Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Síða 3
3Dagur-£!Immm
Þriðjudagur 31. desember 1996 - 3
F R E T T I R
Keflavík
Milljónatjón í stórbruna
þegar Víkurás brann
Frá brunastað í Keflavík í fyrrakvöld. Mynd:H»marBragi
Trésmiðjan Víkurás í
Keflavík brann til kaldra
kola í fyrrinótt og
standa útveggir einir eftir.
Eldsupptök voru ókunn í gær-
morgun en mikill eldmatur
var í iðnaðarhúsinu sem er
um 1400 femetrar að stærð á
einni hæð að Iðavöllum. En
Víkurás er stór framleiðandi á
sviði innihurða og parkets
o.fl.
Brunavarnir Suðurnesja
fengu tilkynningu um eldinn
klukkan 21.55 á sl. sunnudags-
kvöld. Svo virðist sem eldurinn
haíi náð að breiðast mjög fljótt
út því nokkru áður höfðu eig-
endur Víkurás verið í húsinu án
þess að verða nokkurs varir.
Þegar að var komið var mikill
eldur í húsinu og var því kallað
á aðstoð slökkviliða frá Sand-
gerði og Keflavíkurflugvelli, auk
þess sem björgunarsveitar-
menn í Keflavík aðstoðuðu við
slökkvistarfið.
„Þegar við komum var eldur-
inn strax orðinn svo víðfeðmur
um húsið að maður gerir sér
ekki grein fyrir upptökunum
kannski á einum ákveðnum
stað,“ sagði Baldur Baldursson,
aðalvarðstjóri hjá Brunavörn-
um Suðurnesja. Hann segir að
eldvarnir í iðnaðarhúsinu hafi
verið mjög góðar, auk þess sem
slökkviliðið hefur „ítrekað gert
æfingar á þessu húsi,“ segir
Baldur.
Varðstaða var við brunarúst-
irnar í gær en þá um morgun-
inn var enn verið að slökkva í
glóðum sem leyndust í brakinu.
Þetta er annar stórbruninn á
árinu í Keflavík, því fyrr árinu
varð mikið tjón þegar kviknaði í
byggingarvöruverslun í bænum.
-grh
Daivík
íþrótta-
maður
ársins 1996
s
þrótta- og æskulýðsráð Dal-
víkur tilkynnti í gær val á
íþróttamanni Dalvíkur fyrir
árið 1996 og fór athöfnin fram í
húsnæði Sundlaugar Dalvíkur.
Tilnefndir voru 6 íþróttamenn
til kjörsins. Fyrir valinu varð
skíðamaðurinn Björgvin Björg-
vinsson, sem m.a. varð bikar-
meistari SKÍ 15-16 ára ung-
Unga og í 3. sæti í flokki fullorð-
inna. Björgvin er við nám í
skíðamenntaskóla í Howden í
Noregi. GG
Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi og Davíð Oddsson með
tertuna góðu í gær. Ljósmynd: Hilmar Þór
Því miður í inegTun!
Friður 2000 truflaði
Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra í nokkrar
mínútur í hádeginu í gær,
þar sem hann sat á skrif-
stofu sinni og ritaði ára-
mótaávarp til þjóðarinnar,
sem hann flytur í sjónvarpi í
kvöld.
Meðferðis höfðu Ástþór
Magnússon og félagar helj-
armikla tertu frá Ragnari
bakara í Keflavík, til að
færa forsætisráðherra, sem
gat þess reyndar að hann
væri í allstífri megrun þessa
stundina!
En tertugjöfin hefur sinn
tilgang:
„Við teljum að nýju upp-
lýsingalögin sem taka gildi
um áramótin gefi forsætis-
ráðherra gullið tækifæri til
að svara bréfi okkar frá 28.
febrúar. Þar óskuðum við
skýringa á því hvers vegna
ísland lýsti yfir stuðningi við
áframhaldandi notkun
kjarnorkuvopna með at-
kvæði sínu á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna fyrir
rúmu ári. Tertan á að
minna Davíð á að svara,“
sagði Ástþór Magnússon í
gær.
Davíð tók þeim tertu-
mönnum ljúflega, gaf sér
tíma til að líta upp úr skrift-
um sínum, og tók við tert-
unni góðu. -JBP
Skordýr
Ný óværutegund
fannst hér í ár
Áttfætlumaur á kött-
um fannst hér í fyrsta
sinn á þessu ári,
en algengt er að þeir
bíti fólk í nágranna-
löndunum.
✓
Attfætlumaurinn Cheyleti-
ella parasitovorax fannst
á tveim persneskum kött-
um á sitt hvoru einkaheimilinu
snemma á þessu ári, en báðir
kettirnir komu frá ræktanda
persneskra katta í Reykjavík.
Ekki er vitað til maurar af þess-
ari ættkvísl hafi áður fundist á
mönnum, hundum eða köttum
hér á landi, segir í grein um
þetta í Læknablaðinu (1. tbl.
’97). Líklegt þykir að áttfætlu-
maurinn hafi borist til landsins
með innfluttum gæludýrum.
Þótt spjótin beinist einkum að
hundum og köttum gætu kanín-
ur og jafnvel menn hafa borið
maurinn hingað til lands.
Líklegt þykir að óværa þessi
hafi borist nýlega til landsins
þar sem sjaldan líði langur tími
frá því maurinn fari að ljölga
sér verulega á köttum eða
hundum þar til einkennin koma
fram á dýrunum eða eigendum
þeirra, þar sem maurarnir geta
valdið kláða og útbrotum, eink-
urn á höndum og í kjöltu.
Hér á landi hafa bit á fólki,
önnur en mýbit og stungur eftir
vespur og hunangsflugur, oftast
verið orsökuð af fuglaflóm og í
sumum tilvikum af rottuflóm,
rottumarur eða veggjalúsum,
að sögn greinarhöfundar.
„Cheyletiella maurar hafa nú
bæst í þennan hóp en bit af
völdum þeirra eru algeng á
fólki í nágrannalöndunum."
Fullvaxnir eru maurarnir að-
eins 0,3 til 0,4 mm langir. Egg
sín líma þeir við hár í feldi dýr-
anna og tekur 3-5 vikur fyrir þau
að þroskast í fullorðinn maur.
Selfoss
KÁ kaupir verslanir
Hafnar-Þríhyrnings
KÁ hefur keypt verslunar-
rekstur Kjarvals á Sel-
fossi og Hellu og er nú
orðinn fjórði stærsti matvöru-
sali á landinu. Kjarvalsbúðirnar
voru í eigu Hafnar-Þríhyrnings
og hefur rekstur þeirra gengið
treglega en endurskipulagning
var gerð á þeim í sumar. Mikil
samkeppni hefur verið milli
þessara aðila að undanförnu.
KÁ tekur við rekstri verslan-
anna um áramót og verður nú
KÁ verslun opnuð á Hellu 3.
janúar. Kjarvals verslunin,
gegnt Vöruhúsi KÁ á Selfossi,
verður rekin í óbreyttri mynd,
áhersla lögð á lægra vöruverð
og minna vöruúrval. Kjarval
mun hins vegar leggja áherslu
á kjötvinnslu í sínum rekstri.
f dag er ein matvöruverslun
á Selfossi sem ekki er í eigu KÁ,
verslunin Hornið við Tryggva-
götu. Með þessari viðbót eru
verslanir KÁ orðnar 13 talsins.
- HÞ