýjasta, sem einfald- lega kallast Rúnar Þór, er víst sú tíunda frá honum og geymir eins og jafnan áður hans frum- smíðar, að langmestu leyti við texta Heimis Más bróður hans. Rúnar er djúpur og dimmradda sem aldrei fyrr á nýju plötunni, en jafnframt í ágætu formi og laðar fram enn einu siimi ágæt- islög. Dæmi um það eru Huldu- kona, Farin skip og Rökkur- blaut, svo þrjú séu nefnd. Ann- ars þarf ekki svo mjög að út- lista Rúnar Þór og tónlist hans svo mikið. Menn vita hvar þeir hafa hann, hvort sem hann er á rólegum píanónótum eða í ríf- andi rokkstellingum. Fáir íslenskir tónlistarmenn eru iðnari eða eljusamari en Rúnar Þór Pétursson. Ekki að- eins er hann á þönum lands- horna á milli mestallan ársins hring, heldur er hann líka og hefur verið manna duglegastur Rúnar Þór er góður á nýju plötunni sinni. Bell- man á íslandi Fjórtán ár eru liðin frá því fræðimenmrnir Árni Björnsson og Gunnar Guttormsson höfðu upphaflega í huga að gefa út plötu með ljóðum og lögum kenndum við sænska skáldið Carl Michael Bellman (1740-1793). Af ýmsum ástæðum varð þó ekkert af útgáfunni þá, en nú fyrir skömmu létu þeir draum- inn loks rætast. Um er að ræða vandaða geislaplötu frá þeim sem geymir 17 lög auk þess sem ítarleg úttekt á Bellman og ljóðum hans, tengsl við ísland og ástfóstur það sem lands- menn hér sem víða annars staðar hafa tekið við hann o.s.frv., fylgir í bæklingi. Er um- búnaður plötunnar reyndar ný- stárlegur, í líkingu við bækur fyrr á öldinni með þykkum pappaörkum. Þeir Árni og Gunnar láta sér svo ekki nægja að sjá um útgáf- una, heldur syngja þeir líka á plötunni m.a. ásamt kvartettin- um Út í vorið. Um undirleik sjá svo margir góðir hljóðfæraleik- arar, t.d. Gerður Gunnarsdóttir á fiðlu, Claudko Puntin, sem leikur á klarinett m.a. auk þess að útsetja flest lögin, Martin Wind á kontrabassa og Rolf Marx á gítar. Þarna er til að mynda að finna margar drykkjuvísur sem flestir kannast við og svo auð- vitað lagið sem öll íslensk börn læra enn þann dag í dag, um Gamla Nóa. Svo merkilegt sem það nú er hafa íslendingar þekkt söngva Bellmans allt frá því hann var enn á lífi, en nú um þessar mundir eru einmitt um tvö hundruð ár frá því þýð- ing Eiríks Brynjólfssonar birtist fyrst sjónum landsmanna. Frá því hafa svo ótal manns þýtt Bellman á öllum tímum og tekið lög hans upp á plötur. Ingibjörg Þorbergs, Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur og Hjörtur Páls- son eru meðal þeirra sem það hafa gert á seinni árum. Ber að fagna þessari útgáfu, því „sí- gildara popp“ er vart hægt að hugsa sér en söngva Bellmans. Sú tíunda frá Páll Rósinkranz rokkar enn á plötunni sinni, I Believe In You. Á Guðs vegum Pað er orðið kunnara en frá þarf að segja, að Páll Rósin- kranz, fyrrum söngvari efnileg- ustu rokksveitar íslands, Jet Black Joe, hefur að nokkru snúið við blaðinu, hætt að lifa hinu harða og hraða lífi popp- stjörnunnar, en þess í stað gengið til liðs við hið lifandi orð, orðið þjónn drottins vors, Jesú Krists. Það hefur þó svo sannarlega ekki þýtt að Páll hafi hætt að syngja, aldeilis ekki og þá heldur ekki að rokk- ið sé horfið af dagskrá hjá hon- um. Það verður nefnilega ekki annað sagt en að platan hans Páls, sú fyrsta frá honum undir eigin nafni og nefnist, I Belive In You, sé á köflum vel rokk- andi og býsna kraftmikil. Upp úr stendur þó að hún er fyrst og fremst trúaróður, í „GospelstíT en þar hefur auðvitað í það minnsta kraftinn og tilþrifin í flutningi vantað. Titillagið er sótt í smiðju meistara Bob Dylans og fer Páll ágætlega með það. 11 önnur lög eru á plötunni, þar af tvö eftir Pál sjálfan. Mörg hver hinna eru negrasálmar eða annað sama eðhs á sálarpopps- nótum. There’s No Time (eftir Pál) og samsuða tveggja laga Blood, Fire, Water og I Don’t Know What You Came To Do, eru dæmi af rokkaðri hliðinni á Páli á plötunni og jafnframt eru þetta ein frísklegustu lögin á henni. Þorvaldur Bjarni Todmo- bilemaður með meiru sér um vinnsluna á plötunni og ferst það vel úr hendi. Hann spilar líka á henni ásamt mörgum öðrum þekktum tónlistarmönn- um. í heild er þetta bærileg út- koma hjá söngvaranum unga, sem lætur svo væntanlega meira að sér kveða á þessum nótum í framtíðinni. Botnleðja - Bingó! Ungherjarokktríóið Botnleðja úr Hafnarfirði, hefur held- ur betur sett svip sinn á á ís- lenskt tónlistarlíf frá því dreng- irnir þrír sigruðu í Músíktil- raunum Tónabæjar í lok vetrar 1995. í verðlaun á tilraununum unnu þeir eins og vera ber tíma í hljóðveri og nýttu þá vel til að taka upp sína fyrstu plötu. Ilana gekk hins vegar ekki þrautalaust að koma út fyrir síðustu jól, því ýmsar miður góðar tafir komu upp. En þegar platan, Drullumall, loks náðist í útgáfu fáum dögum fyrir jól, seldist hún upp á örskots- stundu. Upplagið var um 1000 eintök eða svo, sem nú á tímum þykir ekki slæm sala hjá nýrri hljómsveit, en ef tími hefði ver- ið til, hefði áreiðanlega verið hægt að selja margfalt meira af plötunni, svo mikil var eftir- spurnin. Nú er svo önnur platan frá Botnleðju komin út, nokkuð góðum tíma fyrir jólin sem bet- ur fer og nefnist hún því „pönk- aða“ nafni, Fólk er fífl. í skemmstu máli sagt, BINGÓ! HJÁ BOTNLEÐJU. Platan hittir beint í mark og er talsverð þró- un til hins betra frá frumsmíð- inni, sem þó hafði margt sér til ágætis, Þeir Heiðar, gítarleikari og söngvari, Ragnar bassaleik- ari og Haraldur trommari, hafa greinilega þroskast töluvert milli ára og virðast vinnubrögð þeirra almennt við „Fólk er fífl“ vera betri en fyrir ári. Harð- neskjupönk (sem á enskunni kallast víst Hardcore punk) með nýbylgjublæ á breska vísu, mætti segja að væri þokkaleg lýsing á tónlist þeirra félaganna og það með ótvíræðum gæða- stimpli. Skemmtilegir textar og það á íslensku krydda svo her- legheitin hressilega. Er þetta án efa ein skarpasta plata ársins og sannar að Botnleðja er ekki lengur efnileg eldur firnagóð rokksveit á alþjóðamælikvarða.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.