Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Page 5

Dagur - Tíminn - 31.12.1996, Page 5
^Dagur-'ðlímtrat Þriðjudagur 31. desember 1996 - 5 A N N Á L A R Apríl Fjöldaúrsagnir úr þjóðkirkjunm frá áramótum Fyrstu þrjá mánuði þessa árs sögðu 790 manns sig úr þjóðkirkjunni, eða heldur fleiri en allt árið í íyrra, samkvæmt tölum frá Hagstof- unni. Langflestir þeirra, sem gengu úr þjóðkirkjunni eftir áramót, létu skrá sig utan trú- félaga. Margir telja úrsagnirnar að éinhverju marki afleiðingu ásakana á hendur biskupi Is- lands fyrir kynferðislega áreitni og háværra deilna í Langholts- kirkjusöfnuði, þar sem bæði málin og önnur þeim tengd hafi dregið úr virðingu fyrir kirkjunni. „Ég er bara afskaplega feg- inn að sjá hvernig þetta skipt- ist, en miðað við skiptinguna er augljóst að þetta er ekki af mín- um orsökum," segir séra Flóki Kristinson, prestur í Langholts- kirkjusókn, þegar úrsagnirnar eru bornar undir hann. En að- eins 26 sóknarbarna hans hafa yfirgefið þjóðkirkjuna það sem af er árinu. Skömmu síðar leggja tveir þingmenn Pjóðvaka fram frum- varp um aðskilnað ríkis og kirkju og það kemur fram að nú hafa alls 162 unglingar fermst borgarafega á vegum fé- lagsins Siðmenntar. Séra Pálmi Matthíasson hefur áhyggjur af því að kristnir helgidagar séu að týnast og allsherjargoði Ásatrúarmanna, Jörmundur Ingi Hansen, spáir því að söfn- uður Ásatrúarmanna verði orðinn fjölmennasti trúarsöfn- uður landsins um aldamótin. Þetta er ekki mynd af biðröð í Austur-Berlín frá því fyrir fall múrsins, held- ur frá morgni útsöiudags hjá fyrirtæki sem sumum þætti eflaust mætti gera meira af slíku. Eftir hverju bíður fólkið svona þolinmótt á köld- um aprílmorgni íReylgavík ? Stefnt að sigri Hún stefndi að sigri, þjóðin stóð á öndinni. Hvaða fréttaviðburði maímánaðar tilheyrir þessi fréttamynd Tímans? Engimi áhugi fyrir skrumi og persómnhði Jón Baldvin Hannibalsson lá fram eftir maímánuði undir feldi og hugleiddi forseta- framboð gegn fornvini sínum, Ólafi Ragnari Grímssyni. Saman gengu þeir fyrrum „á rauðu ljósi“ um landið. Ólafur var augsýnilega orðinn forseti, flaggaði 67% fylgi í skoðana- könnunum, Jón engu. Það varð bið á svari Jóns, en það kom 22. maí: Hjónin á Vesturgötunni hafa ekki áhuga fyrir skrumi og per- sónumði. Jón segir forsetaemb- ættið „táknræna tignarstöðu", valdalausa og ekki áhugaverða. Jón fékk sárabót. Hann var út- nefndur heiðursborgari í Vilní- us sama dag. Línurnar skýrðust í maf. í framboði voru Ólafur Ragnar, Pétur Hafstein, Guðrún Agnars- dóttir, Guðrún Pétursdóttir og um síðir Ástþór Magnússon sem bauðst til að „dúsa á Bessastöðum í nafni friðar“. Nuddarinn Rafn Geirdal fékk ekki nægar uppáskriftir. Eftir þessu verður næsta skref sennilega að fá Dra- kúla markgreifa og fjöl- skyldu til að endurskipuleggja BIóðbankann,“ segir Ögmundur Jónasson alþingismaður og for- maður BSRB í Tímanum um þá 11. maí var enginn væntan- legur frambjóðandi á því að gefast upp. Fulltrúi Guðrúnar Pétursdóttir segir: „Sú hugsun læðist ekki að okkur.“ Fimm vikum síðar hætti Guðrún við framboð. ákvörðun menntamálaráðherra að skipa starfshóp um málefni RÚV, sem aðallega var skipaður einstaklingum sem eiga í sam- keppni við Ríkisútvarpið eða andvígir því að samfélagið reki útvarp og sjónvarp. Drakúla í Blóðbankann? Júní Ólafur forseti Biskupinn að hætta Olafur Skúlason, bisk- up, tilkynnti við setn- ingu prestastefnu í júní að hann hyggðist hætta störfum um áramótin 1998/99 eða ári áður en hann kemst á aldur, sem kallað er. Ólafur sagði ástæðuna að hluta þær ásakanir, sem á hann hefðu verið bornar um kynferðislega áreitni. Hann sagðist einnig vilja gefa eft- irmanni sínum tfma til að undirbúa 1000 ára afmæli kristnitöku um aldamótin. Tími til kominn s lafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi þingmaður og formaður Alþýðu- bandalags, var kjörinn 5.for- seti lýðveldisins í júnflok, með afgerandi meirhluta atkvæða. Ólafur fékk rúm 41%, Pétur Kr. Hafstein, hæstaréttardómari, tæp 30%, Guðrún Agnarsdóttir, læknir, fékk rúm 26% og Ástþór Magnússon innan við 3% at- kvæða. Ýmsir höfðu á orði að aldrei myndi skapast sátt um Ólaf Ragnar á Besstastöðum. Þar á meðal var Kristín Hall- dórsdóttir, þingkona Kvenna- listans, sem sagði í samtali við Tímann að hún bæri ugg í brjósti „vegna þess styrs, sem staðið hefur um hann sem per- sónu og ég er svolítið vantrúuð á að um hann skapist sú eining, sem þarf að ríkja um þetta embætti. Mér heyrðist t.d. sem forystmenn Sjálfstæðisílokksins væru ekki á neinum sáttabux- um, þegar þeir tjáðu sig um kjörið á kosningavöku fjölmiðl- anna. Meðal annars vegna þess tel ég mjög líklegt að það verði kosið um nýjan forseta eftir 4 ár,“ sagði Kristín. Það á eftir að koma í ljós, en skoðanakann- anir benda til þess að lands- menn séu prýðilega sáttir við nýja forsetann sinn. Frétt um nýjungar í starfs- mannastefnu Seðlabank- ans vakti athygli margra í sumar. I Tímanum þann 4. júní var sagt frá því að bankinn ætlaði eftirleiðis að ráða fólk eftir hæflleikum, og þótti ýmsum tími til kominn. „Þess skal jafn- an gætt að í auglýsta stöðu sé sá umsækjandi ráðinn, sem tal- inn er hæfastur til að gegna henni, að teknu tilliti til mennt- unar og hæfni, en án tillits til kynferðis," sagði m.a. í nýrri jafnréttisáætlun Seðlabankans. Fyrstir koma fyrstir fá - hvaða tímamótum í umferðarlöggjöf landsmanna tengist þessi mynd

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.